Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2009, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 15.05.2009, Qupperneq 32
 15. MAÍ 2009 FÖSTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● eurovision R ómarferðin stendur svolítið upp úr í minningunni. Með Eyva og Stebba að syngja Nínu 1991. Pétur Kristjánsson var með okkur og hann gerði ferðina ger- samlega ógleymanlega. Það er nú ekki flóknara en það.“ Þetta segir Eva Ásrún Albertsdóttir, spurð um bestu minninguna úr Eurovision- ferðum. Hún hefur farið fjórum sinnum sem bakraddarsöngkona fyrir Íslands hönd, 1989 til Laus- anne í Sviss með lagið Það sem enginn sér, 1991 til Rómar með Nínu, 1993 til Millstreet í Írlandi með Þá veistu svarið og 1994 til Dublin í Írlandi með Nætur. Allar fjórar ferðirnar voru skemmtilegar að sögn Evu Ásrúnar. „Mikið ævintýri. Spenna í loftinu. Góð blanda af vinnu og gleði.“ - gun Besta minningin Það hefur verið í nógu að snúast hjá íslenska Eurovision-hópnum í Moskvu. Þrotlaus undirbúning- ur skilaði frábærum árangri í undanúrslitunum á þriðjudagskvöld og nú er verið að hnýta síðustu lausu endana fyrir úrslitin annað kvöld. Meðfram þessu öllu hefur íslenski hópurinn sótt ótal samkvæmi og drukkið í sig Eurovision-stemninguna. Við fengum fulltrúa okkar í Moskvu til að spá í spilin fyrir annað kvöld. Íslendingarnir spá í spilin Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona 1. Noregur 2. Bosnía 3. Ísland 4. Armenía 5. Úkraína Yesmine Olsson einkaþjálfari og sviðsetningarstjóri 1. Noregur 2. Spánn 3. Ísland 4. Úkraína 5. Aserbaídsjan Óskar Páll Sveinsson lagahöfundur 1. Noregur 2. Frakkland 3. Tyrkland 4. Bosnía 5. Ísland Hallgímur Jensson sellóleikari 1. Bosnía 2. Ísland 3. Tyrkland 4. Eistland 5. Armenía Erna Hrönn Ólafsdóttir söngkona 1. Noregur 2. Ísland 3. Armenía 4. Frakkland 5. Bosnía Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona 1. Úkraína 2. Spánn 3. Tyrkland 4. Rúmenía 5. Bosnía Börkur Hrafn Birgisson gítarleikari 1. Ísland 2. Eistland 3. Portúgal 4. Noregur 5. Frakkland Elín Reynisdóttir förðunarmeistari 1. Ísland 2. Noregur 3. Bosnía 4. Úkraína 5. Þýskaland Margrét Einarsdóttir búningahönnuður 1. Noregur 2. Ísland 3. Armenía 4. Bosnía 5. Þýskaland Friðrik Ómar Hjörleifs- son söngvari 1. Noregur 2. Frakkland 3. Grikkland 4. Ísland 5. Tyrkland Tinatin Japaridze lagahöfundur 1. ?? 2. Noregur 3. Eistland 4. Portúgal 5. Ísland Chris Neil lagahöfundur 1. Ísland 2. Ísland 3. Ísland 4. Ísland 5. Ísland „Miðað við hvernig Jóhanna stóð sig í undankeppninni þarf ekki að ráðleggja henni með neitt, hún hefur þetta allt saman,“ svarar söngkonan Helga Möller, spurð hvort hún hafi ekki einhver góð ráð handa Jóhönnu fyrir aðal- keppnina. „Fólk finnur alltaf til einhvers konar spennings en hann hjálpar bara til.“ Helga er bjartsýn fyrir laugar- daginn og trúir ekki öðru en að ís- lenski hópurinn lendi í einhverju af tíu efstu sætunum. „Það small eitthvað algjörlega hjá þeim í undan keppninni. Ef þau halda því verða þau alveg örugglega ofar- lega.“ Hún segist fá kitl í magann við tilhugsunina um Eurovision. „Það er ótrúleg lífsreynsla að taka þátt í þessari keppni. Að standa frammi fyrir milljónum manna og syngja fyrir þjóðina sína, það er töfrum líkast.“ - hhs Jóhanna hefur allt sem til þarf Helga Möller var einn af flytjendum Gleðibankans, eins vinsælasta framlags Íslands til Eurovision. Hér er hún á milli þeirra Pálma Gunnarssonar og Eiríks Haukssonar. „Það er búinn til ævintýraheimur utan um keppnirnar,“ segir Eva Ásrún sem hefur tekið þátt í Eurovision-keppninni fjórum sinnum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Þ að er heppni með okkur núna,“ segir Sigríður Klingen- berg spákona, sem hefur tröllatrú á að Norðurlandaþjóðirnar komi sterkt inn í keppnina í ár. Spurð um frammistöðu Íslands segir hún: „Jó- hanna er frábær en kjóllinn sem hún klæðist er ekki alveg að gera sig þar sem hann minnir helst á bollu- vönd.“ Sigríður segist svo vilja beina eftirfarandi tilmælum til þjóðar- innar: „Allir verða að hugsa til Jó- hönnu af öllu afli þegar hún verð- ur á sviðinu í Moskvu.“ Hún bætir við að í orðum séu fólgin álög og hefur í tilefni af þátttöku Íslands í Eurovision ort álagaljóð sem hljóðar svo: Megi íslenska þjóðin á aflið sitt trúa í þessari orku er gott að búa. Megum við lífskraftinn finna og Eurovision vinna. Við getum alls ekki beðið um minna. - vg Hefur ort álagaljóð Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.