Fréttablaðið - 27.05.2009, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 27. maí 2009 3
Salka bókaforlag gefur út tvær
veiðibækur á næstunni. Þetta
eru Lax í sparifötum þar sem
þekktir stjörnukokkar koma við
sögu og bókin Áin eftir Bubba
Morthens.
„Þarna eru heimsóttar allar helstu
veiðár landsins,“ segir Hildur Her-
móðsdóttir, bókaútgefandi hjá
Sölku, um bókina Lax í spari fötun-
um sem forlagið gefur út á íslensku
og ensku á næstunni.
„Heimsótt eru veiðihús og
matreiðslumenn teknir tali,“
bætir Hildur við og upplýsir
að þekktir stjörnukokkar
komi við sögu í bókinni,
eins og þeir Sturla
Birgisson, Úlfar
Finnbjörnsson,
Siggi Hall og Sig-
urður Gíslason.
„Þeir gefa les-
endum líka upp-
skriftir sem eiga
vonandi eftir að
gleðja margan
sælkerann.“
Hún bendir
jafnframt á að
Bjarni Brynjólfs-
son annist rit-
stjórn og textagerð og Lárus Karl
Ingason taki myndir.
Með haustinu gefur Salka svo
út bók tónlistar- og veiðimanns-
ins Bubba Morthens, sem kallast
Áin, en ljósmyndir á Einar Falur
Ingólfsson. Í bókinni tekur Bubbi
fyrir sitt eftirlætis laxveiðisvæði,
Nessvæði í Laxá í Aðaldal. „Þar
er til dæmis fjallað um frum-
herja í laxveiði á bökkum Laxár
og birtar einstakar tölulegar upp-
lýsingar um stórlaxa sem veiðst
hafa á Nessvæðinu,“ nefnir Hild-
ur, sem segir frá því að höfund-
urinn Bubbi hafi meðal annars
skráð ýtarlegar veiðistaðalýs-
ingar sem koma fram í bók-
inni.
„Skemmtilegt er að segja
frá því að einnig eru birt sam-
töl sem Bubbi hefur átt við
ólíka veiðimenn,“ segir
hún og tiltekur viðmæl-
endur eins og Eyþór Sig-
mundsson, Völund Her-
móðsson, Árna Pétur
Hilmarsson og Pétur
Steingrímsson. - vg
Veiðibækurnar Lax
í sparifötum og Áin
Bubbi sleppir laxi í Þvottastreng.
Látrabjarg er 14 km að lengd og 441
metra hátt.
Í daglegu tali er Látrabjargi skipt í fjóra
hluta og stafar sú skipting fremur af
ítökum bæja í nágrenninu en af nátt-
úrulegum orsökum. Þó er austasti
hlutinn, Keflavíkurbjarg, nær slitinn frá
aðalbjarginu. Hinir hlutarnir þrír nefn-
ast Látrabjarg, Bæjarbjarg og Breiða-
víkurbjarg.
Nafn Látrabjargs er dregið af orðinu
látur. Látur eða sellátur er svæði nærri
sjó, þar sem selir kæpa.
Látrabjarg iðar allt af fugli framan af
sumri. Þar verpa einkum álka, langvía,
svartfugl, stuttnefja, rita, lundi og fýll.
Stærsta álkubyggð í heimi er í Stóru-
urð. Fuglarnir verpa í nánu sambýli í
björgunum, en þó eru ein eða tvær
tegundir ríkjandi í hverjum bjarghluta.
Látrabjarg er mikil matarkista og hefur
verið nytjað frá landnámstíð. Eggja-
tekja og fuglatekja á vorin og
sumrin eru hlunnindin sem
bjargið býður og voru þau einn
mikilvægasti bjargræðisvegur
nálægra byggðarlaga.
Látrabjarg
LÁTRABJARG Á VESTFJÖRÐUM ER
STÆRSTA SJÁVARBJARG LANDSINS OG
VESTASTI ODDI ÍSLANDS.
Laugavegurinn kallast gönguleiðin milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Hún
er 54 km löng og fer hæst í 1.050 metra yfir sjávarmáli. Áfangar á leiðinni eru
fjórir; Hrafntinnusker, Álftavatn, Hvanngil og Emstrur. Leiðin endar í Þórsmörk
þar sem gengið er í Húsadal, Langadal eða Bása.
www.wikipedia.org
Jónsmessunótt á Fimmvörðuháls
Skráning í
Jónsmessunæturgöngu
Útivistar í síma
562 1000
Upplifðu stemninguna
VERSLUN / VERKSTÆÐI
Helluhrauni 4 220 Hafnarfjörður
Sími 555 4900
Allar nánari upplýsingar um þjónustu og vörur á www.rotor.is. lang - stærsti húsbílavefurinn
Viðgerðir Kæliskápar Reiðhjólagrindur Ferðasalerni Fortjöld
Húsbílaþjónusta og fylgihlutir í ferðalagið
Allt í húsbílinn...
...í settum fyrir handlagna
Rótor ehf býður upp á viðgerðaþjónustu
á rafbúnaði húsbíla og vagna ásamt
uppsetningu og tengingu á þeim búnaði
sem við seljum á einu besta
þjónustuverkstæði landsins.
Gasmiðstöðvar
1900 - 2800W
Vatnshitarar
13L gas / 220V
Sólarsellusett í úrvali.
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
• Verndar fætur og
hindrar blöðrumyndun
• Vatnsheldur
- vörn gegn bakteríum
• Dregur úr óþægindum
og sársauka
Fæst í apótekum
Compeed
plásturinn
Fyrir útivistarfólk
Góðar ferðatöskur
geta gert
gæfumuninn!
Skólavörðustíg 7 • www.th.is
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...