Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 2
2 15. maí 2009 FÖSTUDAGUR BRETLAND Breska þingmanninum og fyrrverandi ráðherranum Elliot Morley hefur verið vikið tímabundið úr Verkamanna- flokknum vegna ásakana um alvarlegt fjármálamis- ferli, að því er fram kemur á vef BBC. Morley segir að fyrir mis- tök hafi breska þingið greitt samtals sextán þúsund pund, jafnvirði ríflega þriggja milljóna króna, af hús- næðisláni hans eftir að lánið var að fullu greitt upp. Gordon Brown, formaður Verkamannaflokksins, sagði í gær að væru ásakanirnar rétt- ar yrði Morley líklega rekinn úr flokknum. - bj Guðmundur, lumarðu ekki á neinum töfraþulum sem gera sama gagn? „Nei, ég held að það sé bara best að plástra þjóðina fyrir neikvæðni.“ Guðmundur H. Bragason, fyrrverandi sjónvarpsþulur, selur nú svokallaða Lifewave-orkuplástra sem eiga að vera allra meina bót. Þeir eru þó til sem telja plástrana bara vera tómt kukl. STJÓRNMÁL „Þrjú okkar úr Borg- arahreyfingunni ætla að vera úti á Austurvelli á meðan allir eru að láta messa yfir sér,“ segir Birg- itta Jónsdóttir, formaður þing- flokks Borgarahreyfingarinnar. Samkvæmt venju ganga alþingis menn til guðsþjónustu í Dómkirkjunni áður en nýtt þing verður sett í dag. Birgitta segir að hún sjálf, Þór Saari og Mar- grét Tryggvadóttir, þrír af fjór- um alþingismönnum Borgar- hreyfingarinnar, ætli ekki að sitja messuna. Fjórði þingmaður Borgarahreyfingarinnar er Þrá- inn Bertelsson. „Okkur finnst ekki við hæfi að blanda saman trúmálum og þing- störfum og gerum athugasemd við að það fyrsta sem þing geri þegar það komi saman sé að fara í messu,“ segir Birgitta. Að sögn Birgittu ætla nokkrir þingmenn úr öðrum flokkum einnig að sniðganga messuna í Dómkirkjunni. „Það hefur verið venjan að fólk feli sig bara inni í þinghúsi ef það fer ekki í dómkirkjuna. Við erum aðeins að rjúfa leyndina yfir því. Það eru svo margar hefðir sem eru kannski ekki viðeigandi í dag,“ segir Birgitta Jónsdóttir. Þess má geta að Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, býður alþingismönnum á Hótel Borg til að hlýða á hug- vekju Jóhanns Björnssonar heim- spekings áður en þingið er sett. Jóhann mun þar fjalla um mikil- vægi góðs siðferðis í þágu þjóðar. - gar Þrír af fjórum þingmönnum Borgarahreyfingarinnar og nokkrir aðrir þingmenn: Hunsa messu í Dómkirkjunni BIRGITTA JÓNSDÓTTIR HEILBRIGÐISMÁL Sérstakur syk- urskattur á sykraða gosdrykki mun ekki gagnast í baráttunni gegn tannskemmdum, og mikil einföldun er að skella skuldinni af hrakandi tannheilsu ung- menna á sykraða gosdrykki, segir í frétt á vef Samtaka iðn- aðarins. Þar er bent á að neysla ósykraðra gosdrykkja hafi auk- ist á kostnað hinna undanfarið án sérstakar skattlagningar rík- isins. Þá hafi engin söluaukning orðið á sykruðum gosdrykkjum þegar verð hafi lækkað umtals- vert fyrir tveimur árum. Sykur- skattur eins og heilbrigðis- ráðherra íhugi sé skattur á framleiðendur og fjölskyldurnar í landinu. - bj Samtök iðnaðarins ósátt: Sykurskattur gagnast ekki DÓMSMÁL Hálfþrítugur maður hefur verið ákærður fyrir hrotta- legt ofbeldi gegn systur sinni á heimili hennar í Reykjanesbæ í júní í fyrra. Honum er gefið að sök að hafa hrint systur sinni á sófaborð þannig að glerplata á borðinu brotnaði, kýlt hana í andlitið, lamið höfði hennar við píanó, tekið hana tvívegis hálstaki