Fréttablaðið - 15.05.2009, Síða 4

Fréttablaðið - 15.05.2009, Síða 4
4 15. maí 2009 FÖSTUDAGUR TÓNLIST „Við erum að vinna að athugun á minniháttar breytingum sem gerðu það mögulegt að Íslenska óperan hefði aðstöðu í húsinu,“ segir Stefán Hermannsson, framkvæmda- stjóri hjá Austurhöfn, sem byggir tónlistarhúsið við Reykjavíkur- höfn. Að sögn Stefáns var frá upphafi tekið tilliti til þess við hönnun tón- listarhússins að þar væri hægt að flytja óperur í uppfærslum sem ekki krefðust mikils leikssviðsbúnaðar og að flutt yrði ein ópera á ári. „Hins vegar núna eftir hrunið hefur verið ákveðið að reyna að skaffa betri aðstöðu fyrir óperuna svo hún gæti verið með flestar sínar uppfærslur í húsinu. En það er ekki búið að taka formlega ákvörðun,“ ítrekar Stefán og útskýrir að litlar breytingar þurfi að gera á áhorf- endasalnum sjálfum. Þar hafi til dæmis alltaf verið reiknað með hljómsveitargryfju og hringsviði. „Kostnaðaraukinn er alls ekki mikill. Við erum ekki að breyta hús- inu í óperuhús,“ segir Stefán. „Það eina sem þarf er að gera ráð fyrir skrifstofuaðstöðu og rými fyrir sminki, hárgreiðslu og búningsher- bergi. Þeir geta gert þetta að höfuð- stöðvum sínum þangað til einhvern tíma í framtíðinni að óperhús rís á Íslandi.“ - gar Austurhöfn TRH gerir áætlun um víðtækara notagildi á hafnarbakkanum: Óperan hafi aðstöðu í tónlistarhúsinu TÓNLISTARHÚSIÐ Í REYKJAVÍKURHÖFN Íslenska sinfónían fær hugsanlega fastan félagsskap af Íslensku óperunni í nýja tónlistarhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON STJÓRNMÁL Lagt er til að skoðað verði hvort unnt sé að ná fram samstarfi í gjaldmiðils- málum samhliða viðræðum um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) til að styðja við gengi krónunnar, í drögum að stjórnarfrumvarpi um aðildarumsókn sem birt voru í gær. Engar þreifingar hafa átt sér stað um þessa lausn við ESB, segir Össur Skarphéð- insson utanríkisráðherra. Hann segir það mat sérfræðinga sem stjórnvöld hafi ráðfært sig við að slíkt geti verið mögulegt, þó að pólitískan vilja þurfi af beggja hálfu. Hug- myndir um slíkt samstarf hafi ekki verið útfærðar nánar. Drög að frumvarpinu voru kynnt forystu- mönnum stjórnarandstöðuflokkanna á mið- vikudag. Til stendur að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi um miðja næstu viku. Össur ræddi drögin á fundum með for- mönnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks, og einum þingmanna Borgarahreyf- ingarinnar, í gærmorgun. „Ég lagði áherslu á að það væri einlæg- ur vilji ríkisstjórnarinnar að ná sem mestu samráði um þetta mál, bæði í meðferð þings- ins og þegar meðferð þingsins sleppir og lagt verður í aðildarviðræðurnar,“ segir Össur. Hann segir fundi með forsvarsmönnum stjórnarandstöðuflokkanna hafa verið gagn- lega, og hann muni eiga fleiri samtöl við ein- hverja þeirra á næstu dögum. Nauðsynlegt hafi verið að fá að kynna þeim drögin áður en þau voru gerð opinber. Hann útilokar ekki að breytingar verði gerðar á frumvarpinu áður en það verði lagt fram. Össur segir ljóst virðist vera að lengst sé á milli sjónarmiða þingmanna Sjálfstæðis- flokks og þess sem fram komi í tillögudrög- unum. Styttra sé á milli stefnu Framsóknar- flokks og þess sem fram komi í greinargerð með tillögunni. Borgarahreyfingin hefur sett fram þrjú skilyrði fyrir stuðningi við frumvarpið, segir Þór Saari, þingmaður flokksins. Þau eru að umfjöllun um efni aðildarsamningsins verði vönduð og hlutlaus, jafnt vægi atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu og að samninga- nefndin verði fagleg og skipuð erlendum og óháðum ráðgjöfum. Verði skilyrðin uppfyllt með breytingum á frumvarpinu í meðförum þingsins muni þingmenn flokksins samþykkja það, en ann- ars ekki, segir Þór. brjann@frettabladid.is Skoða samstarf við ESB til að styðja gengi krónunnar Stjórnvöld vilja kanna samstarf til að styðja gengi krónunnar samhliða aðildarviðræðum að ESB. Nauðsyn- legt var að kynna stjórnarandstöðu frumvarpsdrög áður en