Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 10
10 15. maí 2009 FÖSTUDAGUR
ÁSTRALSKUR FRUMBYGGI Í LONDON
Major Sumner heitir hann og situr
fyrir utan breska þjóðminjasafnið, þar
sem geymdar eru jarðneskar leifar
ástralskra frumbyggja. Ástralarnir vilja
fá líkamsleifarnar heim til Ástralíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Þú getur alltaf treyst
á prinsinn
Hlíðasmára 8 • 201 Kópavogi • s: 554 7200
www.hafid.is
UTANRÍKISMÁL Í stjórnarsáttmála
nýrrar ríkisstjórnar er rætt um
að byggja upp pólitísk tengsl við
heimastjórn Palestínu.
Sveinn Rúnar Hauksson, for-
maður Íslands-Palestínu, fagnar
því en vonar að sáttmálinn sé fyrsta
skrefið í átt að pólitískum tengslum
við stjórnvöld á Gasa líka.
„Það er mikilsvert að Palestínu-
mál séu formlega á dagskrá ríkis-
stjórnarinnar,“ segir hann. „En
það sem skiptir máli núna er að
ganga lengra. Íslensk stjórnvöld
hafa hingað til einungis rætt við
stjórnvöldin í Ramallah, ekki ríkis-
stjórnina á Gasa,“ segir Sveinn
Rúnar.
Ósamræmi sé í því að vilja
styðja sjálfsákvörðunarrétt þjóð-
ar og neita um leið að virða úrslit
kosninga. „Ríkisstjórnin ætti því
sem allra fyrst að koma á stjórn-
málasambandi við stjórnina á
Gasa, sem er með lýðræðislegan
meirihluta á bak við sig,“ segir
hann.
Hamas-samtökin fengu meiri-
hlutakosningu í Palestínu 2006.
Síðan hafa þau verið einangruð af
vestrænum ríkjum, öðrum en Nor-
egi, og kom til borgarastríðs milli
Hamas og Fatah.
„En til að byrja með ættu allir
íslenskir þingmenn að geta sam-
einast um að gera allt sem þeir
geta til að þingmenn og ráðherr-
ar Hamas verði leystir úr haldi,“
segir Sveinn Rúnar. Þeir hafi verið
fangelsaðir fyrir það eitt að vera
þingmenn Hamas. - kóþ
Formaður Íslands-Palestínu fagnar stjórnarsáttmálanum en vill ganga lengra:
Ættum að virða kosningarnar
SVEINN RÚNAR Hvetur stjórnina til að
stíga skrefið til fulls og virða niðurstöðu
þingkosninga í Palestínu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STOKKHÓLMUR, AP Sömu flutningaflugvélarnar og
notaðar eru til vopnasmygls á átakasvæðum Afríku
eru einnig notaðar til að flytja hjálpargögn fyrir
alþjóðlegar hjálparstofnanir. Að þessari niðurstöðu
er komist í nýrri skýrslu frá Alþjóðlegu friðarrann-
sóknastofnuninni í Stokkhólmi, SIPRI.
Samkvæmt skýrslunni eru níutíu prósent af þeim
flugvélum sem staðnar eru að því að flytja ólögleg-
ar vopnasendingar líka leigð af hjálparstofnunum
Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og aðild-
arríkja NATO, auk þekktra óháðra hjálparsamtaka.
„Verst er þetta í Súdan, þar sem öll þau fyrir-
tæki sem hafa komist á skrá hjá SÞ fyrir þátttöku
í vopnasmygli hafa einnig verið notuð til að flytja
hjálpargögn,“ segir Hugh Griffiths, einn höfunda
skýrslunnar.
Talsmenn Alþjóða Rauða krossins og Lækna án
landamæra brugðust strax við þessum niðurstöðum
með því að segja það vera ógjörning að vita hvað
þær flugvélar, sem leigðar væru til að flytja hjálpar-
gögn, væru notaðar í þess utan.
