Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 46
22 15. maí 2009 FÖSTUDAGUR timamot@frettabladid.is Matreiðslumeistarinn Jóhannes Steinn Jóhannesson sigraði í keppninni Matreiðslumaður ársins 2009 sem haldin var á matartorgi sýningarinnar Ferðalög og frístundir í Laugar- dalshöll um síðustu helgi. Með því varði hann titilinn frá því í fyrra og hefur það ekki gerst síðan Sturla Birgisson sigr- aði árin 1995 og 1996. Jóhannes Steinn er að vonum ánægður og segir titlana gefa sér byr undir báða vængi. Hann hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur en hann tók þátt í forkeppni í byrjun maí og var á meðal þeirra fimm, úr sextán manna hópi, sem kom- ust áfram. Síðan hefur hann verið að undirbúa aðalkeppn- ina og útbúa matseðil. „Við fengum allir sama hráefnið og var uppálagt að vinna út frá því. Í forrétt áttum við að vera með hlýra og tuttugu prósent annað hráefni. Í aðalrétt hrossalund og nautaflat- steik og í eftirrétt peru, ananas, drekaávöxt og sítrónu- timjan,“ útskýrir Jóhannes Steinn. Útkoman varð eftirfar- andi: For réttur: Hægelduð hlýra- og humarrúlla ásamt bak- aðri hlýrakinn og steiktum humarhala. Borið fram með gulrótum, grænum ertum og stökku sólkjarnarúgbrauði. Aðalréttur: Hrossalund í rauðrófuhjúp ásamt stökksteiktri nautaflatsteik, kartöflu og hnúðbrauðsköku. Borðið fram með rauðrófum, aspas, jarðskokkum og rósmaríngljáa. Eftirréttur: Hvít súkkulaði- og pistasíukaka ásamt vanillu- búðingi og pistasíuhlaupi. Borið fram með perukrapi og sítrónublóðbergsfroðu. Sigurinn veitir Jóhannesi keppnisrétt í keppnunum Mat- reiðslumeistari Norðurlanda, Global Chef Challenge og One World Competition svo dæmi séu tekin svo hann mun áfram þurfa að brjóta heilann um uppskriftir og matseðla. Jóhannes, sem starfar á veitingastaðnum Vox, segir að þar á bæ hafi menn sópað til sín verðlaunum um helgina. „Alba E. Hough var valin vínþjónn ársins og Ólafur Ágústs- son sigraði í landshlutakeppninni Íslenskt eldhús en hann keppti fyrir hönd Austurlands,“ segir Jóhannes. Í þeirri keppni notar hver matreiðslumeistari hráefni úr sínu hér- aði og segir Jóhannes aukna áherslu á slíka matargerð. Á Vox, líkt og á veitingastaðnum Dill, í Norræna húsinu, notum við til dæmis eingöngu norrænt hráefni. vera@frettabladid.is JÓHANNES STEINN JÓHANNESSON: MATREIÐSLUMAÐUR ÁRSINS Byr undir báða vængi ÁNÆGÐUR MEÐ ÁRANGURINN Jóhannes varði titilinn frá því í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GRÍMUR THOMSEN FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1820. „Sá er bestur sálargróður sem vex í skauti móður.“ Grímur var íslenskt skáld, bókmenntafræðingur, þing- maður og bóndi. MERKISATBURÐIR 1811 Paragvæ fær sjálfstæði frá Spáni. 1941 Alþingi samþykkir að fresta þingkosningum um allt að fjögur ár vegna hins óvenjulega ástands sem ríkti í landinu sem var hernumið. Kosningar fóru fram strax á næsta ári. 1952 Fiskveiðilögsaga Íslands er færð út í fjórar mílur. Hún var áður þrjár. 1967 Fyrsta íslenska sjónvarps- leikritið, Jón gamli eftir Matthías Johannessen, er frumsýnt. 1987 John Travolta kvikmynda- leikari kemur til Íslands. 1991 Edith Cresson er kjörin fyrsti kvenforsætisráð- herra Frakklands. Vegna útfarar Gunnsteins Lárussonar skósmíðameistara verður öllum skóvinnustofum lokað frá kl. 12-16. Landssamband skósmiða. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Bjargar Hallvarðsdóttur, Höfðagrund 10, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akraness fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót. Anna K. Skúladóttir Jón I. Haraldsson Lárus Skúlason Málfríður G. Skúladóttir Gísli H. Hallbjörnsson Skúli Skúlason Margrét G. Rögnvaldsdóttir Guðmundur Skúlason Guðrún Ísleifsdóttir Hallveig Skúladóttir Stefán Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn , faðir okkar, tengdafaðir og afi, Magnús Finnbogason frá Lágafelli, Gilsbakka 2, Hvolsvelli, lést þriðjudaginn 5. maí. Útför hans verður gerð frá Krosskirkju Austur-Landeyjum laugardaginn 16 maí kl 14.00 Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á minningarsjóð Guðrúnar á Lágafelli reikn nr. 0182-15-370217 kt. 570269 5509 eða Dvalarheimilið Kirkjuhvol Hvolsvelli Auður Hermannsdóttir Vilborg Magnúsdóttir Gunnar Hermannsson Finnbogi Magnússon Þórey Pálsdóttir Ragnhildur Magnúsdóttir Guðmundur Erlendsson og barnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Hannesar Þorsteinssonar. Við færum öllum á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund sérstakar þakkir fyrir góða umönnun, kærleika og félagsskap. Hjörtur Hannesson Sigrún Axelsdóttir Guðrún Hannesdóttir Vilhjálmur Þór Kjartansson Una Hannesdóttir Geir Ingimarsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför Helga Jökulssonar Dverghömrum 26, Reykjavík. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Gréta Fjeldsted Kristinsdóttir Guðrún Helgadóttir Grímur Sigurðsson Jón Heiðar Helgason Lilja Kristín Þorsteinsdóttir Eiríkur Jón Gunnarsson og barnabörn. Frændi okkar og vinur, Margeir Pétur Steingrímsson Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, áður til heimilis í Skarðshlíð 4g, lést 9. maí. Útför hans fer fram frá Höfðakapellu þriðjudaginn 19. maí kl. 13.30. Valborg Svavarsdóttir Haukur Valtýsson Agnes Tulinius Svavarsdóttir Ottó Tulinius Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gerður S. Þórarinsdóttir Brekkugerði 18, Reykjavík, lést þriðjudaginn 12. maí. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 22. maí kl. 15.00. Auður Sveinsdóttir Þórarinn Egill Sveinsson Inga Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og hjartkær vinkona, Sigrún Oddgeirsdóttir Hæðargarði 35, áður Skipasundi 11, andaðist á líknardeild Landakotsspítala 12. maí. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 19. maí kl. 15.00. Ingvar A. Guðnason Þórunn Guðmundsdóttir Gunnar Guðnason Sigríður Davíðsdóttir Haukur Geir Guðnason Anna Sigríður Guðmundsdóttir barnabörn, barnabarnabörn, Theódór Halldórsson Móðir okkar, Sigríður Eymundsdóttir sjúkraliði frá Flögu í Skriðdal, lést að morgni fimmtudagsins 14. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Eygló Magnúsdóttir Eymundur Magnússon Steinarr Magnússon Þennan dag árið 2008 varð Kalifornia annað ríki Bandaríkjanna til að leyfa hjónabönd sam- kynhneigðra en Massachusetts reið á vaðið árið 2004. Leyfið var veitt eftir að hæstiréttur Kaliforniu úrskurðaði að fyrra bann gengi gegn stjórnaskránni. Hinn 5. nóvember sama ár var leyfið hins vegar aftur kallað en þá höfðu nokkur þúsund samkynhneigð pör gengið í það heilaga. Ástæða þess var sú að tillaga, sem vestanhafs gekk undir nafninu Proposition 8, var samþykkt með 52,1 prósenti atkvæða. Í henni var mælst til þess að málsgreininni „Aðeins hjónaband milli karls og konu er gilt og löglegt í Kaliforníu“ yrði bætt í stjórnarskrá ríkisins. Margir íhaldssamir hópar töluðu óspart fyrir til- lögunni til að snúa við ákvörðun hæstaréttar frá því 15. maí um að lögleiða hjónaband samkyn- hneigðra. Sjálfur hafði hæstirétturinn snúið við ákvörðun þjóðaratkvæðagreiðslu frá árinu 2000 þar sem 61 prósent kjósenda vildi að hjónaband gæti aðeins verið milli karls og konu. ÞETTA GERÐIST: 15. MAÍ ÁRIÐ 2008 Samkynhneigðir fá að giftast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.