Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 58
34 15. maí 2009 FÖSTUDAGUR Grindavíkurvöllur, áhorf.: 1060 Grindavík KR TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 10–15 (3–8) Varin skot Óskar 4 – Stefán Logi 3 Horn 6–2 Aukaspyrnur fengnar 13–13 Rangstöður 2–2 KR 4–4–2 Stefán Logi Magnúss. 6 Skúli Jón Friðgeirss. 5 Grétar Sigfinnur Sig. 6 Bjarni Guðjónsson 6 Jordao Diogo 4 Óskar Örn Hauksson 4 *Jónas Guðni Sæv. 7 Baldur Sigurðsson 4 (74., Guðm. Péturss. -) Gunnar Örn Jónsson 6 (79. Atli Jóhannsson -) Björgólfur Takefusa 6 Prince Rajcomar 5 (83., Guðm. Ben. -) *Maður leiksins GRINDAV. 4–5–1 Óskar Pétursson 6 Marko Valdimar Stef. 3 Zoran Stamenic 5 Eysteinn Hauksson 6 Jósef Kristinn Jósefs. 5 Orri Freyr Hjaltalín 6 (76., Óttar Steinn -) Jóhann Helgason 4 Scott Ramsay 4 Óli Baldur Bjarnas. 3 (60., Sveinbjörn Jón. 4) Bogi Rafn Einarsson 4 (60., Þórarinn Kristj. 4) Gilles Mbang Ondo 5 0-1 Gunnar Örn Jóns. (41.), 0-2 Sjálfsm. (65.), 0-3 Prince Rajcomar (73.), 0-4 Björgólfur Takefusa, víti (90.) 0-4 Einar Ö. Daníelsson (7) sport@frettabladid.is FH 2-1 FRAM 0-1 Sjálfsmark (2.), 1-1 Tryggvi Guð- mundsson (52.), 2-1 Atli Guðnason (70.) Kaplakrikavöllur, áhorfendur:1287 Þóroddur Hjaltalín (6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 15–8 (8–5) Varin skot Daði 3 – Hannes 5 Horn 8–4 Aukaspyrnur fengnar 8–11 Rangstöður 3–0 FH 4–3–3 Daði Lárusson 6 - Guðmundur Sævarsson 5, Pétur Viðarsson 5, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 6, Hjörtur Logi Valgarðsson 6 - Hákon Atli Hallfreðsson 6, Matthías Vilhjálmsson 4, Tryggvi Guðmundsson 7 (85., Tommy Nielsen -) - Matthías Guðmundsson 4 (72., Alexander Söderlund -) , Atli Viðar Björnsson 6, *Atli Guðnason 8 Fram 4–4–2 Hannes Þór Halldórsson 7 - Daði Guð- mundsson 5 (85. Alexander Veigar -), Auðun Helgason 5 (85.. Viðar Guðjónsson -), Kristján Hauksson 4, Samuel Lee Tillen 6 - Ívar Björnsson 6 (85. Jón Guðni Fjóluson -), Ingvar Þór Ólason 6, Heiðar Geir Júlíusson 5, Halldór Hermann Jónsson 6 - Almar Ormarsson 5, Hjálmar Þórarinsson 6. Fylkisvöllur, áhorf.: Óuppgefið Fylkir Keflavík TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 8–6 (4–4) Varin skot Fjalar 4 – Jörgensen 2 Horn 6–2 Aukaspyrnur fengnar 8–21 Rangstöður 11–3 KEFLAVÍK 4–5–1 Lasse Jörgensen 6 Guðjón Árni Anton. 5 Alen Sutej 8 Bjarni Hólm Aðalst. 6 Brynjar Örn Guðm. 6 Jóhann Birnir Guðm. 7 Jón Gunnar Eysteins. 5 Hólmar Örn Rúnarss. 6 (46., Einar Orri Ein. 5) Símun Samuelsen 6 Magnús Sverrir Þorst. 5 (63. Hörður Sveins. 5) Haukur Ingi Guðnas. 5 (74. Magnús Þór Mag -) *Maður leiksins FYLKIR 4–4–2 Fjalar Þorgeirsson 7 Andrés Már Jóhann. 7 *Kristján Valdimars. 8 Einar Pétursson 7 Tómas Þorsteinsson 7 Ásgeir Börkur Ásg. 7 Valur Fannar Gíslas. 8 Halldór Arnar Hilm. 6 (75. Ólafur Stígsson -) Kjartan Ág. Breiðdal 6 Pape Mamadou Faye 4 (75., Kjartan Andri -) Ingim. Níels Óskarss. 6 (86. Felix Hjálmarss. -) 1-0 Valur Fannar Gíslason, víti (49.) 2-0 Valur Fannar Gíslason, víti (71.) 