Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 4
4 27. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR STJÓRNMÁL Formaður viðskipta- nefndar ákvað í gær að taka end- urreisn bankanna til umræðu á fundi nefndarinnar í dag, eftir að þingmenn stjórnarandstöðu gagn- rýndu að hafa ekki fengið tæki- færi til þess að tjá sig um það í nefndinni. Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, hafði krafist fundar við fyrsta tækifæri, í ljósi ummæla sænska bankasér- fræðingsins Mats Josefsson um að endurreisn bankanna kostaði 85 prósent af þjóðarframleiðslu. Niðurlægjandi væri fyrir þing- heim að þurfa að læra um slíkt af Fréttablaðinu. Guðlaugur Þór segist hafa beðið margoft um að endurreisn bank- anna yrði rædd í nefndinni. VG hafi áður fyrr mikið rætt um gagn- sæi og opna stjórnsýslu, en reyni nú að koma í veg fyrir umræðu. „Þetta er gagnsæið í framkvæmd,“ sagði hann. Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, segir fjölmörg brýn mál á dagskrá nefndarinnar, sem tengist endurreisn bankanna. Til dæmis hafi forstjóri Fjármálaeft- irlitsins verið boðaður á fundinn í dag. Fleiri gagnrýndu dagskrárgerð þingsins almennt í gær. Birkir Jón Jónsson úr Framsókn harmaði til dæmis að þingið ætlaði að ræða um urðun á sorpi og erfðabreytt- ar lífverur, frekar en mál tengd Guðlaugur Þór segir þingið vera niðurlægt með lítilli upplýsingagjöf: Endurreisn banka rædd í dag MENNTAMÁL „Halda verður í sjálf- stæði þessara skóla, því það er þeirra styrkur,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Fram- sóknarflokks. Höskuldur telur af og frá að fækkun háskóla landsins úr sjö í tvo skili þeim úrbótum í menntamálum sem að er stefnt. Lögð er til sam- eining skólanna í nýrri skýrslu erlendra sérfræðinga í skólamál- um. „Þá eru til ótal leiðir aðrar til að ná fram hagræðingu í rekstri en að sameina skólana undir einn hatt,“ segir hann. Í sumar verða ræddar í háskóla- samfélaginu tillögur sérfræðing- anna, en þær voru kynntar í fyrra- dag. - óká Sameining og fækkun skóla: Sjálfstæðið er þeirra styrkur HÖSKULDUR ÞÓRHALLSSON MENNING Pétur J. Eiríksson, nýr stjórnarformaður Portusar, segir að ákvörðunar sé að vænta í sumar um hvaða starfsemi verð- ur til húsa í tónlistar- og ráð- stefnuhúsinu við höfnina. Hann reiknar með að Íslenska óperan verði í húsinu. Pétur segir að ekki þurfi að gera umtalsverðar breytingar til að svo geti orðið. „Það er búið að taka ákvörðun um hringsvið sem gerir allt auðveldara fyrir Óper- una, þá er hægt að skipta um leiktjöld og þannig.“ Pétur segir enn verið að ræða um Íslenska dansflokkinn. Hann þurfi minna húsnæði og aðstaðan í tónlistar- húsinu verði líklega dýrari en núverandi aðstaða. - kóp Stjórnarformaður Portusar: Ákvörðun um húsið í sumar GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON Hafði erindi sem erfiði og kom endurreisn bankanna á dagskrá viðskiptanefndar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN EFNAHAGSMÁL „Mest af krónubréf- unum er í raun og veru horfið, því bréfin sjálf voru komin á gjald- daga og þá voru þau bara greidd upp,“ sagði Gylfi Magnússon á blaðamannafundi ríkisstjórnar- innar í gær. „Krónubréfin sjálf eru því ekki svo mikið áhyggju- efni.“ Gylfi benti á að eitthvað af krónubréfum sé enn útistandandi, en það séu mun lægri upphæðir en þegar mest var. „Vandinn er mun frekar sá að útlendingar eiga innstæður í íslenskum bönkum, ríkisskulda- bréf, skuldabréf íbúðalánasjóðs og aðrar slíkar eignir. Gjaldeyris- höftunum var öðrum þræði ætlað að tryggja að þeir færu ekki með það fé of hratt úr landi,“ sagði Gylfi. - ss Viðskiptaráðherra: Krónubréf nánast horfin UMHVERFISMÁL Dofri Hermanns- son, fulltrúi Samfylkingarinnar í umhverfis- og samgönguráði, lagði til, á fundi ráðsins í gær, að ungt fólk yrði ráðið til þess að gera við hjól sem borgarbú- um stæðu svo til boða í sumar. Tillagan verður afgreidd á næsta fundi ráðsins. Dofri segir að hjól af þessu tagi þekkist í öllum stórborgum. Hægt sé að slá tvær flugur í einu höggi með því að veita ungling- um vinnu við að gera þau upp og bjóða almenningi þau síðan til notkunar. Hjólin væri hægt að mála í skærum litum og gætu þau sett svip sinn á borgarlífið. - kóp Fulltrúi Samfylkingarinnar: Hjól fyrir borg- arbúa í sumar STJÓRNMÁL „Það er ekki komin nið- urstaða í hvar við munum skera niður, eða hvar skattahækkanir