Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 6
6 15. maí 2009 FÖSTUDAGUR Vogaskóli fagnar 50 ára afmæli sínu með hátíðardagskrá í skólanum, laugardaginn 16. maí n.k. Dagskráin hefst kl. 13:00 og henni lýkur kl. 16:00. Okkur þætti vænt um ef þú heiðraðir okkur með nærveru þinni þennan dag. Vogaskóli 50 ára Minna kólesteról www.ms.is Benecol er náttúrulegur mjólkurdrykkur sem lækkar kólesteról í blóði. Mikilvægt er að halda kólesterólgildum innan eðlilegra marka því of hátt kólesteról í blóði er einn helsti áhættuþáttur kransæðasjúkdóma. Ein flaska á dag dugar til að ná hámarksvirkni. SVEITARFÉLÖGIN Hagræðing hjá sveitarfélögunum á næstu árum verður ekki gerð nema með breyt- ingum hjá grunnskólunum, virð- ist vera útbreidd skoðun sveitar- stjórnarmanna. Finna þarf örfína línu í hagræðingu á næstu miss- erum, því ef skref í sparnaðarátt verða of stór þá er sú hætta raun- veruleg að samfélagið staðni og vítahringur myndist. Þetta var meðal þess sem kom fram á samráðsfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga á mið- vikudag. Ljóst er að staða sveitar- félaganna er verri en áætlan- ir gerðu ráð fyrir um áramót. Skuldirnar nema um 240 millj- örðum króna. Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri í Árborg, sagði að kjarasamningar við grunnskóla- kennara væru einfaldlega með þeim hætti að sveitarfélögin réðu ekki við þá. „Ég vil hafa vel laun- aða og hamingjusama kennara fyrir börnin okkar en þetta er einfaldlega of þungt fyrir okkur.“ Ragnheiður sagðist vita að við- ræður SÍS og ríkisins við samtök kennara um að endurskoða lög og þar með kjarasamninga hefðu ekki skilað árangri. „Það er ein- faldlega ekki ásættanlegt vegna þess að niðurskurður hjá sveitar- félögunum verður ekki gerður nema tekið sé á þessu máli.“ Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Vogum, benti á að fræðslumálin tækju langmest af tekjum sveitar- félaganna, og launakostnaðurinn væri þar hvað mestur. „Ég held að við náum engum árangri til lengri tíma nema endurskoða skipulagið inni í grunnskólunum.“ Hann sagði það umhugsunarefni að árangur skólanna væri ekki í samræmi við fjármagn og kenn- arar væru ósáttir með laun sín. „Það hlýtur eitthvað að vera að og við verðum að leggjast yfir það hvar sóunin er.“ Ragnheiður gerði að umtals- efni þá stefnu nýrrar ríkisstjórn- ar að hæstu laun hjá ríkinu verði aldrei hærri en laun forsætisráð- herra. „Hafa sveitarstjórnir efni á að borga hærri laun en forsætis- ráðherralaun, ég spyr? Við höfum þau hærri í Árborg en höfum ekki efni á því, alla vega ekki eins og þetta er núna.“ Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri hafði uppi viðvörunar- orð til sveitarstjórnarmanna á fundinum. Hún benti á að sú hætta væri fyrir hendi að sam- félagið lamaðist yrði gengið of langt í launalækkunum og skatta- hækkunum. svavar@frettabladid.is Skólakerfið of dýrt fyrir sveitarfélögin Sú skoðun er uppi á vettvangi Sambands sveitarfélaga að nauðsynleg hagræð- ing náist ekki nema með uppstokkun á grunnskólunum. Bæjarstjórinn í Árborg segir að sveitarstjórnir eigi að skoða stefnu ríkisins í launamálum. FOLDASKÓLI Grunnskólarnir eru stærsti útgjaldaliður sveitarfélaganna. Sveitarstjórnar- menn telja margir að þar verði að ráðast í sparnaðaraðgerðir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA RÓBERT RAGNARSSON RAGNHEIÐUR HERGEIRSDÓTTIR KÍNA, AP Zhao Ziyang, fyrrverandi forsætisráðherra Kína, segir að Deng Xiaoping, sem var æðsti leið- togi landsins, hafi upp á sitt eins- dæmi tekið ákvörðun um að láta herinn taka af fullri hörku á mót- mælendum á Torgi hins himneska friðar í Peking í júní árið 1989. Sjálfur segist Zhao hafa ráðlagt Deng að gæta hófs: „Ef við förum í hart gegn fjöldanum, þá gæti ástandið orðið hættulegt og við gætum gjörsamlega misst stjórn- ina,“ segist Zhao hafa sagt á fundi 17. maí árið 1989. Þetta kemur fram í 300 blaðsíðna bók sem unnin er upp úr 300 klukku- stunda löngum segulböndum, sem Zhao tókst að tala inn á með leynd, þótt hann hafi verið undir ströngu eftirliti í stofufangelsi í Peking. Talið er að aðgerðir hersins helg- ina 3. og 4. júní þetta ár hafi kost- að hundruð ef ekki þúsundir manna lífið. Zhao missti embættið vegna sam- úðar sinnar með málstað mótmæl- endahreyfingarinnar, sem barðist fyrir lýðræðisumbótum