Fréttablaðið - 27.05.2009, Side 12
12 27. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is
og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf.
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI:
Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur
sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Hvað hefur eiginlega komið fyrir Rachidu Dati?“ spurðu
áhyggjufullir fréttamenn nýlega
í fréttatímum franskra útvarps-
stöðva. Rachida Dati var þá í þann
veginn að láta af störfum sem
dómsmálaráðherra og hafði tekið
við öðru sætinu á lista stjórnar-
flokksins fyrir Parísarsvæðið í
Evrópukosningunum sem fara
fram 7. júní. Í þessu nýja hlutverki
sínu hafði hún mætt á fundi ungra
flokksmanna og svarað spurning-
um þeirra, en svörin sem hún gaf
þóttu í meira lagi undarleg. Hún
var spurð hvort ráðamenn í Evr-
ópusambandinu skiptu sér ekki
um of af innanlandsmálum aðild-
arríkjanna, og þá sagði hún þetta:
„ESB skiptir sér af því sem það
er látið skipta sér af …Það skiptir
sér af því sem það er látið skipta
sér af hjá þeim mönnum sem geta
lagt fram mál til að skipta sér af.
Sem sagt í þessu tilviki okkur.“ Og
svo bætti hún við: „Var þetta ekki
bara nokkuð gott hjá mér?“
Þegar hún svaraði síðan spurn-
ingu um orkumál tók hún fram að
svarið hefði hún undirbúið vand-
lega og fór svo að rýna í blöð: „Við
vorum búin að æfa þetta! Og nú
les ég. 77% af okkar orku koma úr
kjarnorkuverum … Er það ekki?
Nei, raforku … en mér var samt
sagt orku. En það skiptir ekki
máli, það þarf hvort sem er að
leggja höndum saman til að efla
vindrafstöðvar. Er það ekki?“
Fréttamenn veltu því fyrir
sér hvort frambjóðandinn hefði
verið undir einhverjum annar-
legum áhrifum, og stjórnarand-
stæðingar sögðu: „hneykslanlegt“,
„ömurlegt“. En Michel Barnier,
sá sem var efstur á listanum, kom
Rachidu Dati til varnar og sagði
að andrúmsloftið þessa stundina
hefði verið alveg sérlega afslapp-
að, menn hefðu verið að gera að
gamni sínu eftir flóknar umræð-
ur. „Stjórnmálin eru líka hlátur“
sagði Rachida sjálf.
Svo er þó ekki að sjá að menn
hafi mikið látið sannfærast af
þessari skýringu, og fréttaskýr-
andi einn, þekktur stjórnmála-
fræðingur, sem ég heyrði í útvarp-
inu, leit öðrum augum á málið.
„Þegar ég var í skóla“, sagði
hann, „vildu foreldrar mínir að
ég lærði rússnesku og settu mig
í rússnesku tíma. En ég vildi það
alls ekki, og hvernig hefndi ég
mín? Ég ullaði framan í kennar-
ann. Nú er Rachida Dati fallin í
ónáð, Sarkozy ætlar að losa sig við
hana með að senda hana í skamm-
arkrókinn á Evrópuþinginu í
Strassborg, og við því bregst hún
á sama hátt og ég gerði, hún ullar
framan í menn.“ Svo bætti hann
við: „Michel Barnier var ráðherra
og enginn tók eftir honum, bráðum
verður hann væntanlega kominn
á þing í Strassborg þar sem eng-
inn mun heldur taka eftir honum,
en þarna gat hann látið ljós sitt
skína.“
Vafalaust hafði hinn lærði
stjórnmálafræðingur nokkuð til
síns máls, en samlíkingin er þó að
einu leyti völt. Líklegt er að rúss-
neskuneminn ungi hefði fengið að
dúsa í einhverju skamma-gúlagi
skólans ef kennarinn hefði tekið
eftir honum, en þeir sem horfðu á
dómsmálaráðherrann leika þess-
ar sömu listir höfðu hins vegar hið
mesta gaman af því. Því enginn
þeirra lét blekkjast. Varla nokkur
maður í Frakklandi virðist taka
þessar Evrópukosningar alvar-
lega, og margir leiða þær með öllu
hjá sér. „Hvaða kosningar?“ spyrja
þeir ef þær ber á góma, „verða ein-
hverjar kosningar, verða kannske
einhverjar kjördeildir opnaðar?“
og svo yppa þeir öxlum. Menn
vita að á þetta þing í Strassborg
eru einkum sendir þeir sem menn
vilja af einhverjum ástæðum losa
sig við úr stjórnmálum, bæði þeir
sem eru fallnir í ónáð og svo þeir
sem ekki er lengur pláss fyrir og
hafa orðið undir í glímunni en hafa
þó enn nægilega beittar vígtennur
til að geta glefsað, ef þeim er ekki
séð fyrir feitum bitling. Þeir eru
sárafáir sem velja af sjálfsdáð-
um þetta þing til að láta þar til sín
taka, varla aðrir en Daniel Cohn-
Bendit, flestir þeir sem þang-
að dæmast taka þann kostinn að
láta sem sjaldnast sjá sig á þessu
krummaskuði, og ef þeim tekst
að ná í eitthvert alvöru umboð
kjósenda í Frakklandi, þingsæti í
París og slíkt, eru þeir umsvifa-
laust hlaupnir. Þetta gildir að vísu
ekki um þingmenn frá norður-
hluta Evrópu, sem munu vera afar
glaðir yfir því að fá að frílista sig
í Elsass, en um fjarvistir frönsku
þingmannanna er oft skrifað í
blöð.
Þess vegna er nú kominn nokk-
ur skjálfti í leiðtoga frönsku
stjórnmálaflokkanna. Í síðustu
Evrópukosningum var þátttakan
ekki nema rétt yfir fjörutíu pró-
sent, og nú óttast sumir að hún
kunni að verða enn minni. Aðeins
eitt getur orðið til bjargar, menn
líta stundum á þessar kosningar
sem nokkurs konar „alvöru“ skoð-
anakönnun sem leiði í ljós breyt-
ingar á fylgi flokka. Þeir sem eru
mjög pólitískir munu því kannske
greiða atkvæði til að forða Flokkn-
um Sínum frá afhroðum. Þannig
hafa kosningarnar a.m.k. fengið
einhvern tilgang.
Hvaða kosningar?
EINAR MÁR JÓNSSON
Í DAG | Skammarkrókurinn í
Strassborg
UMRÆÐAN
Gestur Valgarðsson skrifar um bæjar-
mál í Kópavogi
Að undanförnu hefur mikið verið fjallað um viðskipti Kópavogsbæjar við fyrir-
tækið Frjálsa miðlun sem er í eigu dóttur
bæjarstjórans, Gunnars I. Birgissonar. Fjöl-
miðlar hafa gert málinu skil og dregið fram
atriði sem krefjast skýringar.
Fáir hafa tjáð sig opinberlega en þó eru
dæmi um það. Einn af trúarleiðtogum Sjálfstæðis-
flokksins, Gunnar í Krossinum, tjáði sig um málið
nýlega. Þá hefur formaður Sjálfstæðisflokksins sagt
að hann skorti skilning og upplýsingar um málið.
Samfylkingin er málshefjandi en hefur ekki sett
fram skýrar kröfur í málinu en það verður að teljast
mikilvægt að hún geri það.
Framsóknarmenn hafa haldið fund um málið
og lauk honum með þeirri ákvörðun að rétt væri
að bíða skýrslu endurskoðenda áður en til frek-
ari aðgerða verður gripið. Leggjum við jafnframt
áherslu á að vinnan verði vönduð og flýtt eins og
unnt er.
Þess skal getið að margir framsóknarmanna
eru ósáttir við þessa afstöðu og benda á
að þarna er möndlað með útsvarspening-
ana okkar. Til málsbóta verður að segja
að uppgefnar tölur eru með virðisauka og
aðkeyptri þjónustu svo sem prentkostnaði
og fleiru. Þetta er rétt að hafa í huga.