þannig að hún missti meðvitund og þá sparkað ítrekað í hana á gólfinu, stungið hana í lærið með hnífi og loks hent í hana tölvuskjá. Systirin hlaut ýmsa áverka og rifbeinsbrotnaði. Þá er hann ákærður fyrir að hóta henni lífláti á meðan og loks að eyðileggja farsíma hennar. Hún krefst ríflega 1.600 þúsund króna í skaðabætur. - sh Ákærður fyrir misþyrmingar: Barði systur sína hrottalega DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað- fest sýknudóm yfir ungum manni sem var handtekinn undir stýri með niðurbrotsefni kannabiss í þvagi sínu. Hann bar því við að aðrir hefðu reykt kannabis nálægt honum, en ekki hann sjálf- ur, og hann hafi ekki mátt vita að efnið myndi mælast í þvagi hans af þeim sökum. Á þetta féllst Hæstiréttur. Maðurinn segist hafa verið í bíl með nokkrum öðrum sem reyktu stíft í lengri tíma. Dómur- inn sýknar manninn, jafnvel þótt sérfræðingur í eiturefnafræðum hafi komið fyrir réttinn og sagt það mjög ólíklegt að niðurbrots- efnið myndi mælast í þvagi eftir slíkar óbeinar reykingar, þótt hann gæti ekki útilokað það með öllu. Eftir þrjá hæstaréttardóma sem féllu í síðustu viku er komið fram skýrt dóma- fordæmi fyrir því að svipta menn ekki öku- rétti sem aka með leifar af kannabisefnum í þvagi sínu en ekki blóði, og eru þar af leið- andi ekki undir áhrifum. Nið- urbrotsefnin geta greinst í þvagi nokkrum vikum eftir að efnisins er neytt. Menn eru eftir sem áður sektaðir fyrir athæfið lögum sam- kvæmt. Valtýr Sigurðsson ríkissaksókn- ari sagði í samtali við Fréttablað- ið í vikunni að breyta þyrfti lög- unum á þá leið að ekki yrði lengur ólöglegt að aka með efnið aðeins í þvagi. Enn fremur taldi Valtýr það líklegt að það myndi færast mjög í aukana að menn bæru við óbeinum reykingum í málum sem þessum, færi svo að Hæstirétt- ur staðfesti sýknudóminn – sem hann hefur nú gert. - sh Hæstiréttur sýknar mann af akstri með leifar af kannabisefnum í þvagi: Óbeinar reykingar eru gild afsökun ENGIN VÍMA – SAMT ÓLÖGLEGT Niðurbrotsefnið tetrakannabínól- sýra getur mælst í þvagi þeirra sem neyta kannabiss vikum saman eftir neysluna. Áhrif kannabisreykinga renna hins vegar af mönnum um leið og efnið fer úr blóði þeirra. Hingað til hefur verið nóg að ökumenn mælist með kannabisleifar í þvagi til að þeir séu sviptir ökurétti – eins og kveðið er á um í lögum – en það er nú að breytast. ATVINNUMÁL Ráðningarsamningar 22 lögreglumanna á höfuðborgar- svæðinu renna út í dag og verða ekki framlengdir. Lögreglumenn- irnir voru ráðnir þegar búsáhalda- byltingin stóð sem hæst í janúar. Samningarnir hafa verið fram- lengdir einu sinni, en nú er féð uppurið. „Við höfum verulegar áhyggjur af þessari fækkun,“ segir Snorri Magnússon, formaður Landssam- bands lögreglumanna. Lögreglu- mönnum í borginni hafi þegar fækkað verulega frá því að emb- ættin á höfuðborgarsvæðinu voru sameinuð í ársbyrjun 2007. Á höfuð- borgarsvæðinu öllu starfi nú færri en í Reykjavík einni fyrir samein- inguna. Arinbjörn Snorrason, formaður Lögreglufélags Reykjavíkur, segir nokkra af þeim sem nú hætta hafa fengið tímabundna vinnu annars staðar, en um helmingur horfi fram á atvinnuleysi. Þá hafi ein- hverjum verið boðið hálft starf á álagstímum. Arinbjörn segir ábyrgðina fyrst og fremst liggja hjá stjórnvöldum. Hann gagnrýnir þó einnig yfir- stjórn lögreglunnar vegna fyrir- hugaðra skipulagsbreytinga, sem fela í sér að settar verði á fót fimm sjálfstæðar lögreglustöðvar. „Við viljum meina að áherslurnar liggi ekki alveg á réttum stöðum og að það hefði mátt hinkra með þess- ar breytingar og nýta fjármagnið frekar í grunnlöggæsluna.