Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1991, Page 38

Náttúrufræðingurinn - 1991, Page 38
ingaskipti þegar á fyrsta hausti. Þess- um nýja búningi svipar mjög til vetrar- búnings fullorðinna fugla, svo að yfir- leitt er erfitt að aldursgreina vaðfugla úti í náttúrunni þegar kemur fram á vetur. Hins vegar er hægt að aldurs- greina þá með því að veiða þá og handleika. Ungir vaðfuglar fella ekki flugfjaðrir (væng- og stélfjaðrir) á fyrsta hausti. Þessar fjaðrir eru eldri og slitna fyrr en hjá eldri fuglum þeg- ar líða tekur á veturinn. Mjög slitnar flugfjaðrir á vaðfuglum síðla vetrar og að vorlagi eru sterk vísbending um að fuglarnir séu á fyrsta vetri. Trítlar (Glareolidae) eru undantekning, því að þeir fella allar fjaðrir þegar á fyrsta hausti og er afar erfitt að aldursgreina þá á ytri einkennum þegar komið er fram á vetur. Vaðfuglar sem verpa norðarlega á hnettinum skipta yfir í sumarbúning síðla vetrar eða snemma vors (febrú- ar-apríl) með því að fella bolfjaðrir. Margir þeirra skrýðast fremur áber- andi varpbúningi. Tegundir sem iðka fluglistir um varptímann til að laða að maka eða verja varpsvæði fyrir keppi- nautum eru margar hverjar litskrúð- ugar að neðanverðu. Varpbúningur hjá lóum, mörgum títum, jaðrakan (Limosa limosá) o.fl. tegundum er fyrir vikið verulega frábrugðinn vetr- arbúningi. Seinni hluta sumars er varpbúningur vaðfugla orðinn mjög slitinn og skipta fullorðnu fuglarnir smám saman um allar fjaðrir á tíma- bilinu júlí-október. Sumir vaðfuglar byrja að verpa árs- gamlir og fá fullan varpbúning þegar á fyrsta vori. Aðrar tegundir, einkum hinar stærri, skipta ekki um búning á fyrsta vori eða fá aðeins ófullkominn sumarbúning. TEGUNDATAL Bjúgnefja (Recurvirostra avosetta) Til mjónefaættar (Recurvirostridae) teljast fjórar bjúgnefjutegundir (Recurvirostra spp.) og háleggir (Himantopus spp.), nú taldar þrjár tegundir. Þetta eru allt suðrænir fugl- ar og að miklu leyti bundnir við salt eða ísalt vatn. Bjúgnefjur eru háfættar og auðþekktar á löngu uppsveigðu nefi. Þær hafa sundfit og geta synt og hálfkafað líkt og buslendur. Varpútbreiðsla bjúgnefju er slitrótt í Evrópu, Afríku og Asíu, bæði með ströndum fram og langt frá sjó. Bjúgnefju fækkaði í NV-Evrópu á 19. öld, en hefur fjölgað að nýju á undan- förnum árum. Kjörlendi hennar eru opin, snögglend svæði, aðallega við grunn vötn, sjávarlón og leirur. Hún lifir aðallega á skordýrum, krabba- dýrum (m.a. marflóm og þanglúsum) og burstaormum. Bjúgnefjur eru félagslyndir fuglar og verpa í byggðum (tugir eða fáein hundruð í hverri byggð). Hvert par ver nánasta umhverfi hreiðurs fyrir öðrum bjúgnefjum, svo og fæðuöflun- arsvæði skammt frá hreiðrinu. Bjúgnefja er farfugl í norðurhluta heimkynna sinna. Þó dvelja að jafnaði um 20(X) fuglar á ströndum Norðursjáv- ar, en alls er talið að um 70 þúsund bjúgnefjur hafi vetursetu í V-Evrópu og V-Afríku (Smit & Piersma 1989). Far- tíminn síðsumars er í júlí-september, fyrstu fuglarnir snúa til sumarheim- kynna þegar um mánaðamót febrúar- mars, en flestir þó ekki fyrr en í apríl. Ein bjúgnefja hefur sést með vissu hér á landi, um fartíma að vori, og nokkrar líkur eru á að ein hafi náðst á íslandi á síðustu öld. 1. Búðareyri í Reyðarfirði, S-Múl, 3t. mars 1954 (RM2909). Magnús Guðmundsson. Náðist aðframkominn og drapst í haldi dag- inn eftir. Finnur Guðmundsson (1957). 32

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.