Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2009, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 15.05.2009, Qupperneq 62
38 15. maí 2009 FÖSTUDAGUR Strákafélagið Styrmir, sem er skip- að samkynhneigðum knattspyrnu- og sundmönnum, undirbýr þátttöku sína í World Outgames-leikunum sem verða haldnir í Kaupmanna- höfn í sumar. Um nokkurs konar Ólympíu- leika samkynhneigðra er að ræða og hlakkar Jón Þór Þorleifsson úr Styrmi mikið til. „Það eru stífar æfingar hjá öllum og mikil gleði. Við erum sex sem erum að fara að synda og svo eitt fótboltalið og stuðnings- menn með,“ segir hann en í hópnum eru 25 manns. Þetta verður í fyrsta sinn sem Styrmir tekur þátt í leikunum og jafnframt í fyrsta sinn sem sund- deildin lætur til sín taka. Fótbolta- liðið tók í vor þátt í alþjóðlegu móti í Kórnum í Kópavogi en sunddeildin fær nú loksins að sýna hvað í henni býr. Var hún stofnuð í september síðastliðnum með það að markmiði að taka þátt í leikunum. Fyrstu World Outgames-leikarnir voru haldnir í Montreal í Kanada fyrir þremur árum. Þar tóku 18 þúsund manns frá 111 löndum þátt í hinum ýmsu íþróttagreinum og er búist við enn meiri þátttöku í ár. Ekki skemmir fyrir þátttökunni að hin árlega Gay Pride-ganga verð- ur haldin í borginni þegar keppninni lýkur. „Við verðum örugglega þreytt eftir keppnina en það getur vel verið að við löbbum með,“ segir Jón Þór og segir að gangan verði góð upphit- un fyrir Gay Pride í Reykjavík einni viku síðar. - fb 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. íþrótt, 6. slá, 8. eldsneyti, 9. tunna, 11. hljóta, 12. peningar, 14. mjóróma, 16. kusk, 17. svelgur, 18. munda, 20. tvíhljóði, 21. högg. LÓÐRÉTT 1. þrákelkni, 3. kúgun, 4. hólburður, 5. hamfletta, 7. heimakoma, 10. ról, 13. örn, 15. laun, 16. umrót, 19. tvíhljóði. LAUSN LÁRÉTT: 2. golf, 6. rá, 8. kol, 9. áma, 11. fá, 12. aurar, 14. skræk, 16. ló, 17. iða, 18. ota, 20. au, 21. stuð. LÓÐRÉTT: 1. þráa, 3. ok, 4. lofræða, 5. flá, 7. ámusótt, 10. ark, 13. ari, 15. kaup, 16. los, 19. au. SPURNING DAGSINS Svör við spurningum á síðu 8 1 Laddi. 2 240 milljarðar króna. 3 Alsír. Lítt hefur farið fyrir nýjum þingmanni Borgaraflokksins, Þráni Bertelssyni, eftir að talsverð umræða varð um heiðurs- listamannalaun hans og hvort viðeigandi væri að hann þægi þau samfara þing- fararkaupi. Enda hefur Þráinn tak- markaðan tíma til að standa í slíkri diskúsjón en hann stefnir ótrauður á að senda frá sér endurminninga- bók um næstu jól en í bók númer tvö í þeirri ritröð skildu lesendur við Þráin þrítugan að aldri. Lesendur tóku fagnandi ÉG ef mig skyldi kalla – seinþroskasaga, sem er sjálf- stætt framhald metsölubókarinnar Einhvers konar Ég, en hún seldist í um fimm þúsund eintökum og samkvæmt hefðbundnu reiknilíkani útgefenda gerir það rúmar tvær milljónir í vasa höfundar. Útgefandi Þráins, Tómas Her- mannsson, er nú í önnum við að færa til bókar ævisögu Magnúsar Eiríkssonar og þegar Manna- korn spilaði á Húsavík um daginn notuðu þeir félagar tækifærið og óku yfir þúsund kílómetra, Tómas við stýrið og Magnús sagði honum sögur, meðal annars þá að eitt sinn voru hann og Pálmi Gunnarsson á Búðum að undirbúa Mannakorns- plötu númer fjögur. Brugðu sér út í hraun og sofnuðu þar í eina sjö klukkutíma í heiðríkju. Þeir hefðu undir venjulegum kringumstæðum átt að brenna rækilega í sólinni en ekki sást neitt á þeim. Magnús er sannfærður um það æ síðan að hafa verið tekinn af geimverum þennan tíma. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI „Við erum staddir hérna í þorpi rétt utan Prag. Og erum að gera auglýsingu. Kozel bjór sem er í eigu SAB Miller sem framleiðir Miller, Grolsch, tékkneska pilsner- bjórinn... við höfum verið hérna í nokkra daga núna,“ segir Samúel Bjarki Pétursson auglýsingaleik- stjóri. Enn bætist á glæsilegan afreks- lista auglýsingaleikstjóranna snjöllu, dúettsins Samma og Gunna, Gunnars Páls Ólafsson- ar, en þeir hrepptu nýverið afar eftirsóknarvert verkefni sem er að gera risastóra bjórauglýsingu fyrir SAB Miller. Sammi segist ekki vera með nákvæmar upplýs- ingar um kostnaðaráætlun en segir að gerð auglýsingarinnar sé í það minnsta á milli hundrað og hundr- að og fimmtíu milljónir íslenskra króna. Sem heitir risaauglýsing á íslenskan mælikvarða. „Já, þetta er mjög stór kúnni. Og veit ekki hvað SAB Miller eyðir mörgum hundruðum milljóna, ég heyrði einhvern tíma milljarð, á ári í auglýsingafé um heim allan. Fólk heldur áfram að drekka bjór í kreppunni,“ segir Sammi og lætur vel af sér og þeim félögum í Tékklandi. Í auglýsingunni leika um hundrað manns, þorpsbúar í þessu þorpi framleiða bjórinn og eru að draga eitt og annað heim- an frá sér til að hafa með á þorps- hátíð – eða festival. „Og með fylgir vörumerkið, sem er geithafur, einskonar fjallageit en það er sem sagt búið að temja eitt stykki geit í þrjár vikur. Þannig að hún fylgir vel tamin og góð.