Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 27.05.2009, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 27. maí 2009 Hótelerfinginn Paris Hilton vill ólm aðstoða Katie Price, betur þekkt sem Jordan, í þeim mikla ólgusjó sem glamúrfyrirsætan er í um þessar mundir. Jordan og eiginmaður hennar, Peter Andre, standa nú í skilnaði og hafa breskir fjölmiðlar fylgst með hverju skrefi þeirra. Paris vorkennir vinkonu sinni sem hún hitti fyrst fyrir þremur árum á tónlistarhátíð í Los Angeles og sagði í samtali við tímaritið OK að hana langaði til að hringja í Jordan og veita henni þann and- lega stuðning sem hún þyrfti á að halda. Paris var jafnframt spurð að því hvaða ráðleggingar hún hefði handa Jordan. Og ekki stóð á svarinu: „Katie á að forðast dag- blöð og Netið eins og heitan eld- inn, það vill enginn vera góður við þig á þeim bænum.“ Hún upp- lýsti jafnframt að Jordan væri ein af fyrirmyndunum í hennar lífi og óskaði þess að fyrirsætan myndi flytja til Los Angeles. „Ég ber mikla virðingu fyrir henni sem athafnakonu, hún hefur byggt upp viðskiptaveldi sitt af miklum myndarskap,“ sagði Paris. Paris vill hjálpa Jordan VILL HJÁLPA Paris Hilton vill gjarnan hjálpa Jordan í þeim erfiðleikum sem fyrirsætan stendur frammi fyrir um þessar mundir. Meistaradagur Verkfræði og tölvunarfræði fimmtudaginn 28. maí 13.00–18.00 í VRII, Hjarðarhaga 2–6 Árangur viðhalds Háhitaborholur og líkanagerð Kynning á meistaraverkefni Líkanagerð og sérstaða álvera Auðlindir og bestun Hreyfifræði- og mælitækni Lærdómur, nytsemi og árangur Allir velkomnir Í tilefni af tuttugu ára afmæli útvarpsstöðvarinnar FM 957 ætlar hún að flakka um landið í sumar og halda skemmtanir og dansleiki undir nafninu Zúúber á sviði og Zúúber grúbban. Zúúber á sviði er skemmt- un sem er byggð á samskiptum kynjanna. Þar munu þau Svali, Gassi og Sigga spjalla hispurs- laust við áhorfendur um sam- skipti kynjanna. Zúúber grúbban er ballhljómsveit skipuð þekktum tónlistarmönnum á borð við Ingó Veðurguð, Einar Ágúst og Gunn- ar Ólason úr Skítamóral. Næsta uppákoma Zúúber verður á Sel- fossi 4. og 5. júní þar sem vænt- anlega verður mikið um dýrðir. Zúúber fer um landið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.