verða, en það skýrist á allra næstu dögum,“ sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir forsætisráðherra á blaða- mannafundi ríkisstjórnarinnar í gær. Jóhanna sagði ríkisstjórnina vera að skoða niðurskurð í ríkis- fjármálum og skattahækkanir í samráði við aðila vinnumarkaðar- ins, en halli á ríkissjóði stefnir í að verða tuttugu milljörðum meiri en gert var ráð fyrir í síðustu fjárlög- um, það er 170 milljarðar í stað 150 milljarða. Til að bregðast við þessum aukna halla mun ríkisstjórnin bæði leggja til hækkanir á sköttum sem og nið- urskurð í ríkisfjármálum. „Fyrstu aðgerðir á sviði tekjuöflunar kemur fljótlega. Síðan kemur viðameira frumvarp sem felur í sér væntan- lega einhverja frekari tekjuöflun og sparnaðaraðgerðir. Í þriðja lagi kemur svo skýrslan um efnahagsá- ætlun í heild sinni, bæði fyrir 2010 og fram til 2013. Þar verða í megin- atriðum útfærðar þær leiðir sem á að fara í sparnaði og niðurskurði,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra. Hvorugt þeirra vildi útskýra nánar í hverju skattahækk- anirnar eða niðurskurðurinn fælist. „Sumt af þessu er bara þannig að það verður bara að birtast þegar það birtist og framkvæmist,“ sagði Steingrímur. Hann benti þó á að meiri háttar breytingar á sumum skattstofnum verði að falla á fjár- laga- og skattaáramót, sem er uum hver áramót. „Það er ekki hægt að breyta álagningu tekjuskatts á miðju ári nema með miklum vand- kvæðum,“ sagði hann. „Stærðargráða vandans er slík að menn munu ekki ná árangri nema bera niður á mjög breiðum almenn- um forsendum,“ sagði Steingrímur en ítrekaði, líkt og Jóhanna hafði gert áður, að markmiðið sé að hlífa mikilvægustu þáttum velferðar- þjónustunnar og dreifa skattahækk- unum á þá sem frekar eru aflögu- færir. „Það er okkar ásetningur að hefj- ast strax handa við að takast á við þennan halla, því ef ekkert verður gert í þeim efnum, þá bætist hann bara við þann vanda sem menn þurfa þá að glíma við um áramót- in,“ sagði Steingrímur. svanborg@frettabladid.is Skattahækkanir kynntar innan viku Fyrstu skattahækkanirnar til að loka tuttugu milljarða gati þessa árs verða kynntar um eða eftir næstu helgi. Skömmu síðar verða kynntar frekari skatta- hækkanir og niðurskurður hjá ríkinu. Tekjuskatti ekki breytt fyrr en um áramót. BLAÐAMANNAFUNDUR RÍKISSTJÓRNARINNAR Ráðherrar vildu ekkert gefa upp um hvar eigi að skera niður eða hækka skatta. Fyrstu aðgerðir verða kynntar í kring um næstu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STJÓRNMÁL Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, seg- ist ekki gagnrýna þá ákvörðun forsætisnefndar að leggja niður tímabundið aðstoðarmanna- kerfið svokall- aða, þar sem landsbyggðar- þingmenn höfðu aðstoðarmann í hlutastarfi. „Þetta er liður í sparn- aði og til bráða- birgða. En ég myndi gagnrýna þetta, væri ákvörðunin varanleg, því hún veikir samband þingmanna og kjósenda,“ segir hann. Einar nefnir, máli sínu til stuðnings, að eitt sinn hafi núver- andi Norðvesturkjördæmi haft fimmtán þingmenn. Nú stefni í að þeir verði átta. - kóþ Einar Kristinn Guðfinnsson: Mótmælir ekki sparnaði þings EINAR KRISTINN GUÐFINNSSON VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Ósló París Róm Stokkhólmur 21° 16° 20° 18° 15° 18° 20° 20° 15° 16° 23° 17° 18° 29° 16° 16° 29° 17° 14 Á MORGUN 5-10 m/s FÖSTUDAGUR 8-15 m/s 4 7 7 6 6 9 12 9 10 8 6 3 3 3 5 3 2 1 2 2 3 2 12 15 13 1212 RIGNING Á MORGUN Í dag verður ágætt veður. Hægur vindur og víða bjart, síst á Norðausturlandi. Í fyrramálið verður komin rigning sunnan og vestan til og víða um land um hádegi. Úrkomusvæðið geng- ur nokkuð hratt yfi r og því styttir víða upp þegar líður á morg- undaginn. Lægðinni á fi mmtudag fylgja eindregin hlýindi sem verða mest á Norðaustur- og Austurlandi. 9 12 1011 Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur GENGIÐ 26.05.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 216,1544 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,48 128,08 201,25 202,23 176,67 177,65 23,725 23,863 19,705 19,821 16,76 16,858 1,3426 1,3504 195,81 196,97 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR www.ms.is/gottimatinn nýtt! hrein jógúr t í ½ l umbúð um í morgunve rðar- eða sósuská lina alveg hreint frábær! H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 9 -0 1 9 2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.