Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 22
„Við höfum verið þarna þrír ætt- liðir saman í kór síðan í haust,“ segir Salóme Ásta Guðmundsdóttir heimilislæknir, sem syngur í kórn- um Vox Academica ásamt föður sínum og dóttur. „Pabbi minn, Örn Guðmundsson, byrjaði í haust og dóttir mín, Erla Steinunn Guðmundsdóttir, byrjaði þá líka en ég var búin að vera leng- ur í þessum kór,“ segir Salóme Ásta. Svo skemmtilega vill til að foreldr- ar hennar kynntust í kórastarfi. „Pabbi og mamma kynntust í Pólýf- onkórnum árið 1958 og ég fæddist nokkrum árum síðar. Svo kynntist ég mínum manni líka í kór en við hittumst í Hamrahlíðar kórnum og þá fæddist Erla Steinunn nokkrum árum seinna,“ segir hún og hlær. „Þetta hefur því verið mjög dramat- ískt kórastarf hjá okkur og afdrifa- ríkt. Nú er bara spurning hvað ger- ist hjá dóttur minni.“ Salóme Ásta viðurkennir að gaman sé að stunda kórastarfið saman. „Ég og dóttir mín erum samferða á kóræfingar og ég hitti pabba oftar núna en annars. Að mörgu leyti er þetta því þægilegt og gaman að þessu.“ Um þessar mundir æfir kór- inn eitt af stórvirkjum tónbók- menntanna en Vox Academica flytur ásamt einsöngvurum og hljómsveit h-moll messu Bachs í Langholtskirkju laugardaginn 16. maí næstkomandi. „Þetta er gríðarstórt verk og höfum við æft síðan rétt eftir jól. Verkið er mikil upplifun og frábært að fá að kynnast því. Þetta er eitt af mögnuðustu verkum tónbók- menntanna að mínu mati,“ segir Salóme Ásta heilluð. Kammer- sveitin Jón Leifs Camerata leik- ur með kórnum og stjórnandi er Hákon Leifsson. Kórnum til full- tingis er einvalalið einsöngvara: Hlín Pétursdóttir Behrens sópr- an, Ingunn Ósk Sturludóttir mezz- ósópran, Gissur Páll Gissurarson tenór, Ágúst Ólafsson barítón og Jóhann Smári Sævarsson bassi. Miðaverð er 4.000 krónur og fást miðar í forsölu hjá 12 Tónum og kórfélögum en einnig er hægt að panta miða með því að senda tölvu- póst á voxacademica@gmail.com eða fara á heimasíðu kórsins www. voxacademica.net. Einungis er um eina tónleika að ræða. „Kórinn er ekki á neinum styrkjum þannig þetta þarf að greiðast upp með sölu aðgöngumiða og kostnaðarsamt er að setja upp marga tónleika,“ segir Salóme Ásta og hvetur sem flesta til að nýta sér tækifærið og hlýða á hina glæstu tónsmíð Bachs. „Hver einasta kóræfing verður eiginlega eins og lítil hugleiðslustund. Verkið krefst heilmikillar einbeitingar og fyrir mig, sem vinn ekki við tón- list dags daglega, er þetta mikil upplifun. Hins vegar er mikið af tónlistarfólki í kórnum sem hjálp- ar okkur hinum mikið,“ segir hún og brosir. hrefna@frettabladid.is Þrír ættliðir saman í kór Kórinn Vox Academica flytur eitt af stórvirkjum tónbókmenntanna, h-moll messu Bachs, í Langholts- kirkju 16. maí næstkomandi. Svo skemmtilega vill til að þar syngja þrír ættliðir saman. ÞJÓNUSTUDAGUR TOYOTA verður haldinn í fimmta sinn á laugardag. Þar geta allir Toyota-eigendur fengið bílinn þveginn frítt. Dagskráin stendur frá 11 til 15 í húsakynnum Toyota í Kópavogi, Reykjanesbæ, á Ísafirði, Selfossi og Akureyri. Þá er boðið upp á grill og gos. Erla Steinunn Guðmundsdóttir, Salóme Ásta Arnardóttir og Örn Guðmundsson syngja öll saman í Vox Academica en auk þess eru þau tengd ættarböndum þar sem Salóme er dóttir Arnar og Erla dóttir Salóme. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Íþróttasamband Íslands var stofnað 17. maí árið 1979 og er því þrjátíu ára í ár. Af því tilefni verður opið hús í Krika við Ell- iðavatn (húsi Sjálfsbjargar) á sunnudaginn frá klukkan 14 til 17. Veitingar verða í boði og eru allir velkomnir. Lalli töfra- maður mætir í afmælisveisluna klukkan 15 og skemmtir gest- um. Í dag hefst einnig Sambandsþing ÍF á Radisson SAS Hóteli Sögu og lýkur annað kvöld. Þar verða meðal annars heiðraðir íþróttamenn sem hafa unnið til verðlauna á stórmótum. Íþróttasamband fatlaðra á tímamótum ÞRJÁTÍU ÁR ERU LIÐIN FRÁ STOFNUN ÍÞRÓTTASAMBANDS FATLAÐRA OG VERÐUR TÍMAMÓTUNUM FAGNAÐ Á SUNNUDAG. Frá nýárssundmóti barna og unglinga í janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.