SIPRI hefur sagt að flutningar með flugi gegni
lykilhlutverki í dreifingu léttvopna til stríðandi aðila
á átakasvæðum álfunnar. Í sumum tilvikum skipti
hjálparstofnanir áfram við flugfélög sem sett hafi
verið á bannlista vegna þátttöku í vopnasmygli. - aa
Athygli vakin á að smyglvopn og hjálpargögn eru flutt með sömu flugvélum í Afríku:
Flest flugfélög í vopnasmygli
VARPAÐ ÚR FLUGVÉL Hjálpargögnum er varpað úr sömu vélum
og eru notaðar til vopnasmygls. NORDICPHOTOS/AFP
KAUPMANNAHÖFN Norðmaðurinn
Andreas Bull-Gundersen lést
eftir að hann fékk bjórglas
í höfuðið þegar hann var að
skemmta sér með vinum sínum
í Kaupmannahöfn um helgina.
Vinir piltsins segja hann hafa
verið blæðara og að starfsmenn
bráðavaktarinnar hafi ekki skilið
þá. „Við sögðum aftur og aftur að
hann væri blæðari en hjúkrunar-
fræðingurinn skildi það ekki,“
segir vinur unga Norðmannsins.
„Eftir að hann fékk bjórglasið í
höfuðið fórum við á spítalann en
fengum enga hjálp. Og lögreglan
sagði bara að hann hefði bara
fengið kúlu á ennið.“ - ghs
Kaupmannahöfn:
Danirnir skildu
ekki norskuna
EFNAHAGSMÁL Franek J. Rozwadow-
ski, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, segir sjóðinn ekki telja
svigrúm til frekari lækkana stýri-
vaxta. Á síðasta vaxtaákvörðunar-
degi Seðlabankans var boðuð veg-
leg vaxtalækkun í júní.
„Stýrivextir á Íslandi eru ekki
háir þegar búið er að leiðrétta þá
gagnvart áhættu,“ segir Rozwadow-
ski. Hann flutti erindi á ársfundi
Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF)
í gær.
„Ef þið viljið að fólk haldi áfram
fjárfestingum sínum í krónum er
ljóst að leikinn yrði hættulegur
leikur með því lækka stýrivexti of
hratt og í of stórum skrefum,“ segir
hann jafnframt.
Í viðtali við Fréttablaðið árétt-
ar Rozwadowski að horfa verði á
mögulega lækkun stýrivaxta í sam-
hengi við markmið samkomulags
ríkisins og AGS um aðgerðir í efna-
hagsmálum. Þá sé líka ljóst að á síð-
ustu vikum hafi krónan gefið eftir
og sé nú með veikasta móti eftir
að fjármálakreppan brast á. „Við
sjáum ekki að hægt sé að lækka
stýrivexti frekar á þessu stigi. Var-
kárni er lykilatriði,“ segir hann og
bendir um leið á að bið sé á að áhrif
vaxtaákvarðana skili sér að fullu.
„Veruleg lækkun upp á 250 punkta
er nýafstaðin og við þurfum að sjá
og meta áhrif hennar. Staðreynd-
irnar eins og þær blasa núna við
ýta ekki undir frekari lækkun.“
Franek Rozwadowski áréttar þó
að peningastefnunefnd Seðlabank-
ans sé sjálfstætt stjórnvald. Spurn-
ingunni um hver áhrifin kunni að
vera á samstarf stjórnvalda og
AGS verði ekki tekið tillit til varn-
aðarorða sjóðsins geti hann ekki
svarað. „Stýrivaxtastefnan er háð
mati. Vonandi hefur nefndin í huga
möguleg áhrif á gengi krónunnar.
Áætlun stjórnvalda og AGS leggur
áherslu á stuðning við hana.“
Að sögn Rozwadowski eru í
fjölda tilvika á gjaldeyrismarkaði,
þrátt fyrir gjaldeyrishöft, teknar
ákvarðanir um hvort fólk heldur
sig við krónur eða færir sig í annan
gjaldeyri. „Og þar hafa stýrivext-
irnir áhrif. Eftir því sem vextirn-
ir lækka eykst líka hvati til að fara
framhjá þeim.“
Sjónarmið AGS, líkt og fram kom
í ræðu Rozwadowski í gær, er að
fyrir haustið eigi að vera hægt að
aflétta að fullu gjaldeyrishöftum
á nýjar fjárfestingar. „Þetta telj-
um við mikilvægasta þáttinn í að
aflétta höftum á gjaldeyrismark-
aði og lykilatriði í endurreisn efna-
hagslífsins. Þetta þýðir hins vegar
ekki að öllum höftum verði aflétt.
