Náttúrufræðingurinn - 1991, Qupperneq 78
grein fyrir reikningum félagsins og
voru þeir samþykktir, einnig skýrði
gjaldkeri frá reikningum Minningar-
sjóðs Eggerts Olafssonar, Minningar-
sjóðs Stefáns Stefánssonar og dánar-
gjafar dr. Helga Jónssonar.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir gaf ekki
kost á sér aftur til formanns og var
Freysteinn Sigurðsson jarðfræðingur
kjörinn formaður félagsins. Aðrir sem
úr stjórn áttu að ganga voru Ingólfur
Einarsson og Björg Þorleifsdóttir.
Ingólfur gaf kost á sér aftur og var
endurkjörinn. Björg baðst undan end-
urkjöri og var Gyða Helgadóttir, sem
áður sat í varastjórn, kjörin í hennar
stað. Einar Egilsson var endurkjörinn
í varastjórn en auk hans var Þóra Elín
Backmann hjúkrunarfræðingur kosin
varamaður. Magnús Árnason og
Sveinn Ólafsson voru kosnir endur-
skoðendur en Þór Jakobsson sem áð-
ur var varaendurskoðandi gaf ekki
kost á sér aftur og var Ólafur Jónsson
kosinn í hans stað.
Á fundinn kom Sigurður H. Richt-
er, fulltrúi félagsins í dýraverndar-
nefnd, og gerði grein fyrir störfum
nefndarinnar á árinu. Fulltrúi félags-
ins í fuglaverndarnefnd, Agnar Ing-
ólfsson, gat ekki komið á fundinn en
formaður gerði grein fyrir samantekt
hans á störfum nefndarinnar.
Þá greindi formaður frá starfi
nefndar um byggingu náttúruhúss og
endurskoðun laga nr. 48/1965 um al-
mennar náttúrurannsóknir og Nátt-
úrufræðistofnun íslands. Nefndin var
skipuð af Svavari Gestssyni mennta-
málaráðherra 13. júní 1989 og áttu í
henni sæti Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður (formaður), Eyþór Ein-
arsson grasafræðingur (tilnefndur af
Náttúrufræðistofnun íslands), Jóhann
Pálsson garðyrkjustjóri (tilnefndur af
Reykjavíkurborg), Sveinbjörn Björns-
son prófessor (tilnefndur af Háskóla
íslands), Kristín Einarsdóttir alþingis-
maður, Þórunn Hafstein lögfræðingur
(fulltrúi menntamálaráðuneytis) og
Þóra Ellen Þórhallsdóttir. Verkefni
nefndarinnar voru að semja drög að
frumvarpi til nýrra laga um náttúru-
rannsóknir og Náttúrufræðistofnun ís-
lands og að kanna möguleika að sam-
komulagi um byggingu Náttúrufræði-
húss á höfuðborgarsvæðinu með aðild
Náttúrufræðistofnunar íslands, Há-
skóla íslands, Reykjavíkurborgar og
hugsanlega fleiri aðila. Nefndin hefur
alls haldið um 30 fundi. Skýrði Þóra
Ellen frá helstu þáttum í tillögum
nefndarinnar.
Tillaga stjórnar um að árgjald fyrir
árið 1990 skyldi vera kr. 2300, var
samþykkt.
FRÆÐSLUFUNDIR
Félagið gekkst fyrir sjö fræðslu-
fundum í stofu 101 í Odda og voru efni
og fyrirlesarar eftirfarandi:
febrúar: Margrét Guðnadóttir: Eyðni-
veiran og eiginleikar hennar.
Fundargestir voru 62.
mars: Hreinn Haraldsson: Markarfljót
og Landeyjar. Fundargestir voru
80.
apríl: Áslaug Geirsdóttir: Setlaga-
rannsóknir og hugsanleg tengsl við
upphaf ísaldar á Vesturlandi.
Fundargestir voru 55.
júní: Ólafur Ingólfsson: Af mörgæs-
um, jöklum og mannlífi á Suður-
skauti. Fundargestir voru um 70.
október: Einar H. Guðmundsson:
Heimsmynd nútímans. Fundargest-
ir voru 128.
nóvember: Kjartan Magnússon og Ól-
afur Karvel Pálsson: Tengsl þorsks
og loðnu. Fundargestir voru um
30.
janúar: Björg Þorleifsdóttir: Svefn og