Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 34
15. MAÍ 2009 FÖSTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● eurovision
Ævintýralegur kjóll Jóhönnu var
heldur betur á milli tannanna á
fólki í aðdraganda undankeppni
Eurovision. Ekki voru allir jafn
vissir um að hann yrði Jóhönnu til
framdráttar og þótti sumum hans
helst minna á Barbie-kjól. Eftir
undankeppnina hafa þær raddir
hljóðnað, enda var Jóhanna stór-
glæsileg á sviðinu og dramatískur
og steinum skreyttur kjóllinn átti
vel við atriðið og umgjörðina.
Það er fatahönnunartvíeykið
Andersen & Lauth sem á heiðurinn
af hönnun kjólsins. Hann var sér-
sniðinn á Jóhönnu og handsaumað-
ur á Indlandi.
Jóhanna mun aftur klæðast
kjólnum í aðalkeppninni á laugar-
dag, enda segja reglur keppninnar
til um að atriði undankeppninnar
og aðalkeppninnar skuli vera ná-
kvæmlega eins. - hhs
Eurovision-keppnin hefur af
einhverjum ástæðum verið
talin höfða einkum til samkyn-
hneigðra karlmanna. Örvar
Jens Arnarsson fellur ekki
undir þá skilgreiningu en unn-
ustan skilur ekki alveg hvaðan
áhuginn er kominn.
„Henni finnst þetta allt saman
hálf fáranlegt, hún er ekkert
með mér í þessu og fnæsir bara
þegar ég fer að tala um þetta,“
segir Örvar Jens Arnarsson. Það
sem betri helmingnum finnst
svona asnalegt er áhugi Örvars
á Eurovision-keppninni. Slíkur
áhugi hefur verið bendlaður við
samkynhneigða og Örvar viður-
kennir það. „Það er ekkert laun-
ungarmál að keppnin hefur verið
tengd við samkynhneigðu senuna
í Evrópu, af hverju það er veit ég
ekki; kannski svífur einhver hýr
gleði yfir þessu og kannski er það
glamúrinn sem heillar.“
Áhugi Örvars á keppninni
kviknaði fyrir um fjórum árum
og hefur smám saman undið upp
á sig. Hann vill meina að afmælis-
dagurinn hans leiki þar stórt hlut-
verk. „Ég á afmæli 20. maí og
keppnin fer yfirleitt fram í kring-
um þá dagsetningu. Við félagarn-
ir höfum yfirleitt haft þann hátt-
inn á að halda upp á afmælið með
góðum Eurovision-veislum.“
Að þessu sinni verður aðal-
kvöldið þann 16. maí en það breyt-
ir litlu; Örvar og félagar verða
límdir fyrir framan skjáinn þegar
lögin taka að hljóma. Þar að auki
skiptir Örvar miklu máli að nán-
ast allt er leyfilegt í Eurovision,
sem væri yfirleitt litið hornauga
í öðrum keppnum. „Ég meina,
finnsk skrímsli og kalkúnn frá
Írlandi, hvar annars staðar sæi
maður það en í Eurovision? Það
er einmitt þetta sem gerir keppn-
ina svona heillandi, þessir hlutir
sem maður skilur ekki.“
Örvar segist ekki ganga svo
langt að vega keppendur og meta
út frá einhverri heimagerðri for-
múlu. Hann hefur hins vegar
hlustað á velflest lögin og ákvað
að gamni sínu að velja tíu sig-
urstranglegustu lögin. Þar er
kunnuglegt andlit því líkt og svo
margir Eurovision-spekúlantar
spáir Övar norska laginu góðu
gengi. „Ég á hins vegar eftir að
sjá hvernig löndin á Balkanskag-
anum taka í það og eins löndin
fyrir botni Miðjarðarhafs.“ Hann
er hins vegar ekki jafn bjartsýnn
fyrir Íslands hönd, telur ekk-
ert sérstaklega líklegt til vin-
sælda að láta konu syngja ball-
öðu. „Nei, mér finnst það eitthvað
klisjukennt, ég held hins vegar
að við komust upp úr riðlinum en
það bíður okkar ekkert annað en
önnur undankeppni að ári,“ segir
Örvar. - fgg
Eurovision-áhugi veldur deilum
Kjóllinn sem Jóhanna klæðist í Eurovision-
keppninni er hönnun tvíeykisins Andersen
& Lauth. MYND/AFP
Allt skal vera eins
● EUROVISION-BÓKIN KOMIN Brátt verður
fáanleg glæný bók sem nær yfir hálfrar aldar sögu
Eurovision-söngvakeppninnar. Tilefni útgáfunnar
er að í þessum mánuði hefur Bretland verið með
í keppninni í fimmtíu ár samfleytt, en reyndar
kepptu Bretar fyrst árið 1957 en misstu úr árið
þar á eftir.
Bókin heitir á frummálinu Flying the Flag
for the UK og er skrifuð af Harry Darby. Hún
var gefin út 1. maí síðastliðinn og er þessa
dagana að berast í verslanir. Í bókinni má finna
viðtöl við helstu forkólfa Eurovision í Bretlandi,
tilvitnanir í aðdáendur bæði frá Bretlandi og
öðrum löndum og yfirlit yfir hinar 48 þjóðirnar
sem keppt hafa við Bretland. Einnig má finna
rökræður um kosningafyrirkomulag og könnun
á því hverjir hrífast af Bretlandi í Eurovision og
hverjum Bretland hefur hrifist af í gegnum
tíðina. Í bókinni kennir því ýmissa grasa og
er hún eflaust kærkomin lesning fyrir harða
Eurovision-aðdáendur.
Örvar segir Eurovision-keppnina
fyrst og fremst áhugaverða vegna
þess að þar leyfist sitthvað sem í
öðrum keppnum væri litið hornauga.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Heimskreppan lætur Eurovision-
keppnina ekki ósnortna þó svo að
hún sé vissulega með glæstu sniði
í ár líkt og endranær.
San Marínó dró sig úr keppninni
af efnahagslegum ástæðum en Sló-
vakía fyllti þeirra auða sæti með
því að snúa aftur til keppni. Lett-
land og Georgía ætluðu að draga sig
út úr keppninni en síðar tilkynntu
Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva
(EBU) að bæði löndin myndu taka
þátt. Hins vegar ákváðu Georgíu-
menn aftur að hætta keppni eftir
að EBU hafnaði sigurlagi þeirra
þar sem það þótti brjóta í bága við
reglur keppninnar.
Líkt og alþjóð veit hefur banka-
kreppan á Íslandi ekki dregið úr
Eurovision-þorsta Íslendinga og
var það eflaust vonarljós fyrir
marga að Jóhanna Guðrún og fylgi-
fiskar skyldu komast áfram. Hvað
það mun kosta okkur þegar upp
er staðið á enn eftir að skýrast en
spennandi verður að fylgjast með
úrslitakvöldinu um helgina.
- hs
Áhrif kreppu á
söngvakeppnina
Slóvakía tekur sæti San Marínó sem dró
sig úr keppninni í ár. MYND/AFP
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki