Fréttablaðið - 27.05.2009, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 27. maí 2009 13
UMRÆÐAN
Ingvar Arnarsson skrifar um
vegalagningu í Garðabæ
Nú í byrj-u n su m -
ars á að ráðast
í vegalagningu
á nýjum Álfta-
nesvegi. Marg-
ir telja að þessi
vegur sé óþarf-
ur og þarna sé
verið að bruðla
með almannafé.
Einnig er talið
að þessi vegur muni eyðileggja
fornminjar, forna slóða og leggja
í rúst frábært útivistarsvæði sem
gæti nýst Garðbæingum og Álft-
nesingum um ókomna tíð. Þrátt
fyrir mikla andstöðu við þennan
veg þá virðist fátt geta stöðvað
þessa framkvæmd.
Ég er einn af þeim sem undrast
þessa framkvæmd og eftir sam-
töl mín við menn sem vinna fyrir
bæinn eru margir þeirra á sama
máli. Garðabær hefur nú þegar
tekið út fyrirhugaða tengingu við
Vífilsstaðaveg og var það gert
vegna þrýstings manna sem tengj-
ast bæjarstjórn flokksböndum
og búa í Ásahverfinu, ekki vildu
þessir ágætu menn fá aukna bíla-
umferð í hverfið sitt. Tenging Víf-
ilsstaðavegar við Álftanesveg var
ein af forsendum þess að vegurinn
skyldi færður út í hraunið, einnig
var talið nauðsynlegt að stækka
veginn svo hann gæti þjónustað
þann fjölda fólks sem átti að flytja
í fyrirhugaða byggð á Garðaholti,
sem verður ekki mjög stór og fjöl-
menn úr þessu.
Þeir sem hafa mótmælt þess-
ari framkvæmd hafa komið með
margar tillögur sem gætu verið
mun auðveldari í framkvæmd
og myndu ekki raska hrauninu
eins mikið og nýi vegurinn. Sem
dæmi má nefna að leggja hluta
núverandi Álftanesvegar í stokk
þar sem íbúðabyggð við hann er
sem mest og gera húsagötu ofan á
stokkinn. Halda sig við núverandi
vegstæði, setja á hann hringtorg
og þannig hægja á umferð um
hann og fækka þeim hraðaksturs-
slysum sem hafa þar orðið. Laga
núverandi vegarstæði og reisa
við veginn hljóðmanir eða grind-
verk.
Allar þessar hugmyndir hafa
verið hunsaðar af ákveðnum
mönnum í bæjarstjórn og virðist
sem eitthvað undarlegt sé í gangi
og vekur þetta hjá mér margar
spurningar, því að það virðast
allir aðrir en þessir ágætu aðilar
vera á sama máli, að þessi vegur
sé óþarfur.
Ég minnist því setningar úr
góðri bíómynd sem hljóðaði svo:
Eltið peningaslóðina!! Og þess
vegna er ég nokkuð viss um að
gerð þessa nýja Álftanesvegar sé
til að þjóna hagsmunum einhverra
peningamanna.
Nú spyr ég ykkur í bæjarstjórn
Garðabæjar; hverjir munu hagn-
ast á þessum vegi? Þ.e.a.s. af
hvaða aðilum þarf að kaupa land
sem þessi vegur mun fara yfir og
hversu háar fjárhæðir eru áætlað-
ar í það? Hver mun hagnast mest á
þessum vegi, eru það íbúar Garða-
bæjar og Álftaness eða er einhver
annar sem mun græða á þessari
fáránlegu vegalagningu?
Höfundur er Garðbæingur.
Nýr Álfta-
nesvegur
INGVAR
ARNARSSON
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
Kaupþing býður til fræðslufundar um lífeyrissparnað, á morgun
28. maí í Borgartúni 19, klukkan 17.30.
Fræðsla á mannamáli. Gott tækifæri til að öðlast betri skilning
á lífeyrismálum. Fróðleikur og veitingar.
Allir velkomnir.
Skráðu þig á www.kaupthing.is
eða hafðu samband við Ráðgjöf
Kaupþings í síma 444 7000.
LÍFEYRISSPARNAÐUR
Á 60 MÍNÚTUM