2-0 Jóhannes Valgeirsson (7) Þróttur - Stjarnan 0-6 0-1 Jóhann Laxdal (20.), 0-2 Halldór Orri Björns son (28.), 0-3 Steinþór Freyr Þorsteinsson (45.), 0-4 Arnar Már Björgvinsson (67.), 0-5 Magnús Björgvinsson (86.), 0-6 Arnar Már (90. +1) Valur - Fjölnir 3-1 1-0 Helgi Sigurðsson (3.), 2-0 Ólafur Páll Snorra son (17.), 2-1 Tómas Leifsson (37.), 3-1 Marel Baldvinsson (58.) Ítarlega umfjöllun um alla leiki er á Vísi. STAÐAN 1. Stjarnan 2 2 0 0 9-1 6 2. KR 2 2 0 0 6-1 6 3. Fylkir 2 2 0 0 3-0 6 4. Breiðablik 2 2 0 0 3-1 6 5. Fram 2 1 0 1 3-2 3 6. Valur 2 1 0 1 3-2 3 7. FH 2 1 0 1 2-2 3 8. Keflavík 2 1 0 1 1-2 3 9. Fjölnir 2 0 0 2 2-5 0 10. ÍBV 2 0 0 2 0-3 0 11. Grindavík 2 0 0 2 1-7 0 12. Þróttur 2 0 0 2 1-8 0 PEPSI DEILD KARLA > Helga Margrét að komast af stað Fjölþrautarkonan efnilega úr Ármanni, Helga Margrét Þorsteinsdóttir, hefur náð sér af meiðslunum sem hafa hrjáð hana í vetur og ætlar að vera með á JJ-móti Ármanns á Laugardalsvellinum á morgun. Helga Margrét keppir í kúluvarpi og spjótkasti en í spjótkastinu reynir hún sig á móti Ásdísi Hjálmsdóttur sem keppir í fyrsta sinn á Íslandi eftir að hún varð fyrst íslenskra kvenna til þess að kasta nýja spjótinu yfir 60 metra. JJ-mótið er síðasta mótið áður en val á keppendum á Smáþjóðaleikana á Kýpur fer fram. KR-ingar byrja Pepsi-deildina með látum. Liðið vann sinn annan sigur í röð í gær þegar það fór illa með Grindavík suður með sjó. 0-4 lokatölur í leik þar sem KR var talsvert sterkari aðilinn. Það voru hryssingslegar aðstæður í Grindavík. Strekkingsvind- ur beint á annað markið og vindurinn átti heldur betur eftir að gera báðum liðum erfitt fyrir í þeirri viðleitni að spila fótbolta. Heimamenn byrjuðu betur, en KR náði fljótlega tökum á leiknum með vindinn í bakið í fyrri hálfleik. Þeim gekk ekki vel að skapa sér opin færi þó svo að þeir hafi átt tíu skot að marki Grindvíkinga gegn engu hjá heima- mönnum. KR-ingum óx þá ásmegin eftir því sem leið á hálfleikinn og Gunnar Örn kom þeim verðskuldað yfir fyrir lok hálfleiksins eftir stungusendingu Jónasar Guðna. Gríndvíkingar voru aðeins beittari í síðari hálfleik en skapaði sér ekkert af færum. KR-liðið varðist vel, lék skynsamlega og hafði leikinn í höndum sér. Þeir áttu síðan snarpa sókn sem endaði líklega með sjálfsmarki Ramsays sem var með Jordao á bakinu. Grindvíkingar áttu nokkur skot en engin færi og fóru illa með föstu leikatriðin sín. KR refsaði síðan þegar Marko missti boltann. Óskar Örn gaf fyrir á Prince sem gat ekki annað en skorað. Marko braut svo af sér í uppbótartíma og Björgólfur skoraði úr vítinu. 0-4 var kannski fullstór sigur en fyllilega verðskuldaður. KR- liðið þétt, skynsamt og beitt á köflum. Grindavík sýndi aldrei neitt í sókninni, miðjan slök og varnarleikurinn köflóttur þar sem var refsað grimmilega fyrir hver mistök. „Ég bjóst nú ekki við því að þetta yrði mikill markaleikur miðað við aðstæður. Okkur tókst að spila ágætan fótbolta og vorum rólegri á boltanum en síðast,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari KR, sem var líka sáttur við varnarleikinn enda skapaði Grindavík lítið. Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindavíkur, var eðlilega svekktur. „Þetta er allt of stórt tap miðað við gang leiksins. Það gekk annars ekkert í dag og heppnin var ekki með okkur. Það er verk að vinna og sérstaklega þurfum við að bæta varnarleik- inn,“ sagði Jankovic. - hbg PEPSI-DEILD KARLA: KR VANN ÖRUGGAN 0-4 SIGUR Á GRINDAVÍK SUÐUR MEÐ SJÓ KR-ingar byrja mótið af miklum krafti FÓTBOLTI Íslandsmeistarar FH eru komnir á blað eftir góðan, 2-1, sigur á Fram á heimavelli í gær í baráttuleik í 2. umferð Pepsi-deildar karla. Framarar fengu sannkallaða óskabyrjun þegar framherjinn knái Atli Guðnason varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á 2. mínútu eftir hornspyrnu Samuel Tillen. Eins og svo oft á síðustu leik- tíð bakkaði lið Fram eftir að hafa náð forystunni og lét FH eftir að vera með boltann. Skyndisóknir Fram voru þó hættulegar, sér- staklega í fyrri hálfleik. Fengu bæði lið færi til að skora en markverðir liðanna voru í fínu formi. Tryggvi Guðmundsson mis- notaði vítaspyrnu á 19. mínútu sem Hannes Þór virtist verja auðveldlega. „Hann hefur tekið víti á mig áður og mig grunaði að hann myndi setja hann þarna. Það er aldrei auðvelt að verja víti en alltaf gaman,“ sagði Hannes eftir leikinn. „Það var nóg að gera. Við viss- um að þeir myndu sækja, þetta er hörkulið en við sóttum líka helling og hefðum átt að taka eitt eða þrjú stig. Við erum mjög svekktir. Við erum komnir í þetta mót til að gera einhverja hluti en þetta féll þeirra megin í dag. Við ætlum að fylgja árangrinum frá því í fyrra eftir,“ sagði Hannes en í síðari hálfleik var aðeins eitt lið á vellinum. FH tók öll völd á vellinum eftir hálfleiksræðu Heimis Guðjóns- sonar þjálfara og það tók marka- hrókinn Tryggva Guðmunds- son aðeins sjö mínútur að jafna metin. Eftir þunga sókn FH kom sigur markið tuttugu mínútum fyrir leikslok. „Við vorum miklu betri í síðari hálfleik. Þeir fengu eigin lega ekki neitt. Við yfir- spiluðum þá og áttum að skora miklu fleiri mörk. Við þurftum að fá þrjú stig. Það hefði verið erfitt að mæta Breiðabliki, sem er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar, með engin stig. Hver veit hvað hefði gerst þá,“ sagði markaskorarinn Atli Guðnason en hann var allt annað en ánægður með fyrri hálfleik- inn hjá FH. „Mér fannst við lélegir í fyrri hálfleik. Spilið gekk illa, við töpuðum boltanum á slæm- um stöðum og vorum langt frá mönnunum. Við vorum sundur- spilaðir á miðjunni,“ sagði Atli en þrátt fyrir slakan leik fékk FH nóg af færum til að jafna fyrir hlé. „Við fáum alltaf færi og erum hættulegir fram á við en þegar við spilum ekki vel í vörninni þá fer allt í kerfi. „Við breyttum hugarfarinu í hálfleik, fórum nær mönnunum, dekkum þá betur og gefum þeim minni tíma. Um leið og það gerist komumst við framar á völlinn og þá er ekki að sökum að spyrja,“ sagði Atli að lokum. - gmi Bættu báðir fyrir mistökin sín Frábær síðari hálfleikur dugði FH gegn baráttuglöðum Frömurum. Atli Guðnason og Tryggvi Guðmunds- son skoruðu mörkin eftir að Atli skoraði sjálfsmark og Tryggvi klikkaði á víti í fyrri hálfleik. VARIÐ VÍTI Tryggvi Guðmundsson sést hér taka vítið sitt í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Fylkir