Þó sýnist sem einn rauður þráður gangi
í gegnum stöðumat margra en það er að
samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks á undanförnum árum hefur skilað
góðu búi, ekki síst á tímabili Sigurðar Geir-
dal. Má jafnvel segja að þar í felist máls-
bætur sem komi til refsilækkunar – ef þannig má að
orði komast.
Það liggur hins vegar einnig fyrir að Framsóknar-
flokkurinn mun ekki sitja undir því mati að þessi
viðskipti séu eðlileg og ógagnrýniverð og vill leggja
sitt af mörkum til að ná sáttum við bæjarbúa. Fram-
sóknarflokkurinn í Kópavogi mun ekki láta sitt
eftir liggja og ef Sjálfstæðisflokkurinn finnur ekki
leið út úr þessum ógöngum hljótum við framsókn-
armenn að endurskoða afstöðu okkar til málsins í
heild sinni.
Höfundur er formaður
Framsóknarfélags Kópavogs.
Málsvörn framsóknarmanna
GESTUR
VALGARÐSSON
Löglega afsakaðir
Á mánudag gaf Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra skýrslu um
efnahagsmál að beiðni sjálfstæðis-
manna en á eftir gafst tími fyrir and-
svör. Lítið fór fyrir sjálfstæðismönn-
um í þeirri umræðu og benti Margrét
Tryggvadóttir, þingmaður Borg-
arahreyfingarinnar, á að það væri
enginn sjálfstæðismaður í þing saln-
um til að ræða skýrsluna sem þeir
óskuðu eftir. Margrét
fékk þau svör að
þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins
væru farnir upp í
Valhöll að borða
rjómatertur í
tilefni af 80 ára
afmæli flokksins.
Ramboð
Ríkisstjórnin hefur gefið út sam-
starfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna í
snotrum bæklingi. Hún hefst á þess-
um orðum: „Ríkisstjórn Samfylking-
arinnar og ramboðs [sic!] er mynduð
um að tryggja félagslegan
og efnahagslegan stöðug-
leika …“ Orðið ramboð er
ekki að finna í orðabók
Marðar Árnasonar. Ætli það
hafi verið í verkahring
Samfylkingarinnar að
prófarkalesa
bækling-
inn?
Opið umboð
Stjórnarandstaðan geldur varhug við
þingsályktunartillögu ríkisstjórnar-
innar um aðildarviðræður við ESB
og klifar á því að hún vilji ekki veita
Samfylkingunni „opið umboð“ til
samningaviðræðna. Það væri
auðvitað ekki æskilegt; ef Sam-
fylkingin hefði opið umboð í
samningaviðræðum gæti hún
bara tekið sig til og gengið í
ESB án þess að spyrja kóng
né prest. En það er ekki svo – í
þingsályktunartillögunni er kveðið
skýrt á um að aðildarsamningur-
inn yrði borinn undir þjóðar-
atkvæði. Umboðið er nú ekki
opnara en svo.
bergsteinn@frettabladid.is
Aðalfundarborð
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar HF., enskt hjáheiti
„Thorverk“, boðar hér með til aðalfundar félagsins er
haldinn verður í fundarsal Þörungaverksmiðunnar á
Reykhólum miðvikudaginn 3. júní nk. kl. 1300.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
• Hefðbundin aðalfundarstörf í samræmi við
16. grein samþykkta félagsins
• Önnur mál sem löglega eru upp borin
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar HF
Í
þessari viku hafa tveir menn gert að umtalsefni þátt einka-
væðingar bankanna í hruni efnahagslífsins. Annar er innan-
búðarmaður í íslensku efnahagslífi í áratugi, hinn erlendur
sérfræðingur og gestur í landinu. Báðir komast að sömu
niðurstöðu. Margt af því sem helst fór úrskeiðis í viðskipta-
lífinu tengist með beinum hætti einkavæðingu Landsbankans og
Búnaðarbankans á sínum tíma.
