Fréttablaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009 5eurovision ● fréttablaðið ●
…að fyrsta keppnin var haldin í
bænum Lugona í Sviss 24. maí
árið 1956. Sjö lönd tóku þátt og
lagði hvert þeirra fram tvö lög í
keppnina. Þetta er eina keppnin
þar sem land hefur átt fleiri en
eitt lag í keppninni. Þess skal
getið að í þessari fyrstu keppni
sigraði gestgjafinn Sviss.
…að Írland, sem tók fyrst þátt í
Eurovision árið 1965, hefur sigrað
sjö sinnum, oftast allra þjóða.
Bretland, Lúxemborg og
Frakkland deila með sér öðru sæti
og hafa unnið keppnina fimm
sinnum hvert.
…að söngkonan Sandra Kim er
yngsti keppandi sem hefur sigrað
í Eurovision.
Kim var
aðeins
þrettán ára
þegar hún
sigraði fyrir
hönd Belgíu
með laginu
J´aime la vie
árið 1986.
…að á upphafsárum keppninnar
voru Frakkland, Lúxemborg og
Holland sigursælustu Eurovision-
þjóðirnar en í seinni tíð hefur
dregið úr velgengni þeirra svo
um munar. Holland hefur ekki
unnið síðan 1975, Frakkland síðan
1977 og Lúxemborg síðan 1983.
…að eftir aldamótin fór það að
færast í vöxt lönd sem aldrei
höfðu unnið áður
stæðu uppi sem
sigurvegarar.
Finnland
landaði
loks sigri
eftir 45
ára bið
árið 2006
en
Úkraína,
sem sigraði
árið 2004,
hafði ekki
þurft að
bíða eftir
sigri nema í
tvö ár.
Serbía gerði
sér svo lítið
fyrir og vann í
fyrstu tilraun árið 2007. Í dag er
Portúgal það land sem hefur
beðið hvað lengst eftir sigri en
það tók fyrst þátt árið 1964.
Íslendingar hafa verið með frá
árinu 1986 og bíða enn.
…að kjóllinn sem hin sænska
Malena Ernman klæðist í
keppninni í ár kostar
litlar 400.000 sænskar
krónur, eða 6,4
milljónir íslenskra
króna. Einn
kunnasti
tísku hönnuður
Svía, Camilla
Thulin,
hann aði
kjólinn. Hann er
skreyttur 365
fjöðrum sem
einar og sér
kostuðu á annað
hundrað
þúsund
krónur.
- ve/rve
VISSIR ÞÚ...
Ýmsar kröfur eru settar fram
um tónlistarflutning í Eurovison-
keppninni. Til dæmis er það skil-
yrði sett að söngurinn sé aldrei
leikinn af bandi.
Frá 1956 til 1998 var þeim sem
hélt keppnina svo uppálagt að sjá
þjóðunum fyrir hljómsveit. Það
var ekki fyrr en eftir 1973 sem
þjóðir máttu velja um hvort hljóð-
færaflutningur væri leikinn beint
eða af bandi. Væri upptaka notuð
þurftu hljóðfæraleikarar hins
vegar að líkja eftir þeim hljóð-
færum sem heyrðist í á bandinu.
Sú krafa var svo felld niður árið
1997.
Síðan 1999 hefur allur hljóð-
færaleikur verið spilaður af upp-
tökum. - vg
Tónlistarflutningur í Eurovison
Eintóm uppgerð? Slóvenskir fiðluleik-
arar spila í þykjustunni undir söng
Martinu.
NORDICPHOTOS/AFP