vann 2-0 sigur á Keflavík í gær og er því með fullt hús stiga eftir tvo heimasigra á sterkum andstæðingum. Fyrst Val og svo Keflavík sem hafði lagt Íslandsmeistara FH í fyrstu umferðinni. Valur Fannar Gíslason skoraði bæði mörk Fylkismanna úr víta- spyrnum í síðari hálfleik. Heima- menn léku undan vindi í fyrri hálfleik, sem var þó að mestu tíð- indalaus og því útlit fyrir að Kefl- víkingar myndu sækja stíft í síð- ari hálfleik. En annað kom á daginn. Fylkir stjórnaði leiknum lengst af í síð- ari hálfleik og þó svo að lítið hafi verið um dauðafæri uppskáru heimamenn tvær vítaspyrnu eftir hættulegar sóknir. Það reyndist gera gæfumuninn. Það dró snemma til tíðinda í síð- ari hálfleik. Guðjón Árni Antoníus- son var dæmdur brotlegur eftir viðskipti sín við Kjartan Breiðdal og vítaspyrna dæmd. Valur Fannar skoraði af öryggi úr spyrnunni. Eftir þetta tóku Fylkismenn öll völdin í leiknum og sóttu nokkuð grimmt. Besta færið fékk Andrés Már Jóhannesson er hann skallaði yfir mark Keflvíkinga eftir horn. Stuttu síðar komust Fylkismenn aftur í sókn og komst Ingimundur Níels Óskarsson í gegn. Bjarni Hólm Aðalsteinsson braut á honum og aftur var víti dæmt. Valur Fannar skoraði af öryggi, rétt eins og í fyrra skiptið. Heimamenn lögðust ekki í vörn þrátt fyrir forystuna og héldu áfram að sækja. Það hentaði þeim greinilega vel að spila gegn vind- inum því þeir höfðu alla tíð ágæt- istök á leiknum. Keflvíkingar reyndu hvað þeir gátu að ógna marki Fylkis en sóknaraðgerðir þeirra voru held- ur máttlausar, rétt eins og í fyrri hálfleik. „Þetta er sannarlega betri byrj- un á mótinu en við þorðum að vona,“ sagði Valur Fannar, kátur efir leik. „Það er einnig gríðarlega mikilvægt að hafa haldið hreinu í báðum leikjunum til þessa og sýnir mikinn styrkleika.“ Hann segir að samheldnin hafi fleytt Fylkisliðinu langt. „Þetta eru leikmenn sem finnst gaman að taka á því. Við stöndum svo saman og erum góðir félagar. Liðsheildin er að skila miklu fyrir okkur.“ Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, sagði Fylkisliðið hafa verið sterkari aðilinn í leiknum, sér í lagi í síðari hálfleik. „Við vorum mjög slakir í síð- ari hálfleik en spiluðum líka illa í fyrri hálfleik. Uppsetning Fylkis- liðsins virkaði einfaldlega mun betur í leiknum.“ Hann segir að rokið í Árbænum hafi haft lítið að segja. „Við spiluð- um bara illa, sama hvort það var á móti vindinum eða með honum. Í fyrri hálfleik fáum við ekki horn og náum varla skoti á markið. Það var mjög slæmt.“ Hólmar Örn Rúnarsson fór meiddur af velli í hálfleik. „Það var slæmt að missa fyrirliðann af velli svo snemma,“ sagði Kristján. „Það gefur augaleið.“ - esá Valur Fannar Gíslason skoraði bæði mörk Fylkis úr vítaspyrnum í 2-0 sigri á Keflavík í Árbænum í gær: Fylkismenn á flugi eftir sigur á Keflavík GÖMLU FÉLAGARNIR Haukur Ingi Guðnason og Valur Fannar Gíslason í baráttu í leiknum í gær. FRÉTTABLÐAIÐ/VALLI FYRIRLIÐI Í GÆR Tryggvi Guðmundsson í baráttu í leiknum í gær. Hér hefur Heiðar Geir Júlíusson rennt sér fyrir skot hans. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.