Þetta eru ekki fyrstu mennirnir sem vilja líta aftur til einka-
væðingar bankanna sem upphafið að endalokum bankakerfisins,
og örugglega ekki þeir síðustu. Það er hins vegar full ástæða til að
halda orðum þeirra rækilega til haga og draga af þeim mikilvægan
lærdóm um það hvernig á ekki að standa að verki.
Fyrrnefndi maðurinn er Þorsteinn Sigurlaugsson, framkvæmda-
stjóri hjá Háskólanum í Reykjavík og fyrrverandi framkvæmda-
stjóri hjá Eimskip. Í nýrri bók gengur hann svo langt að fullyrða að
„upphaf efnahagshruns þjóðarinnar“ megi rekja til einkavæðingar
bankanna. Í kjölfarið hafi orðið sú breyting í viðskiptaumhverfi
landsins að lánastofnanir og eigendur þeirra urðu í mörgum tilvik-
um bæði stórir hluthafar og stórir lánveitendur í fyrirtækjum. Það
hafi reynst banvæn blanda.
Hinn síðarnefndi er Svíinn Mats Josefsson, ráðgjafi ríkisstjórn-
arinnar um endurreisn bankakerfisins. Hann komst svo að orði í
viðtali að eftir einkavæðingu hafi bankarnir byrjað að kaupa fyrir-
tæki úti um allt, innanlands og utan. Sagðist hann ekki vita um nein
sambærileg dæmi. Afleiðingin varð gríðarleg en innistæðulaus
þensla í hagkerfinu.
Nauðsynlegt er að færa til bókar að hvorugur gagnrýnir að bönk-
unum hafi verið komið úr eigu ríkisins. Málið snýst um hvernig að
því verki var staðið og hvaða umgjörð var sköpuð í framhaldinu.
Eða réttara sagt láðist að skapa með því að styrkja regluverk um
fjármálastofnanir og eftirlit með þeim.
Aðferðafræðin og sjónarmiðin að baki einkavæðingu gömlu rík-
isbankanna eru því miður lýsandi fyrir það óheilbrigða viðskipta-
umhverfi sem ríkti á Íslandi um árabil í skjóli Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks. Davíð Oddsson, Halldór Ásgrímsson, Geir H.
Haarde og Valgerður Sverrisdóttir voru fulltrúar þessara flokka í
ráðherranefnd sem tók ráðin af framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu og ákvað hverjir ættu að fá að eignast Búnaðarbankann og
Landsbankann.
Skyndilega var horfið frá skynsamlegum hugmyndum um að
mikilvægt væri að eignarhaldi í bönkunum yrði dreift svo þeir yrðu
sem hlutlausastir gagnvart viðskiptalífinu. Í staðinn voru handvald-
ir menn sem tengdust þessum flokkum.
Í grein um Davíð Oddsson, í bókinni Forsætisráðherrar Íslands,
færir Styrmir Gunnarsson rök fyrir því að ástæðan fyrir kúvend-
ingu Davíðs frá dreifðu eignarhaldi hafi verið vilji hans til að skapa
mótvægi við þá ógn sem hann sá þá stafa frá Íslandsbanka.
Þetta er örugglega rétt mat hjá Styrmi. Þetta varð hins vegar til
þess að allir stærstu bankar landsins urðu meira eða minna eins.
Í þröngu eignarhaldi, áhættusæknir og hagsmunir þeirra fléttað-
ir rækilega saman við afkomu annarra stórra félaga í eigu sömu
manna. Íslenskt hagkerfi hefði sjálfsagt þolað einn slíkan banka, en
þrír kafsigldu það. Það verður ekki vikist undan dómi sögunnar.
Dýrkeypt einkavæðing helmingaskiptaflokkanna:
Dómur sögunnar
JÓN KALDAL SKRIFAR