Fréttablaðið - 27.05.2009, Page 26
27. MAÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● útivist og veiði
„Ég veiði eingöngu á flugu,“ segir
Reynir Friðriksson sem hefur síð-
asta áratuginn unnið sem leiðsögu-
maður, meðal annars fyrir fyrir-
tækið Lax-á, og þá helst í kringum
lax- og silungsveiði.
Reynir hefur sjálfur haldið
námskeið í fluguköstum undan-
farin misseri. „Ég hef mest verið
með námskeið fyrir byrjendur og
þá yfirleitt leiðbeint þremur til
fimm í einu.“
Margir veiða eingöngu á flugu
að sögn Reynis sem bendir á að
fluguveiði hafi aukist meðal land-
ans undanfarin ár, en enn sé þó-
nokkuð um að menn veiði á maðk
og spún.
Reynir leggur ríka áherslu á
að fara vel yfir þau grunnatriði
sem hver veiðimaður þarf að hafa
í huga við veiðina. Þetta eru atriði
eins og hversu hratt eða hægt á að
draga inn línuna miðað við aðstæð-
ur hverju sinni. „Það er ýmislegt
sem verður að hafa í huga hvort
heldur verið er að veiða í vatni eða
á,“ segir hann að bragði.
Það er alltaf mikið um að vera
í kringum veiðina á sumrin bend-
ir Reynir á og hann minnir áhuga-
sama á að nýta sér þau ýmsu nám-
skeið sem eru í boði og kynningar
hjá stangveiðifélögum og veiði-
verslunum. Einnig sé eitthvað um
opin hús. Þeir sem hafa áhuga á
að skrá sig á námskeið í sumar hjá
Reyni er bent á netfangið reynirf@
yahoo.com eða símann 861-8281.
- vg
Kastveiðinámskeið fyrir byrjendur
Veiðimaður kastar flugunni.
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Matís og rannsóknafyrirtækið
Laxfiskar kynna niðurstöður sam-
eiginlegrar rannsóknar á magni
kvikasilfurs í urriða úr Þingvalla-
vatni á fundi í Sjávarútvegshúsinu,
Skúlagötu 4, á morgun, miðviku-
dag, klukkan 14.
Rannsóknin hafði manneldis-
sjónarmið að leiðarljósi og var
gerð til að draga upp mynd af
magni kvikasilfurs í Þingvallaurr-
iðum með hliðsjón af stærð þeirra
og forsögu.
Niðurstöður rannsóknarinnar
sýna að kvikasilfur er mælanlegt
í Þingvallaurriða. Í ákveðnum til-
vikum er magn kvikasilfurs í fisk-
holdinu yfir leyfilegum mörkum
Evrópusambandsins fyrir styrk
kvikasilfurs í matvælum. Smærri
urriðinn er gegnumsneitt undir
þeim mörkum en eftir að urriðinn
hefur náð ákveðinni stærð eru um-
talsverðar líkur á því að hann inni-
haldi meira kvikasilfur en viðmið-
unarmörk gera ráð fyrir.
Hagsmunaaðilar og aðrir áhuga-
samir eru boðnir velkomnir á
fundinn.
Sjá www.matis.is.
Kvikasilfur í
Þingvallaurriða
Niðurstöður sýna að kvikasilfur er
mælanlegt í Þingvallaurriða.
Simms Krieger-hatturinn er fyrirferðar-
lítill og hagkvæmur. MYND/VEIÐIHORNIÐ
Simms Krieger Crusher-veiðihatt-
urinn er nýjung frá Simms. Veiði-
hatturinn er flottur á að líta, léttur
og fyrirferðarlítill og einfalt er að
pakka honum saman í vasa.
Hatturinn er fáanlegur í tveim-
ur litum, ljósbrúnum og dökkgræn-
um. Hatturinn er góður jafnt í sól-
skini sem regni og kostar 2.995
krónur í Veiðihorninu, Sportbúð-
inni og Veiðimanninum.
Nýjar sendingar eru að hlaðast
inn þessa dagana í fyrrgreindum
verslunum og má þar nefna send-
ingu frá DAM í Þýskalandi með
2009-árgerðunum af kasthjólum
og stöngum auk smávöru, byssu-
skápa og fyrstu Simms-sendingu
ársins og gott úrval af flugulín-
um frá Scientific Anglers og nýja
sendingu frá Zpey í Noregi sem
inniheldur ýmsar spennandi nýj-
ungar. Auk þessa eru flugubar-
irnir að fyllast af nýjum flugum á
góðu verði. - hs
Fyrirferðarlítill
veiðihattur