þau voru gerð opinber, segir utanríkisráðherra. VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 21° 18° 21° 20° 15° 20° 18° 22° 15° 14° 23° 17° 23° 30° 17° 14° 27° 13° 12 13 17 10 14 13 12 10 14 14 14 3 3 4 8 5 8 7 7 4 4 4 18 18 SUNNUDAGUR 5-13 m/s, hvassast NV- og SA-til. 12 14 8 1415 17 18 18 18 Á MORGUN 5-10 m/s. 6 8 6 10 14 FÍNASTA VEÐUR UM HELGINA Almennt má segja að helgarveðrið verði á hlýjum og sumar- legum nótum. Hins vegar byrjar að kólna á Austurlandi strax á morgun og síðan fer að kólna á sunnudag og mánudag á Vest- fjörðum, norðan til og austan. Þá verður hlýj- ast suðvestan lands. Ástæðan er að hann hallast smám saman í norðrið þó vindur verði reyndar hægur. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur STJÓRNMÁL Drög að stjórnar- frumvarpi um aðildarviðræður við Evrópusambandið uppfylla ekki skilyrði sem flokksþing Framsóknar- flokksins setti, segir Sig- mundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknar- flokksins. Gera má ráð fyrir fjölmörg- um athuga- semdum við frumvarpið frá þingmönnum flokksins í meðförum þingsins. Ekki gangi upp að fela ríkis- stjórninni einni umboð til við- ræðna. „Ég hef áhyggjur af því að það verði löng umræða um þetta, þegar heldur ætti að nota sumar- þingið til að grípa til aðgerða í efnahagsmálum,“ segir Sigmund- ur. - bj Frumvarp um ESB-viðræður: Skilyrðin ekki verið uppfyllt SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON ÁHERSLA Á FORRÆÐI YFIR AUÐLINDUM DRÖGIN KYNNT Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ræddi drögin við stjórnarandstöðuflokana í gær. Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, segir að hreyfingin hafi sett þrjú skilyrði fyrir stuðningi. Stjórnvöld munu leggja fyrir Alþingi tillögu um að ríkisstjórn- in leggi inn umsókn að Evrópu- sambandinu og að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Í greinargerð með drögum að tillögunni er fjallað nánar um framkvæmdina. Þar segir meðal annars: ■ Hafa á víðtækt samráð við hags munaaðila um samn- ingsmarkmið fyrir aðildar- viðræðurnar og leitast við að ná breiðri samstöðu um viðræðugrundvöll. ■ Samhliða frumvarpi um aðildar umsókn verður lagt fram frum varp um þjóðar- atkvæðagreiðslur. ■ Skoða á hvort hægt verði að ná fram samstarfi í gjald- eyrismálum til að styðja við gengi krónunnar samhliða aðildarviðræðum. ■ Ríkisstjórn Íslands mun skipa viðræðunefnd við ESB. Nefndinni til fulltingis verði samráðshópur fulltrúa hags- munaaðila. ■ Meðal grundvallarhagsmuna Íslands er að tryggja forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum, fiskveiðiauð- lindinni, að tryggja landbún- aðinn og að standa vörð um réttindi launa fólks og vinnurétt. ■ Stjórnvöld áskilja sér rétt til að mæla með eða leggjast gegn samningnum enda margvíslegir fyrirvarar við stuðning við aðild. ■ Stjórnvöld telja heppilegt að skipuð verði sérstök Evrópu- nefnd Alþingis sem farið gæti með sam skipti við viðræðu- nefnd við ESB, en láta Alþingi eftir að hlutast til um að slík Evrópunefnd verði skipuð. DÓMSMÁL Tveir piltar og stúlka hafa verið ákærð fyrir að ráðast saman á ungan mann í Fjölbrauta- skóla Suðurlands í lok janúar í ár. Ungmennin slógu fórnarlambið og spörkuðu í það. Annar pilturinn beit manninn þar að auki í hönd- ina. Þolandinn krefst 785 þúsund króna í bætur frá fólkinu. Piltarnir tveir voru í lok mars dæmdir á tveggja mánaða skil- orð fyrir aðra líkamsárás sem þeir frömdu á Selfossi í fyrra. Þá kýldu þeir mann þrívegis og börðu hann með kúbeini. Mennta- málaráðherra bað skólayfirvöld fyrir skemmstu um að endur- skoða þá ákvörðun sína að vísa piltunum ekki úr skóla. - sh Ofbeldismenn aftur fyrir dóm: Ákærð fyrir í ofbeldi í FSu GENGIÐ 14.05.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 210,6144 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,89 127,49 191,32 192,26 172,03 172,99 23,095 23,231 19,373 19,487 15,974 16,068 1,3315 1,3393 192,43 193,57 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.