“ Lög- reglufélagið hafi kallað eftir upp- lýsingum um kostnað við breyting- arnar en engin svör fengið. Fækkunin kemur á versta tíma að mati þeirra Snorra og Arin- bjarnar. Fjöldi auðgunarbrota á tímabilinu frá því í október þar til í mars er til dæmis tvöfaldur á við sama tíma fyrir ári. Auk þess segir Arinbjörn menn finna fyrir því að málum vegna vandamála á heimilum fólks hafi fjölgað. Þá hefur Europol ítrekað varað við því að draga úr löggæslu á tímum niðursveiflu. „Við höfum engan valkost, við bara verðum að takast á við verk- efnið,“ segir Stefán Eiríksson, lög- reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, spurður hvort embættið ráði við missinn. „Það er auðvitað mjög erfitt að missa þetta öfluga fólk frá okkur,“ segir hann. Hins vegar standi allar ríkis- stofnanir frammi fyrir fjárhags- vanda. „Við reynum hvað við getum að sinna þeim verkefnum sem okkur ber lögum samkvæmt en það er ekki hægt að neita því að eftir því sem fækkar hjá okkur þá dregur sjálfkrafa úr þjónustunni.“ stigur@frettabladid.is Tuttugu hætta hjá lögreglunni í dag Færri lögreglumenn starfa nú á öllu höfuðborgarsvæðinu en í Reykjavík einni fyrir rúmum tveimur árum. „Við höfum verulegar áhyggjur,“ segir formaður sambands lögreglumanna. Þeir gagnrýna stjórnvöld og yfirstjórn lögreglunnar. MÓTMÆLI VIÐ ALÞINGISHÚSIÐ Lögreglu- mennirnir 22 voru ráðnir þegar búsáhalda- byltingin stóð sem hæst. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STEFÁN EIRÍKSSON ARINBJÖRN SNORRASON SNORRI MAGNÚSSON GORDON BROWN Breskur þingmaður í vanda: Vikið úr Verka- mannaflokki BÚRMA, AP Herforingjastjórnin í Búrma hefur ákært Aung Sang Suu Kyi, friðarverðlaunahafa Nóbels og leiðtoga stjórnarand- stöðunnar í Búrma, fyrir að hafa brotið skilmála stofufangelsis, sem hún hefur verið í árum saman. Brotið felst í því að bandarísk- um manni tókst að komast með leynd inn í hús hennar, eftir að hann hafði synt yfir vatn sem er á bak við húsið. Hún átti að losna úr stofufang- elsinu 27. maí næstkomandi. Her- foringjastjórnin er nú sökuð um að notfæra sér þetta tilvik til að halda henni lengur í fangelsi. - gb Maður kom í heimsókn: Suu Kyi ákærð fyrir brot UMHVERFISMÁL Hefja á skógrækt og uppgræðslu í Selfjalli í Lækjar- botnalandi í samvinnu Kópavogs- bæjar, Skógræktarfélags Kópa- vogs, Skógræktarfélags Íslands og Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs. „Miðað er við að framkvæmdin standi yfir til ársins 2020 og nái til svæðis, sem er alls um 145 hekt- arar lands. Áætlað er að árlega verði gróðursettar liðlega tólf þúsund trjáplöntur á svæðinu og uppgræðsla nái til um sex hektara lands á ári hverju,“ segir í greinar- gerð sem lögð var fram í bæjarráði Kópavogs. - gar Samstarf í Lækjarbotnum: Rækta skóg á 145 hekturum VALTÝR SIGURÐSSON Ákærðir fyrir líkamsárás Tveir ungir Hvergerðingar hafa verið ákærðir fyrir að hafa ráðist á þriðja manninn í félagsheimilinu í Árnesi. Maðurinn marðist töluvert og krefst rúmlega 1.200 þúsund króna í bætur. DÓMSTÓLAR SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.