Fréttablaðið - 15.05.2009, Síða 57

Fréttablaðið - 15.05.2009, Síða 57
FÖSTUDAGUR 15. maí 2009 Salou Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur hefur sent frá sér plötuna Kvöld- vaka. Á plötunni, sem Dimma gefur út, ríkir sannkölluð kvöldvöku- stemning þar sem söngvaskáldið er í aðalhlutverki við eigin undir- leik á gítar. Einnig leika á plötunni þeir Ingólfur Magnússon á kontra- bassa, Jón Geir Jóhannsson á slag- verk og Hallgrímur Jónas Jensson á selló. Kvöldvaka kemur út í 500 tölusettum eintökum fyrir íslensk- an markað og verður einungis seld á tónleikum og hjá útgefanda, en hægt er að nálgast plötuna eða stök lög af henni á Tónlist.is Þessa dagana er Svavar Knútur á tónleikaferð í Þýskalandi og Danmörku, þar sem hann kynnir plötuna. Fleiri tónleikar eru fyrir- hugaðir í Þýskalandi í sumar í kjöl- far vel heppnaðra tónleika í febrú- ar þegar hann spilaði á Melodica Acoustic-hátíðinni í Hamborg þar sem voru um eitt þúsund áheyr- endur. Í framhaldinu var honum boðin þátttaka í tónleikaröðinni „Songs & whispers“ í júlí. Kvöldvaka Svavars Hljómsveitirnar Agent Fresco, Mamm- út, Ultra Mega Technobandið Stefán, Ten Step Away og söngvarinn Geir Ólafsson koma fram á Próflokadjammi X-ins 977 í kvöld. Allt eru þetta flytj- endur sem hafa verið að gera það gott á X-inu að undanförnu. Tónleikarnir verða haldnir á skemmtistaðnum Sódómu Reykja- vík og verður húsið opnað klukkan 22. Aðgangseyrir er 1.000 krónur og má búast við mikilli stemningu, enda kærkomið fyrir háskólanema að sletta rækilega úr klaufunum eftir erfiðan próflestur að undanförnu. Próflokum fagnað AGENT FRESCO Rokkararnir í Agent Fresco spila á Sódómu Reykjavík í kvöld. SVAVAR KNÚTUR Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur hefur sent frá sér plötuna Kvöldvöku.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.