Náttúrufræðingurinn - 1977, Blaðsíða 54
í III. úlgáfu Flóru íslands (1948).
Hinir iveir eru við ísafjarðardjúp, í
Unaðsdal á Snæfjallaströnd og í
Skjaldfannardal og fundust 1955 og
1964 (Helgi Jónasson, 1964). Á öllum
þessum stöðum óx línarfinn aðeins á
smáblettum, í Botnsdal á stórri hvít-
mosaþúfu í hálfdeigjumó, í Unaðsdal
í litlum stökum gulvíðirunna og í
Skjaldfannardal í lágu en þéttu birki-
kjarri. Eintök Helga frá Botni í Dýra-
Línarfi (Stellaria calycantha (Ledeb.)
Bong.). Myndin er úr R. Nordhagen:
Norsk Flora: Illustrasjonsbind, I. 3. 1970,
og er af norsku eintaki. íslensk eintök
eru ekki með eins greinóttum stöngli en
lík að öðru leyti.
firði eru tekin snennna í ágúst, þau
eru með ungum aldinum og 15—35
cm há. Eintökin frá Unaðsdal eru
tekin um miðjan ágúst og eru sum
með (ullþroskuðum aldinum og frá
24—38 cm há. Eintök Helga frá Skjakl-
fannardal hef ég ekki séð.
Fyrsti vaxtarstaður línarfa hér á
landi utan Vestfjarða, svo vitað sé með
vissu, fannst svo 24. ágúst 1974 þegar
ég fann hann í eynni Slúttnesi í Mý-
vatni í Suður-Þingeyjarsýslu. Línarf-
inn vex þar á smábletti í allþéttu
gulvíðikjarri á hálfdeigu landi innan
um mýrastör, engjarós, fjallafoxgras,
vallhæru, vallarsveifgras, brennisóley,
fjalldalafífil, túnvingul, túnsúru,
hálmgresi, mýradúnurt, tjarnastör og
fleiri tegundir, m. a. mosategundir.
Gróskan er þarna mikil eins og við-
ast í Slúttnesi og allar plöntur hávaxn-
ar. Ég mældi nokkrar línarfaplöntur
og voru þær allar milli 30 og 40 crn
á hæð og voru flestar nteð fullþrosk-
uð alclin.
Allir vaxtarstaðir línarfans sem
þekktir eru á Vestfjörðum liggja frek-
ar lágt, líklega neðan 100 m hæðar
yfir sjávarmáli, en fundarstaðurinn í
Slúttnesi er í nærri 280 m hæð.
Mér þykir sennilegt að línarfi eigi
eftir að finnast víðar hér á landi því
vaxtarstaðir hans eru þannig að mjög
erfitt getur verið að koma auga á
hann. Hann verður líka að teljast all-
harðgerð planta því hann vex norð-
an 70° n.br. í Skandinavíu og vex þar
meira að segja til fjalla eða allt upp
í 600 m hæð. í sunnanverðum Noregi
hefur hann fundist í allt að 1200 m
hæð yfir sjávarmáli (Hultén, 1950).
Línarfi er alfriðaður hér á landi
samkvæmt náttúruverndarlögum.
164