Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 15. maí 2009 13 KENÍA, AP Keníabúar eru æva- reiðir yfir vægum dómi sem aðalsmaður af enskum uppruna fékk fyrir að hafa drepið veiði- þjóf á landareign sinni. Enskættaði baróninn Thomas Cholmondeley átti yfir höfði sér ævilangt fangelsi, en hlaut þess í stað átta mánaða fangelsisdóm. Veiðiþjófurinn hét Robert Njoya og var svartur á hörund, en baróninn hvítur. Dómnum verður líklega áfrýjað. Cholmondeley hefur setið í fangelsi síðan í maí 2006. Hann var upphaflega ákærður fyrir morð, en var dæmdur sekur um manndráp. Hann hafði árið 2005 skotið veiðivörð til bana á land- areign sinni, en fallið var frá ákæru í því máli vegna skorts á sönnunar gögnum. - gb Dómur vekur reiði: Átta mánuðir fyrir manndráp THOMAS CHOLMONDELEY Hvíti barón- inn í réttarsal. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BARACK OBAMA Bandaríkjaforseti hugs- ar sig tvisvar um. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti reynir nú að koma í veg fyrir að birtar verði ljósmyndir, sem sýna bandaríska hermenn misþyrma föngum. Í síðasta mánuði sagðist Obama ekki ætla að standa í vegi fyrir því að myndirnar, sem eru 44 talsins, yrðu birtar 28. maí sam- kvæmt dómsúrskurði. Obama skipti um skoðun eftir að hann sá myndirnar. Yfirmenn í hernum segja að birting mynd- anna geti skaðað starfsemi hers- ins í Afganistan og Írak. Birting myndanna gæti einnig gert Obama erfiðara fyrir á fundi með múslimum í Egyptalandi í byrjun júní. - gb Obama skiptir um skoðun: Vill nú stöðva birtingu mynda Ræstingaútboð ógilt Kærunefnd útboðsmála hefur ógilt val Ríkiskaupa á tilboði Sólarræstingar ehf. í útboði á ræstingum fyrir Land- spítalann í Fossvogi. Úrskuðarnefndin segir Ríkiskaup skaða bóta skyld ISS Íslandi ehf. sem kærði útboðið. RÍKISKAUP SPÁNN, AP Loftmengun er nokkuð hversdagsleg í borgum Spánar, en vísindamenn hafa nú greint innihald mengunarinnar á nokkr- um stöðum og komist að óvæntri niðurstöðu. Í loftinu sveima sumsé fíkni- efni á borð við kókaín, amfetam- ín, ópíum, kannabis og lýsergíð- sýru, sem er LSD. Efnin finnast að vísu í afar litlu magni í andrúmsloftinu, en kóka- ínið þó sýnu mest. Sá fyrirvari er þó gerð- ur að sýnin voru tekin rétt hjá háskólum í Madríd og Barcelona og gæti verið að neysla stúdenta hafi haft áhrif á niðurstöðuna. - gb Görótt loftmengun á Spáni: Kókaín mælist í andrúmsloftinu DÓMSMÁL Sýslumaðurinn á Hvolsvelli er að gefa út ákæru vegna niðurrifs stigagangs í sameignarhúsi á Kirkjubæjarklaustri. Þegar er rekið einkamál vegna niðurrifsins fyrir Héraðsdómi Suðurlands og er dóm- ari væntanlegur á vettvang í næstu viku. „Ég kemst enn ekki inn í íbúðina,“ segir Jón Hlíðar Runólfsson, eigandi risíbúðar á efstu hæð í þriggja hæða húsi á Klaustri. Einkahlutafélagið KBK, sem keypti hluti í byggingunni sitt hvoru megin við Jón, lét í fyrravor rífa stigahús sem lá að íbúð Jóns. KBK mun vera að innrétta veitingastað í húsinu. Sjálfur býr Jón á höfuðborgarsvæðinu en leigði íbúðina út undir starfsfólk hótelsins á Klaustri. Jón segir réttinn vera sín megin. Samkvæmt eignaskiptasamningi hafi stigahúsið tilheyrt honum. Sýslumannsembættið á Hvolsvelli virðist vera sam- mála Jóni því verið er að gefa út ákæru, meðal ann- ars fyrir eignaspjöll. Fyrir sitt leyti hefur Jón auk þess rekið einkamál á hendur KBK. Hann krefst skaðabóta vegna niðurrifsins og tapaðra leigutekna. „Það er ótrúlegt hvernig kerfið er. Þetta er búið að taka heilt ár og enn kemst enginn inn í íbúðina. Ég vil fá bætur og að stiginn verði endurreistur,“ segir Jón. - gar Dómari fer á vettvang til að skoða aðstæður og ummerki eftir horfið stigahús: Ákært í stigamáli á Klaustri ld og blá úr rnin ekki í skólasundi á þeim tímum sem hætta á frosti er æjarlaugar að hækka hitann í barnalauginni á meðan skólasund er,“ segir Óskar. - gar LÖGREGLUMÁL Jón Hlíðar Runólfs-son, eigandi íbúðar á Klaustur-vegi á Kirkjubæjarklaustri, hefur kært til lögreglunnar á Hvolsvelli að fyrirtækið KBK ehf. hafi látið fjarlægja stiga við fjölbýlishúsið sem íbúðin er í. Íbúðin er á þriðju hæð hússins og stiginn var eina leiðin til að komast að henni. KBK, sem áætl-ar að byggja upp atvinnurekstur í húsnæðinu, segir stigann hafa farið inn á sína eign og ekki hafa samræmst brunavarnarreglum.„Ég er búinn að kæra þá til sýslumanns og lögreglu fyrir eignaspjöll. Þetta verður skaða-bótamál. Það er verið að kveða til dómskvadda matsmenn til að meta stigann og skemmdirnar,“ segir Jón. „Þessi stigagangur og stigi hefur alltaf verið einkaeign okkar íbúðar. KBK keypti svo hér um áramótin og fannst þetta taka of mikið pláss og ákvað aðrífa þetta í b Ófært í íbúðina eftir að stiginn var rifinnEigandi íbúðar á Kirkjubæjarklaustri segir að ekki sé hægt að komast í íbúðina eftir að stigi að innganginum var rifinn niður. Fyrirtækið KBK er með áform um atvinnurekstur í húsinu og stiginn var fyrir. KBK segir stigann ólöglegan. a- 17. f um u óns nar. r ir kur- fi ta r . h olið LÖGR róle men Sigu lögre Fjö sama að fag aðalle yfir m Stöl stutt v gefið m um nót Þrátt haft um ó Un R þj RÓ þjó lögFRÉTTABBLAÐIÐ 19. JÚNÍ 2008 Upphaf- lega var sagt frá stigahúsdeilunni á Kirkubæjaklaustri í Fréttablaðinu í fyrra- sumar. ATHYGLISVERÐ NEKT Áhugasamur gestur virðist fyrir sér verkið Nekt nr. 2 á listasafni í Hong Kong í Kína. FRÉTTABLAÐIÐ / AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.