Fréttablaðið - 27.05.2009, Síða 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
FERÐAFÉLAGIÐ ÚTIVIST stendur fyrir dagsferð á fjallið Þríhyrning á
hvítasunnudag. Frá Engidal verður gengið upp Þríhyrningshálsa og um
Flosadal á tinda fjallsins. Vegalengd er 7-8 km, hækkun er 400
metrar og göngutími 5 tímar. www.utivist.is
Ari Baldur Baldvinsson er Reyk-
víkingur en stundar nám við Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga í Grund-
arfirði. Hverju sætir það? „Bara
flipp! Ég bý í húsi sem foreldrar
mínir eiga í Stykkishólmi,“ segir
Ari en upplýsir að hann hafi ekki
hafið námið fyrr en eftir áramót. Í
byrjun nóvember ferðaðist hann til
Venesúela á vegum Nínukots.
„Ferðalagið var langt og strangt.
Ég fór fyrst til Danmerkur, svo
Parísar, þaðan til Caracas, sem er
höfuðborg Venesúela, og loks tók ég
innanlandsflug til borgarinnar sem
ég dvaldi í,“ segir Ari sem var einn
á ferð en dvaldi á fjölskyldugisti-
heimili sem hann hafði bókað.
En hvað var hann að bralla í
henni Ameríku? „Ég var í sjálf-
boðaliðastarfi í dýragarði, lærði
spænsku og ferðaðist,“ svarar hann
og bætir við að ferðin hafi verið
algert ævintýri þótt spænskukunn-
áttan hafi ekki batnað eins mikið og
hann hafði vonast til. „Ég var bara
eina viku á spænskunámskeiði til
að fá grunn en hefði líklega þurft
að vera lengur,“ segir hann glað-
lega en Ari dvaldi fimm vikur í allt
í Suður-Ameríku.
Eftir tungumálakennsluna tók
við fjögurra vikna sjálfboðaliða-
vinna í dýragarðinum. „Vinnan
fólst í því að skera niður ávexti,
búa til mat og gefa dýrunum að
éta,“ segir Ari og viðurkennir að
sér hafi ekki þótt þetta mjög mikil
eða erfið vinna. „Svo fylgdist ég
með dýralækninum og hjálpaði
honum ef með þurfti. Ef ekkert var
að gera fór ég á dýralæknastofuna
með honum og hjálpaði til í aðgerð-
um,“ segir hann stoltur og líkaði sú
vinna ljómandi vel. „Þetta var eitt-
hvað alveg nýtt.“
Hvað var svo skemmtilegast við
þessa vinnu? „Að vera innan um
dýrin, ekki síst apana og kond-
órinn,“ segir Ari og útskýrir að
kondórinn sé stór örn sem lifi
í Andesfjöllunum og sé einn sá
stærsti í heimi. „Þessi örn var ekki
grimmur enda var hann hálfgerð-
ur unglingur og búinn að vera lengi
í dýragarðinum. Hann var hins
vegar mjög orkumikill, eiginlega
algerlega ofvirkur, hoppaði um allt,
rændi hlutum og gerði tígrisdýrin
og önnur dýr í garðinum alveg vit-
laus,“ segir Ari og hlær við tilhugs-
unina. Hann stefnir nú á að læra
betur spænskuna enda er ætlunin
að fara aftur til Suður-Ameríku til
að skoða fleiri lönd.
gun@frettabladid.is/solveig@frettabladid.is
Viðraði apa og örn
Ari Baldur Baldvinsson dvaldi í fimm vikur í Suður-Ameríku í lok síðasta árs. Þar starfaði hann sem sjálf-
boðaliði í dýragarði, myndaðist við að læra spænsku og ferðaðist víða.
Ari Baldur með kyrkislöngu í dýragarðinum í Venesúela þar sem hann starfaði sem sjálfboðaliði. MYND/ÚR EINKASAFNI
MISTY
Gó jónusta - fagleg rá gjöf
Laugavegi 178, 105 R
sími 551-3366 - www.misty.is
opi mán-fös 10-18, lau 10-14
teg. Amethyst
- alveg sérlega
fallegir push up
BH á kr. 8.845,-