Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 36
Ágnar Ingólfsson:
Marflær og þanglys')
Marflær og þanglýs eru meðal
þeirra dýi'a, sem setja hvað mestan
svip á lífríki fjörunnar. Við þessi dýr
kannast allir, sem grúskað hafa í fjör-
um, og ekki síst hafa börn gaman af
þeim, þótt annars séu menn e. t. v.
ekki á einu máli um það, liversu geðs-
leg þessi dýr eru. Hinar kviku hreyf-
ingar marflónna og silalegir tilburðir
þanglúsanna vekja hjá sumurn ein-
hvers konar óhug, líkt og kóngulær
og sum skordýr gera. Þetta er erfitt að
skýra, en óhugur þessi hverfur jafnan
þegar nánari kynni takast við þessi
gagnmerku dýr.
Marflær og þanglýs eru krabbadýr,
eins og t. d. humar, krabbi, rækja,
rauðáta, hrúðurkarl og mörg fleiri al-
geng dýr. Líkami krabbadýra er lið-
skiptur og hjá marflóm og þanglús-
um skiptist bolurinn aftan höfuðs í
14 liði, sem glöggt má greina, þar sem
þeir eru ekki huldir skildi, eins og
hjá humri, rækju og krabba. Hver lið-
ur bolsins ber síðan eitt par útlima.
Gegna þessir útlimir ýmsum hlutverk-
um. Útlimir fremstu liða eru notaðir
1) Útvarpserindi, flutt 11. ágúst 1976.
til þess að meðhöndla fæðuna, þá
koma allmörg pör ganglima, en öft-
ustu limir eru oft sérhæfðir til sunds
og öndunar. Marflær og þanglýs má
auðveldlega greina í sundur á því að
þanglýs eru flatvaxnar og skríða eftir
yfirborðinu á réttum kili, oftast í
hægðum sínum, en marflær eru liáar
og þtinnar og ferðast oftast skríðandi
á hlið og eru talsvert kvikar. Nokkrar
tegundir marflóa ganga þó á réttum
kili, en þær taka við og við undir sig
mikil stökk, sem þanglýs gera aldrei.
Bæði marflær og þanglýs synda auk
þess vel.
Krabbadýr eru fyrst og fremst
vatnadýr og lifa bæði í fersku vatni
og söltu, en þó sjaldnast sömu teg-
undirnar. Bæði marflær og þanglýs
eru aðallega sjódýr, og svo er um allar
íslenskar tegundir, en erlendis eru lil
tegundir, sem lifa í fersku vatni.
Nokkrar tegundir marflóa og þang-
lúsa hafa ennfremur lagt land undir
fót og gerst landdýr, og hafa þá svip-
aða lifnaðarhætti og sum skordýr.
Stærsti hópurinn hér eru svonefndar
grápöddur, sem skyldar eru þanglús-
um sjávar. Af þeim eru til nokkrar
Náttúrufræðingurinn, 46 (3), 1976
146