Fréttablaðið - 27.05.2009, Síða 24

Fréttablaðið - 27.05.2009, Síða 24
 27. MAÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● útivist og veiði „Það hættir enginn alvöru veiðimaður að veiða,“ segir Stefán Sigurðsson, sölustjóri hjá Lax-á en bætir við: „En hann leitar sér kannski að ódýrara veiðileyfi.“ Undanfarin ár hafa stórfyrirtæki verið ötul við að kaupa upp veiði- leyfi til að gera vel við sitt fólk. Nú er það ævintýri búið og sá markað- ur einungis brot af því sem hann var í góðærinu. Lax-á hefur alla tíð selt fleiri veiðileyfi til útlendinga en Ís- lendinga og viðskiptin fara fram í erlendri mynt. „Við höfum verið meira í að selja Íslendingum fyrir og eftir besta veiðitímann. Við finnum fyrir því að margir Íslend- ingar halda aftur af sér og ætla að bíða og sjá, enda er mikið eftir af sölutímanum.“ Veiðileyfi hjá Lax-á kosta allt frá fimm þúsund krónum á dag upp í 200 þúsund krónur í dýrustu á félagsins, Laxá á Ásum. Stef- án segir veiðileyfi í þeirri á ekki hafa hækkað í verði í tíu ár. „Verð- ið bólgnaði vissulega upp í öðrum ám, þegar fyrirtæki vildu kaupa öll veiðileyfi. En við höfum fengið fleiri útlendinga á móti og evran er sterk, sem vegur upp á móti samdrættinum.“ Hann segir fyrir- tækið Lax-á hafa verið stofnað utan um þjónustu við útlendinga, sem nú sé aftur orðið kjarninn. „Við erum komin nokkur ár aftur í tímann hvað þetta varðar.“ Stangaveiðifélag Reykjavíkur selur veiðileyfi í íslenskum krón- um, sem kemur sér vel fyrir er- lenda ferðamenn. „Við finnum fyrir verulegri aðsókn erlendis frá krónunnar vegna,“ segir Haraldur Eiríksson, sölu- og markaðsstjóri SVFR. Hann segir veiðileyfasöl- una hafa gjörbreyst. „Millidýr veiðileyfi og jaðartímarnir, sem viðskiptavinir hér innanlands hafa verið að kaupa, eru að taka mik- inn skell. En útlendingarnir eru að plástra nokkurn veginn dýru götin sem bankar og fyrirtæki skildu eftir sig.“ Víðar kreppir að en á Íslandi og hópurinn sem ferðast landa á milli til að veiða lax er ekki stór. Hins vegar hefur samkeppnis- staða Íslands snarbatnað við veik- ingu krónunnar. „Frá því árið 2000 hefur beinlínis verið erf- itt að selja útlendingum laxveiði- leyfi. Lítið hefur verið af lausum leyfum og þau hafa verið ógnardýr vegna þess hvað krónan var sterk. Á þessum tíma misstum við mjög mikilvæga markaði. En við erum að byrja að sjá það fólk aftur sem hvarf með styrkingu krónunnar.“ Að mati Haraldar þarf að laga verðlagningu á innanlandsmarkaði að breyttum aðstæðum. Það ger- ist þó ekki á einni nóttu, þar sem leigusamningar séu gerðir þrjú til fimm ár fram í tímann. „Land- eigendur hafa komið til móts við okkur og það er sameiginlegt átak okkar að halda verðinu í skefjum. Í nokkrum tilfellum höfum við lækkað verð, í Norðurá og Langá á Mýrum. Þá höfum við lækkað verð á aðbúnaði í veiðihúsum, til að létta undir með veiðimönnum.“ - hhs Útlendingar vega upp á móti hrundum markaði Veiðileyfi fyrir innanlandsmarkað eru í nokkrum tilfellum farin að lækka í verði, meðal annars í Langá á Mýrum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Frítt var að veiða í Helluvatni, innan við Elliðavatn, á sunnudaginn í tilefni af 70 ára afmæli SVFR. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Stangaveiðifélag Reykjavíkur var stofnað hinn 17. maí árið 1939 og fagnar því 70 ára stórafmæli um þessar mundir. Í tilkynningu frá SVFR segir að félagið hafi verið stofnað utan um laxveiði í Elliða- ánum. Eitt og annað var í boði í afmæl- isvikunni til að fagna tímamótun- um. Má þar nefna kastsýningu á Miklatúni og fjölskyldudag við Ell- iðavatn með mikilli skemmtidag- skrá. Fögnuðinum lauk svo með konu- kvöldi á þriðjudaginn var, þar sem farið var yfir undirstöðuatriði í fluguveiði. - hhs Sjötíu ár frá stofnun SVFR LÚR - BETRI HVÍLD www.lur.is 10:00 – 18:00mánfös Opið: lau 11:00 – 16:00 Frábært úrval sófa og hvíldarstóla VEIÐIKORTIÐ 31 vatnasvæði vítt og breitt um landið fyrir aðeins 6000 kr. Handbók með ítarlegum upplýsingum og veiðikortum fylgir. Nánari upplýsingar á www.veidikortid.is Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.