Fréttablaðið - 27.05.2009, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Í dag er miðvikudagurinn 27.
maí, 147. dagur ársins.
3.36 13.25 23.16
2.52 13.10 23.30
Ólafur Þór, það má nú segja að þú sért enginn venjuleg-
ur saksóknari. Þessi mál sem þú
ert að rannsaka eru afar flókin en
þjóðin krefst þess að þú komist til
botns í öllu saman og refsir fyrir
það sem saknæmt er. Ég hef þó
ekki miklar áhyggjur, jafnvel þótt
menn reyni að villa um fyrir þér
og afvegaleiða með öllum ráðum.
Ég er nefnilega þeirrar trúar að
óheiðarlegt fólk grafi sína eigin
gröf um leið og einhver sem tam-
inn er af sínu brjóstviti verður á
vegi þess. Það var hinn kvensami
Menelaos og yngismey ein afar
sérstök sem fengu mig til að trúa
þessu.
ÞANNIG er mál með vexti að
gríski læknirinn Menelaos var
einn alsvæsnasti kvennabósi sem
ég þekki. Hann sveifst einskis til
að koma sér inn undir hjá kven-
þjóðinni. Var hann þó kominn af
besta skeiði þegar ég kynntist
honum.
MÉR er minnisstætt þegar hann
mætti galvaskur eitt síðdegi í sínu
fínasta pússi á veitingastaðinn
sem ég vann á í Aþenuborg. Bað
hann um einn einfaldan viskí sem
var óvenjulegt svo ég spurði hvað
stæði til. „Ég á stefnumót við eina
sérstaka yngismey við klukkuna á
torginu klukkan átta,“ svarar hann
ánægður á svip. Ég varð forvitinn
og vildi fá að vita hvaða kona ætti
von á að kynnast leyndardómum
læknisins. „Það er þessi sem kom
hingað með honum Pavlosi um síð-
ustu helgi,“ svaraði hann. Læknir-
inn lét sig nefnilega ekkert muna
um að bjóða stúlkunni út meðan
Pavlos, unnusti hennar, brá sér
frá eitt augnablik til að eiga orða-
stað við einhvern á næsta borði.
Hún nefndi strax stund og stað
svo læknirinn kvaddi hana sigri
hrósandi áður en unnusti hennar
settist aftur við borðið.
ÞAÐ var eins og hann hefði
gorma í hnjáliðunum þegar hann
hélt af stað á torgið eftir að hafa
skolað einum einföldum niður.
Svo varð klukkan átta og Men-
elaos stóð undir klukkunni með
hjartað í buxunum. Klukkan kort-
er yfir var yngismærin enn ekki
komin. En fimm mínútum síðar
dró til tíðinda en þá birtist Pavlos
eins og skrattinn úr sauðarleggn-
um. „Nei, Menelaos! Þú hér.“
JÁ, Ólafur minn, hún lét ekki fífla
sig þessi sérstaka yngismey. Ég á
heldur ekki von á því að sérstakur
saksóknari láti fíflast með sig.
Flagarasaga
fyrir
saksóknara
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%