Náttúrufræðingurinn - 1991, Blaðsíða 23
Terry G. Lacy
Fuglaskoðunarferð
til Falklandseyja
INNGANGUR
í janúar 1990 fékk ég tækifæri til að
fara til Falklandseyja til að skoða
fugla með prófessor frá Bandaríkjun-
um og fleira fólki frá Norður-Amer-
íku og Bretlandi. Það reyndist erfitt
að hleypa ferðinni af stokkinum en
loksins, með samþykki þriggja
breskra ráðherra, sennilega Margrétar
Thatcher sjálfrar og annarra háttsettra
manna, fórum við frá Bretlandi í flug-
vél breska flughersins. í þann tíma
voru ennþá sýnilegar leifar af nýlega
afstaðinni styrjöld milli Argentínu-
manna og Breta á Falklandseyjum
þannig að eyjarnar voru ennþá hern-
aðarsvæði.
MILLILENDING Á ASCENSION
EYJU
Millilent var á Ascension-eyju og
var það reyndar ástæðan fyrir erfið-
leikum á því að fá leyfi til fararinnar,
enda er eyjan bækistöð breska flug-
hersins og miðstöð samskiptakerfa
BBC og annarra. Vegna vélartruflun-
ar var nauðsynlegt að gista á eyjunni
eina nótt, en það gaf okkur tækifæri
til að skoða fugla þar. Ascension-eyja
er eldfjallaeyja, sem rís upp af hafs-
botninum skammt frá mið-Atlants-
hafshryggnum. Eyjan liggur á ca. 8" S
enda er loftslagið oftast þokkalega
heitt og þurrt og gróðurinn brúnn.
Það rignir einu sinni á ári og þá verð-
ur stærsta eldfjallið, Grænafjall, raun-
verulega grænt. Tungl var fullt, svo að
súpuskjaldbökur (Chelonis mydas)
komu til eyjunar til að verpa eggjum í
sandinum um nóttina. Þar eru ein-
lendir arnfreigátar (Fregata aquila),
sem hvergi verpa annars staðar, og
innfluttir asnar og kindur, sem bæði
lifa nú villt, svo og kettir. Kettir voru
fluttir inn til að drepa mýs en þeir
drepa í raun fleiri fugla en mýs. Bjart-
þernur (Sterna nereis) verpa á eyjunni
með 10 mánaða millibili í staðinn fyrir
12 eins og annars staðar í heiminum til
þess að rugla kettina í ríminu og forð-
ast að hafa ungauppeldið á sama tíma.
FALKLANDSEYJAR
Það reyndist ekkert vera að flugvél-
inni, svo að daginn eftir héldum við
áfram til Falklandseyja. Við komuna
þangað þurftum við að hlusta á ræðu
um jarðsprengjur sem finnast ennþá á
eyjunum, áður en okkur var hleypt í
gegnum tollinn. Daginn eftir skoðuð-
um við mörgæsabyggð, sem er fyrir
innan vel merkt bannsvæði en við urð-
um að standa utan þess. Við sáum
jarðsprengjur hvergi á eyjunum.
Náttúrufræðingurinn 61 (1), bls. 17-23, 1991.
17