Eldri fjárfestingar verða áfram
háðar hömlum.“ Þeim segir Roz-
wadowski hægt að aflétta eftir því
sem gjaldeyrisstaða Seðlabankans
batnar. Það gæti þó tekið alllangan
tíma, tvö til þrjú ár.
Afnám hafta í haust hafi hins
vegar snertiflöt við stýrivaxta-
stefnuna. „Hafi höftum verið aflétt
og stýrivaxtastigið er þá ekki nógu
hátt til þess að halda fjárfesting-
um í krónum, geta áhrifin orðið
þeim mun meiri á gengi krónunnar.
Mikilvægt er að koma sér ekki í þá
stöðu að hafa gengið of langt.“
Rozwadowski segir áætlun AGS
og ríkisins ganga út á að velja þá
leið út úr vandanum sem minnst-
an tilkostnað hafi, en allar séu þær
erfiðar. „Skoðunin sem fram kemur
í áætluninni er að meiri kostnaður
yrði af því að missa tökin á geng-
inu og þar með verðbólgu. Allt er
þetta spurning um að velja rétta
leið og áætlun stjórnvalda leggur
áherslu á að ná tökum á gengi krón-
unnar.“
Svein Harald Øygard seðla-
bankastjóri segir Seðlabanka
Íslands hafa átt ágætar viðræð-
ur við AGS um stefnu í peninga-
málum. „Bankinn þekkir því sjón-
armið sjóðsins vel og tekur mið
af þeim og öðrum sjónarmiðum
þegar staðan er metin. Ákvörðun
um stýrivexti er tekin sjálfstætt af
peningastefnunefndinni í samræmi
við lögin um Seðlabanka Íslands,“
segir hann. olikr@frettabladid.is
SFF-DAGURINN Kaarlo Jännäri, finnskur bankasérfræðingur, flytur erindi á degi Samtaka fjármálafyrirtækja, í fundarsal Kaupþings í
Borgartúni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Höftum aflétt þegar í haust
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur ekki svigrúm til frekari lækkana stýrivaxta. Gjaldeyrishöftum á nýjar
fjárfestingar verður aflétt í haust. Á síðasta vaxtaákvörðunardegi var boðuð veruleg lækkun vaxta í júní.
HJÓLAR Þó að heimilið hafi verið lagt
í rúst á Ismail enn hjól og hjálm sem
aðdáandi sendi honum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
INDLAND, AP Tíu ára stjarna kvik-
myndarinnar Viltu vinna millj-
arð er heimilislaus eftir að
lögreglumenn vopnaðir bambus-
prikum hröktu um þrjátíu fjöl-
skyldur út úr kofum í fátækra-
kerfi í Mumbai á Indlandi og
jöfnuðu heimili þeirra við jörðu.
Azharuddin Mohammed Ismail
skaut upp á stjörnuhimininn eftir
að hann lék aðalpersónu kvik-
myndarinnar Viltu vinna millj-
arð. Gott gengi myndarinnar í
kvikmyndahúsum hefur lítið gert
fyrir ungar stjörnur hennar, sem
enn búa í fátækrahverfinu þrátt
fyrir loforð framleiðenda mynd-
arinnar um fjárhagsstuðning. - bj
Milljarðastjarna heimilislaus:
Kofinn jafnað-
ur við jörðu
FÉLAGSMÁL Starfsmenn Orkuveitu
Reykjavíkur eru afar ósáttir við
800 milljóna króna arðgreiðslur
félagsins til sveitarfélaganna sem
eiga veituna. Laun starfsmanna
voru nýverið lækkuð, og krefjast
þeir þess að launalækkunin gangi
til baka, að því er fram kom í
fréttum Stöðvar 2.
Arðgreiðslurnar eru lægri en
fyrirhugað var, og launalækkun
mun ekki ganga til baka, sagði
Guðlaugur Gylfi Sverrisson,
stjórnarformaður OR. - bj
Ósáttir við arðgreiðslur OR:
Launalækkun
gangi til baka