Fréttablaðið - 27.05.2009, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 27. maí 2009
Skoðaðu gardplontur.is og nýttu þér dýrmæta þekkingu
og reynslu íslenskra garðyrkjubænda.
VELDU ÍSLENSK SUMARBLÓM, SÉRMERKT ÞÉR.
„Íslensk blóm
eru harðgerð,
kröftug og fersk.“
Björn Sigurbjörnsson, garðyrkjumaður.
Í áratugi hafa íslenskir garðyrkjubændur unnið að því að byggja upp
og rækta úrval af garðplöntum fyrir íslenska veðráttu. Nú hafa þeir
opnað vefinn gardplontur.is Þar má finna margvíslegan fróðleik.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
G
B
4
62
96
0
5/
09
„Líðan hans er stöðug en þetta eru
krítískir dagar,“ segir Haraldur Henrys-
son, afi drengsins sem lenti í slysinu í
Garðabæ og liggur nú í öndunarvél á
gjörgæsludeild. Drengurinn höfuð-
kúpubrotnaði og það kom blæðing
inn á heilann. „Maður verður bara að
láta hverjum degi nægja sína þjáningu
núna meðan beðið er en við vonum
að hægt verði að vekja hann fljótt.“
Hann segir að drengurinn hafi farið
milli tveggja kyrrstæðra bíla sem lagt
var við götuna. „Annar þeirra var frekar
hár svo hann byrgir bæði drengnum
og ökumanninum sýn. Þannig að
ökumaður sá ekkert fyrr en allt var
um seinan.“ Heimildir Fréttablaðsins
herma að ökumaður hafi ekki ekið
hratt þegar slysið varð.
„Það er að mörgu að huga þegar
börn eiga í hlut en ég vil hvetja
bílstjóra til að huga að því þegar
þeir leggja bílum sínum, sérstaklega
ef þeir eru stórir, að gera það ekki
þannig að það byrgi vegfarendum
sýn.“
AFI DRENGSINS SEM LENTI Í SLYSINU:
„KRÍTÍSKIR DAGAR“
SLYSAGILDRA VIÐ BLÓMVANG Í HAFNARFIRÐI Þarna átti slys sér stað síðastliðinn
laugardag. Eins og sjá má er engin leið fyrir ökumann að sjá vegfaranda sem
kemur af göngustígnum, sem er handan við hvíta vegginn, fyrr en um seinan.