Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 66
um, annarri um háplöntur og liinni um
gróplöntur. Mun )tað vera einhver fyrsta
tilraun, sem gerð er lil þess að kynna
megnið af gróplöntunum í einni lítilli
bók.
Síðan komu samsvarandi bækur um
spendýr og fugla („Dággdjur och fagler“)
og fiska (,,Fiskar“), og loks rekur svo þessi
lestina, en liún fjallar um hryggleysingja.
Um helmingur bókarinnar er yfirlit
um þá dýraflokka, sem teknir eru fyrir í
bókinni, en það eru sem fyrr segir idlir
hryggleysingjar, að undanskildum skor-
dýrunum. Þarna er að finna mjög saman-
þjappaðar upplýsingar um fylkingar og
llokka dýranna, einnig undirflokka og
jafnvel ættir. Nokkuð er um greiningar-
lykla fyrir flokka og ættir og jafnvel teg-
undir. Allt er þetta svo styrkt með ágæt-
um skýringarteikningum.
Síðari helmingurinn af bókinni eru svo
litmyndir af 675 tegundum ltryggleys-
ingja, sent er að finna í Svíþjóð eða í
hafinu þar umhverfis. Fylgja jafnframi
stuttar og hnitmiðaðar lýsingar tegund-
anna, og eru þær jafnan á sömu opnu.
Litteikningar Björns eru afbragðs vel
gerðar, og hefur honum varla tekist eins
vel upp í nokkrum af fyrri bókum sínum.
Hvað sjávardýrin snertir er þarna um
að ræða margar þær tegundir sem við
höfum hér við land, en að sjálfsögðu
gildir það síður um landdýrin, t. d. köng-
urlærnar. Ég lief ekki talið saman, live
margar íslenskar tegundir eru teknar fyrir
í bókinni, en gæti trúað að jjað væri um
helmingur. Ætti því bók Björns Ursings
um hryggleysingjana að geta komið að
góðu gagni fyrir áhugamenn um dýra-
greiningar og kennara í jteim fræðum hér-
lendis.
Bókin er í handhægu vasabroti og <>11
uppsetning og frágangur vandað.
Helgi Hallgrimsson.
Kynningarvika Sambands íslenskra
náttúruverndarfélaga
Samband íslenskra náttúruverndarfélaga
(SÍN) hefur nú í undirbúningi kynningu
á starfsemi sinni og aðildarfélaga sinna.
F'er kynningin fram í Norræna húsinu í
Reykjavík og liefst 15. apríl næstkom-
andi.
Aðildarfélög SÍN eru nú sex að tölu
og spanna jtau yíir allt landið. Félags-
svæðin eru kjördæmi eða heilir fjórðung-
ar. Elsta félagið (SUNN) var stofnað á
Norðurlandi árið 1969. Sambandið var
stofnað árið 1975, og hefur það aðsetur á
Akureyri. Núverandi forseti þess er Helgi
Hallgrímsson náttúrufræðingur.
Kynningin 1 Norræna húsinu verður
um leið kynning á náttúruverndarmálum
hinna ýmsu landshluta, en ýmis almenn
viðfangsefni verða líka tekin fyrir, svo
sem iðnvæðing landsins og nýting á auð-
lindum hafsins. Einnig verður rætt um
hlutverk og starfsemi almannasamtaka að
náttúruverndarmálum, um hlutverk og
jjýðingu friðlýsingar o. 11.
Ýmsir gestir munu halda erindi á kynn-
ingarvikunni, og m. a. er framkvæmda-
stjóri norsku náttúruverndarsamtakanna,
Magne Midttun, væntanlegur jtangað, og
Eysteinn Jónsson formaður Náttúruvernd-
arráðs mun hafa jrar framsöguerindi.
í tengslunt við kynningarvikuna verður
komið upp sýningu um náttúruvernd í
Norræna liúsinu, og verður hún o]tin alla
dagana.
Helgi Hallgrímsson.
176