í Kína með friðsömum mótmælum í Peking. Zhao lést árið 2005 eftir fimmtán ár í stofufangelsinu. „Hann sjálfur skildi ekki eftir sig nein fyrirmæli um það hvernig upp- tökurnar verði notaðar. En ég er í engum vafa um að hann hefði vilj- að að útgáfa hans af sögunni lifði áfram,“ sagði Bao Pu, einn af rit- stjórum bókarinnar. - gb Fyrrverandi forsætisráðherra Kína um blóðbaðið á Torgi hins himneska friðar: Segir sína hlið sögunnar Á TALI VIÐ MÓTMÆLENDUR Á síðustu ljósmyndinni sem birtist opinberlega af Zhao Ziyang sést hann ræða við mót- mælendur á Torgi hins himneska friðar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SVÍÞJÓÐ Innan ESB hefur verið ákveðið að allir þingmenn á Evr- ópuþinginu fái sömu laun óháð því frá hvaða landi þeir eru. Sam- kvæmt launahækkun sem fljót- lega tekur gildi fær hver þing- maður jafnvirði tæplega 1,3 milljóna króna á mánuði. Sænskir þingmenn hafa tæpar 876 þúsund krónur í laun á mán- uði, að sögn Aftonbladet, og er því um verulega launahækkun að ræða. Þingmennirnir geta þó afþakkað hana og látið sér nægja að hafa tæp 900 þúsund á mánuði. Launahækkunin, sem kemur úr sjóðum ESB, er verulega umdeild í Svíþjóð. - ghs Svíþjóð: ESB-þingmenn fá hærri laun SVEITARSTJÓRNIR „Það eru yfirleitt frekar fjársterkir aðilar sem eiga frístundahús á Rangárbökkum og þeir ættu að geta kostað malbik- unina sjálfir,“ segir Guðlaug Ósk Svansdóttir, sveitarstjórnarfull- trúi minnihlutans í Rangárþingi eystra. Sveitarstjórnin hefur sam- þykkt að verja 2,6 milljónum króna í malbikun vegar að leigu- lóðum undir frístundahús í landi Móeiðarhvols. Vegagerð ríkisins mun hins vegar sjá um að leggja undirlag á veginn. Vegna ríkjandi vindátta á svæðinu blæs töluvert af malarveginum yfir sumarhúsa- byggðina. Guðlaug og Sólveig Eysteins- dóttir greiddu atkvæði gegn framkvæmdinni. Þær segja með öllu óeðlilegt að sveitarfélagið leggi í þennan kostnað sem því sé ekki skylt að gera á sama tíma og álögur á íbúa séu auknar vegna erfiðrar fjárhagsstöðu. „Það má segja að þetta mál sé draugur sem ákveðnir aðilar í sveitarstjórn drógu með sér úr fyrri sveitarstjórn. Þeir segja að gefið hafi verið um þetta loforð en það kemur hvergi fram í samning- um um þessar leigulóðir,“ segir Guðlaug sem kveðst telja að verja mætti fjármunum sveitarfélagsins á betri hátt. „Þetta er spurning um hverjir borga hér útsvar og hverj- ir eiga þjónustu okkar skilið.“ Meðal þeirra sem eiga sumar- hús og land á þessum slóðum á bökkum Eystri-Rangár eru hjón- in Ástríður Thorarensen og Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabanka- stjóri. - gar Minnihluti sveitarstjórnar Rangárþings eystra gagnrýnir vegagerð við sumarhús: Malbika að sumarhúsum í kreppu GUÐLAUG ÓSK SVANSDÓTTIR Sveit- arstjórnarfulltrúi minnihlutans segir Rangaárþing Eystra ekki eiga að borga malbikun vegar að frístundabyggð. FÉLAGSMÁL Borgarráðsfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks segja engar ábendingar hafa borist um að vinnslu mála hjá Barnavernd Reykjavíkur sé ábóta- vant. Borgarráðsfulltrúi Samfylk- ingar segir hins vegar verulega þörf á fleira starfsfólki í barna- verndarvinnu. Borgarráðsfulltrúi VG segir að með versnandi fjárhag heimilanna verði auk almennra aðgerða til aðstoðar verst settu heimilunum að fjölga stöðugildum í barnaverndinni, að hefja eftirlit með tannheilsu barna í skólum og tryggja að þau fái öll skólamáltíð án tillits til efnahags. - gar Meirihluti borgarráðs: Barnavernd ekki ábótavant MOSFELLSBÆR Sigurtillagan um væntanlegan Ævintýragarð í hug- myndasamkeppni Mosfellsbæjar nefnist „Að spinna ævintýr“. Sigurvegararnir að baki hug- myndinni eru Landmótun sf. og Sviðsmyndir ehf. Tillagan þykir stuðla vel að hugmyndum bæjar- yfirvalda um afþreyingar- og útivistarsvæði sem henti öllum aldurshópum, allt árið um kring. Líklegt þykir að þremur efstu tillögum samkeppninnar verði blandað saman. Allar þrjár þóttu innihalda spennandi og skemmti- legar hugmyndir sem féllu vel hver að annarri. Uppbygging í Mosfellsbæ: Nýr ævintýra- garður í bígerð A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið Ætti að hækka gjöld á áfengi og bensín? Já 14,4% Nei 85,6% SPURNING DAGSINS Í DAG Á að leggja á sykurskatt í for- varnaskyni? Segðu þína skoðun á visir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.