Náttúrufræðingurinn - 1991, Blaðsíða 68
3. mynd. Farbrautir Pg- og Pn-bylgna í jarðskorpunni og möttlinum. Thepath ofPg- and
Pn-waves in the crust and mantle.
þess að jarðskjálftabylgjur geta borist
margar mismunandi leiðir frá upptök-
um til jarðskjálftamælis. Á máli jarð-
skjálftafræðinga ber hver farbraut sér-
stakt nafn sem endurspeglar legu
hennar í jörðinni og hvers konar
bylgju er um að ræða. Nokkur dæmi
um þetta eru sýnd á 3.-6. mynd.
Ef mælir er nálægt upptökum
skjálfta eru þær P- og S-bylgjur sem
hafa farið fljótustu leið í gegnum jarð-
skorpuna mest áberandi á skjálftarit-
inu. Þær eru venjulega aðeins kallaðar
P og S (3. og 4. mynd). Eftir því sem
lengra dregur frá upptökunum dregst
S-bylgjan meira aftur úr P-bylgjunni.
Tímamuninn á bylgjunum má því nota
til að meta fjarlægð upptakanna frá
mælinum. Gróft mat á fjarlægð (í kíló-
metrum) fæst með því að margfalda
tímamuninn (í sekúndum) með töl-
unni 8. Margir kannast við það, þegar
þeir finna jarðskjálfta, að heyra lágan
þyt áður en aðaltitringurinn finnst.
4. mynd. Skjálftarit af jarðskjálftum með upptök skammt austan við Grímsey 12. sept-
ember 1988. Skjálftaritin sýna hreyfingu jarðarinnar sem fall af tíma. Tíminn gengur frá
vinstri til hægri. A) Rit úr mæli í Grímsey, um 10-15 km frá upptökum skjálftanna. Tíma-
munur á P- og S-bylgjum er aðeins 1-2 sekúndur. Útslag er mikið, en skjálftarnir standa
stutt. B) Rit úr mæli á Leirhöfn á Melrakkasléttu, um 60 km frá upptökum. Tímamunur
á P- og S-bylgjum er hér á bilinu 7-8 sekúndur. C) Rit úr mæli við Reynihlíð í Mývatns-
sveit, um 110 km frá upptökum skjálftanna. Tímamunur á P- og S-bylgjum er um 13-14
sekúndur. Báðar bylgjurnar byrja snöggt og deyja síðan út. D) Rit úr mæli á Aðalbóli í
Hrafnkelsdal, um 200 km frá upptökum. Bæði P- og S-bylgjurnar byrja með litlu útslagi
sem vex og nær hámarki nokkrum sekúndum síðar. Hugsanlega má greina hér í sundur
Pn og Pg. Erfitt er að greina hvenær S-bylgjurnar byrja. Seismograms ofearthquak.es or-
iginating in the Tjörnes Fracture Zone north of Iceland on September 12, 1988. A. Seis-
mogram frotn Grímsey at the epicentral distance of 10-15 km. B. Seismogram from Leir-
höfn at the distance of 60 km. C. Seismogram from Reynihlíð at the distance of 110 km.
D. Seismogram from Aðalból at the distance of 200 km. Clear P- and S-waves can be
seen on all the seismograms with the time difference increasing with the epicentral dista-
nce. Pg- and Pn-waves can possibly be distinguished on the last seismogram.
62