Fréttablaðið - 15.05.2009, Side 30

Fréttablaðið - 15.05.2009, Side 30
 15. MAÍ 2009 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● eurovision Dómnefndir taka aftur til starfa í lokakeppni Eurovison-söngvakeppninnar annað kvöld, eftir samanlagða tólf ára fjar- veru. Í fyrsta sinn í sögu keppninnar hefur verið brugðið á það ráð að fá sérfræð- inga úr tónlistargeiranum en ekki full- trúa úr röðum almennings til að dæma. Atkvæði hverrar dómnefndar koma til með að hafa helmingsvægi á móti atkvæðum í sjón- varpskosningunum. Þegar liggur ljóst fyrir hverjir eiga sæti í írsku, frönsku og bresku dómnefndunum. Linda Martin, sigurvegari keppninnar frá 1992, og Paul Harring- ton, sigurvegarinn 1994, munu eiga sæti í þeirri írsku, og Corrine Hermès, sigurvegarinn frá 1983 í þeirri frönsku, svo dæmi séu nefnd. Dómnefndir snúa aftur Ætli dómnefndir verði hliðholl- ar Portúgal á morgun? Margir spá Norðmanninum Alexander Rybak sigri í Euro- vision á morgun. Tyrkneska laginu er einnig spáð góðu gengi. Allt frá því að úrslitin úr forkeppn- um þjóðanna sem taka þátt í Euro- vision-keppninni lágu fyrir hafa veðbankar spáð hinum norska Al- exander Rybak sigri. Alexander er fæddur 1986 í Hvíta-Rússlandi, en ólst upp í Nesodden rétt fyrir utan Ósló og hefur spilað á fiðlu og píanó frá fimm ára aldri. Hann hóf síðar að semja tónlist og syngja, en hann samdi sjálfur keppnis- lag sitt, Fairytale, þar sem hann spilar bæði á fiðlu og syngur. Al- exander er enginn nýgræðingur í tónlistarheiminum því hann hefur unnið til fjölda verðlauna, spilað með heimsþekktum fiðluleikur- um á borð við Pinchas Zukerman, verið konsertmeistari Ung Sym- foni í Bergen og leikið fiðlarann í Fiðlaranum á þakinu í Ósló. Hin tyrkneska Hadise hefur einnig vakið mikla athygli og spá flestir veðbankar henni 2. til 3. sæti. Hadise fæddist í Belgíu árið 1985 og var fyrst uppgötvuð í Idol þar í landi árið 2003. Síðan þá hefur hún gefið út tvær plötur, hlotið TMF-verðlaunin í Belgíu og lög hennar hafa náð miklum vin- sældum bæði í Belgíu og Tyrk- landi. Belgískir og tyrk- neskir fjölmiðlar fjalla nú um að Hadise sé byrj- uð með aðalhöf- undi lagsins, en þau hafa meðal annars sést leið- ast hönd í hönd í sam- kvæmum á Euroklúbbnum í Moskvu. Grikkjanum Sakis Rouvas hefur einn- ig verið spáð góðu gengi og er yfir- leitt í 2. til 5. sæti í veðbönkum. Sakis syngur lagið This Is Our Night og að sögn grískra fjölmiðla tekur hann ekki annað í mál en að vinna keppnina í ár. Mörgum þykir þó mikið hneyksli að Sakis eigi sér nokkurs konar bandamann í rússnesku dóm- nefndinni, en yfirmaður hennar er Filip Kirkorov sem tók upp dúett með Sakis fyrir nokkrum árum og varð það lag mjög vinsælt í Grikk- landi. Kirkorov þykir einnig hafa brotið traust með því að bjóða hinum norska Al- exander Rybak heim til sín í mat og er nú verið að skoða hvort honum verði vikið úr rússnesku dómnefndinni. Í flestum veðbönkum hefur Ísland færst ofar eftir gott gengi í undankeppninni á þriðjudaginn og er nú oftast spáð fimmta til tólfta sæti. - ag Norskur sigur í uppsiglingu? Keppendur gera allt til að vekja athygli. Dita Von Teese mun til dæmis dansa við þýska lagið. Alexander Rybak og fylgdarlið hans þykir sigurstranglegt í Eurovision. NORDICPHOTOS/GETTY Söngkonan Hadise hefur vakið mikla athygli og er spáð góðu gengi. NORDICPHOTOS/GETTY Grikkinn Sakis Rouvas ætlar sér að vinna keppnina. NORDICPHOTOS/AFP Páll Óskar Hjálmtýsson heldur sitt árlega Euro- vision-partý á Nasa á laugardag þegar úrslitin í Moskvu verða ljós. Og hann verður síður en svo einn um hituna. „Nei, þetta verða allar þessar íslensku kjarnorku- sprengjur, Selma Björns, Stebbi og Eyfi, Einar Ágúst og Telma, Icy-tríóið og Haffi Haff,“ segir Páll. Þrátt fyrir að þetta sé sjöunda árið sem Páll blæs til þessarar miklu Eurovision-veislu á hún sér tíu ára sögu. „Ég var að vinna á Spotlight árið 1999 þegar þjóðin óð út á götu og fagnaði silfrinu hennar Selmu Björns. Það varð allt tjúllað og ég ákvað að taka með mér allar Eurovision-plöturnar sem ég átti í fórum mínum. Í sjö tíma samfleytt gat ég spil- að þessa tónlist án þess að nokkur missti móðinn,“ segir Páll. Páll fylgist mikið með keppninni og segir að menn eigi ekki að láta það koma sér í opna skjöldu að gömlu austantjaldslöndunum gangi svona vel um þessar mundir. „Þessi lönd eru að senda sitt allra besta fólk enda er þetta ákveðinn stökkpallur fyrir þessi lönd.“ Hann bætir því við að Norðurlöndin hafi verið í svipuðum málum á áttunda og níunda ára- tugnum en Abba hafi opnað stórar og miklar dyr með sigri sínum fyrir 35 árum. - fgg Hr. Eurovision heldur partí Veisla Páls Óskars á Nasa þykir einstök. Sjöunda á svið J óhann Guðrún verður sjöunda á svið annað kvöld og ætti það að geta orðið henni happa- drjúgt enda talan sjö lengi verið talin heillatala. Talan kemur víða fram í Biblíunni en samkvæmt henni táknar hún Guð og heiminn. Talan þrír er tala Guðs og fjórir tala heimsins. Fjórir plús þrír eru sjö og því er sjö talin heilög tala. Þá eru dagar sköpunarinnar sjö en skaparinn hvíldist á sjöunda degi. Eins eru höfuðdyggðirnar sjö en þær eru trú, von, kærleikur, viska, hófsemi, hugrekki og réttlæti. Grikkir til forna sáu fyrir sér sjö himna og því er talað um að vera í sjöunda himni. Talan sjö var hin fullkomna heild og aldrei að vita nema Jó- hanna Guðrún verði í sjöunda himni að keppninni lokinni á morgun. - ve

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.