“ Að sögn Samma var slegist um þetta tiltekna verkefni. Þeir voru að keppa við tólf leikstjóra í Bret- landi um þetta tiltekna verkefni. „Já, og mikið af mjög stórum nöfn- um í auglýsingabransanum. Þetta var hörð barátta og Íslendingarn- ir urðu fyrir valinu að þessu sinni. Við erum kannski ekki svo hatað- ir í Bretlandi þegar allt kemur til alls,“ segir Sammi á léttum nótum. Og segir að það sé ekki fráleit samlíking að tala um einskonar auglýsinga-idol. „Við þurftum sem betur fer ekki að syngja. Þá hefðum við lent í 12. sæti. En það er auglýsingastofa sem hefur verið með þetta verkefni á sínu borði í ár þannig að mjög vel er passað uppá þetta. Fyrst eru menn vald- ir út frá því sem menn hafa gert. Og þá skorið niður í fimm manna hóp. Hver um sig þarf þá að skila inn áætlun, hvernig hugmyndin er að framkvæma og útfæra auglýs- inguna. Svo endar þetta í þriggja manna úrslitum en þá mæta menn í viðtal, þá í tvo og svo einn,“ segir Sammi. Kozel bjórinn hefur aðeins fengist í Tékklandi en nú stendur til að markaðssetja hann í Evrópu og gert er ráð fyrir því að auglýs- ingin fari í birtingu um miðjan júní. Íslendingar fá að sjálfsögðu ekki að sjá auglýsinguna, enda stranglega bannað að sýna áfengis- auglýsingar í íslenskum fjölmiðl- um. En Sammi gerir ráð fyrir því að sjá megi hana á youtube.com eins og allt annað. jakob@frettabladid.is SAMMI OG GUNNI: MEÐ TAMDA BJÓRGEIT Í 150 MILLJÓNA AUGLÝSINGU Gera bjórauglýsingu í Prag AUGLÝSINGALEIKSTJÓRINN SAMMI Mjög hörð samkeppni var meðal leikstjóra um þetta tiltekna verkefni fyrir SAB Miller – en okkar menn hrepptu samninginn. Tónlistarmaðurinn Arnar Jónsson, sem söng kántrí- lagið Easy to Fool í undankeppni Eurovison, er með tvö ný lög í undirbúningi. Annað nefnist Here I Am og er eftir Halldór Guðjónsson við texta Ronalds Kerst en hitt, sem hefur ekki fengið nafn, er eftir Örlyg Smára. Textann við það lag samdi móðir Arn- ars, Carola Ida Köhler, bloggari og fyrrverandi útvarpskona á Bylgjunni. „Hún er rosalega klár penni. Hún er mikið í því að skrifa og semja en það er ekkert sem hefur komið út,“ segir Arnar. „Við náum mjög vel saman ég og mamma mín,“ bætir hann við. Lagið er að sögn Arnars í anda nýtísku Brit-popps en hinu laginu, sem er væntanlegt í útvarp eftir nokkrar vikur, lýsir hann sem venju- legu popplagi með Eagles-áhrifum. „Þetta er bara mjög þægilegt og gott lag,“ segir hann. Höfundur- inn Halldór Guðjónsson samdi einnig lagið Dagur nýr sem Heiða Ólafsdóttir flutti í undankeppni Euro- vision og hefur hann því ágæta reynslu af popps- míðum sem þessum. Arnar segir að lögin tvö gefi tóninn fyrir væntan- legan sólóferil sinn. Hann á þó nokkur lög á lager sem hann hefur samið sjálfur og vonast hann til að gefa út sína fyrstu plötu á næsta ári. „Þetta er allt á réttri leið,“ segir þessi efnilegi söngvari. - fb Syngur lag við texta mömmu Fara á Ólympíuleika samkynhneigðra FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI ARNAR JÓNSSON Tónlistar maður- inn Arnar Jónsson er með tvö spennandi lög í undirbúningi. Á LEIÐ TIL KAUPMANNAHAFNAR Sundlið Strákafélagsins Styrmis sem keppir á World Outgames-leikunum í Kaupmannahöfn í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Yfirleitt hendi ég því sem er til í blandarann, appelsínusafa, ávöxtum og fleiru. Eini gallinn er að maður er yfirleitt orðinn svangur aftur eftir tuttugu mínútur.“ Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona CISV hefur verið starfandi á Íslandi í tæp 30 ár og sent yfi r 1.000 þátttakendur út um allan heim. Við erum með laus pláss fyrir eina stelpu og tvo stráka í unglingaskipti til Klagenfurt í Austurríki. Unglingaskiptin standa yfi r í fjórar vikur, tvær vikur í hvoru landi og dvelja krakkarnir inn á heimilum jafnaldra sinna. Krakkarnir byrja að hittast fl jótlega til að undirbúa unglingaskiptin og skipuleggja dagskránna. Nánari upplýsingar má fi nna á heimasíðu félagsins www.cisv.org, á netfanginu cisv@cisv.is eða í síma 861 1122 (Ásta).
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.