Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 37
15. maí föstudagur 5
Stjörnumerki:
Vog.
Besti tími dagsins:
Morgunkaffið.
Geisladiskur-
inn í spilar-
anum:
It´s the mother
fxxxing remix!
Uppáhaldsverslunin:
Warehouse og apótek sem eru
opin allan sólarhringinn.
Líkamsræktin:
Hlaup, fjöllin og sund.
Mestu dekrið:
Utanlandsferðir.
Mesta freistingin:
Að heimsækja
Ameríku.
Ég lít mest
upp til:
Tinu Turner.
Áhrifavaldurinn:
Æðri máttur.
Draumafríið:
Púertó Ríkó.
Hverju myndirðu
sleppa ef þú þyrftir að
spara:
Ég drekk ekki og á
ekki bíl þannig að
ég er mjög ódýr í
rekstri.
KRÍTIN
sem stjórnmálafræðingur og
sjá fram á að þurfa að borga
af námslánunum réð hún sig
í starf á bandaríska fjármála-
markaðnum. „Jú, þar sem lætin
og tölvurnar eru og allir kallarn-
ir standa í skyrtu og með bindi
á gólfinu. Ég passaði afskaplega
illa þar inn þótt þetta hafi líka
verið skemmtilegur tími. Var með
tvær fléttur og fannst þetta pen-
ingaæði nokkuð sem ég gat ekki
tengt mig við. Eftir ár þar, flakk
um Evrópu og námskeið hingað
og þangað kom ég heim og tók
atvinnuleitina mjög alvarlega
eins og Ameríkanar gera, en þar
úti er ekki auðvelt að fá vinnu.
Ég gekk hring með ferilskrána
en lenti hins vegar í miklum
vandræðum því eftir langa dvöl
í Ameríku gat ég varla sagt tvær
línur án þess að hiksta eða segja
eitthvað vitlaust. Og ég hef
þurft að hafa mikið fyrir því að
ná íslenskunni upp, trúðu mér,
þetta hefur ekki verið þrauta-
laus ganga.“ Ragnhildur náði þó
einhvern veginn að hrífa fólk
með sér því hún var ekki lengi
atvinnulaus, hún fékk vinnu
hjá framleiðslu fyrirtæki í kvik-
myndageiranum, sem þá hét On
en er í dag Saga Film. Hún starf-
aði þar og svo við nokkur verk-
efni fyrir Saga Film uns leiðin
lá í útvarpið. Reynslan reynd-
ist henni dýrmæt þegar kom
að því að framleiða eigin kvik-
mynd, From Oakland to Iceland,
sem hún gerði um bróður sinn án
nokkurra styrkja.
NÚLLSTILLIST MEÐ MIKAEL
TORFASYNI
Það er svolítið eftir sögunni að
Ragnhildur kynntist manninum
í lífi sínu úti á götu um hábjart-
an dag þar sem sameiginlegur
vinur kynnti þau. Mikael Torfa-
son rithöfundur og Ragnhildur
hafa verið saman í nokkra mán-
uði. Ragnhildur segist hafa vitað
lítið um Mikael og þrátt fyrir að
hafa unnið í fjölmiðlageiranum
í fimm ár, og þau bæði, hafi þau
aldrei hist fyrr en þarna í vetur.
Hún hafi tengt nafnið hans við
ritstjórastörf en ekki vitað mikið
meir. „Erum við ólík? Nei, það er
nú svo skrítið að við erum alls
ekkert ólík, þótt sýnast megi í
fyrstu. En þó nægilega ólík til þess
að það sé jafnvægi í sambandinu.
Hann er einfaldlega mjög góður
kærasti og vinur og hefur góð áhrif
á mig. Ég hálfpartinn núllstillist
þegar ég er með honum – hann
róar mig.“ Mikael er þessa dagana
að klára að skrifa bók sem kemur
út í haust en Ragnhildur segist
hafa lesið skrif hans og vera núna
í miðri bók: Heimsins heimskasti
pabbi. „Mér finnst bækurnar hans
skemmtilegar og ég kann að meta
þetta hráa í honum. Þetta hefur
allt hins vegar bara verið eins og
maður segir: Óvænt og óplanað og
bara gerðist. Hann náði mér strax
eða svona „fattaði mig“ og setti
mig ekki í kassa. Ég hef aldrei
verið hrifin af því þegar fólk gerir
það, það er svolítil tilhneiging í
Íslendingum að vilja flokka alla.
Ég er til dæmis til bæði Íslend-
ingur og Ameríkani og þótt það
hljómi eins og það sé ekki hægt
þá er það bara þannig. Þegar ég er
hér á landi er Kalifornía „heima“
og þá sakna ég opinna Banda-
ríkjamanna og léttleika þeirra.
Og þegar ég er úti þá sakna ég Ís-
lands og svarta húmorsins okkar.
Þá er Ísland heima.“
✽
ba
k v
ið
tjö
ldi
n
ÓMISSANDI DEKUR
Kynnum nýju litalínuna frá Bobbi Brown, Platinum Collection,
fyrir kinnar, varir og augu.
Komdu og fáðu faglega ráðgjöf.
Kaupauki fylgir ef keypt er fyrir 5.000 krónur eða meira í Bobbi Brown.