Fréttablaðið - 03.06.2009, Qupperneq 6
6 3. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop
Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending
Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár.
Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast.
Sparaðu
með Miele
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
STJÓRNMÁL Guðni Th. Jóhannesson sagnfræð-
ingur segir í nýrri bók um bankahrunið að
forsætisráðherra Breta hafi nánast grátbeðið
íslenska starfsbróður sinn um að sækja
eftir aðstoð fyrir Íslendinga samkvæmt
„prógrammi“ Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Guðni vísar til samtals sem Geir H. Haarde
og Gordon Brown áttu í síma að kvöldi sunnu-
dagsins 5. október.
„Hann [Brown] ráðlagði, hvatti og nánast
grátbað Geir H. Haarde að leita til sjóðsins
og þiggja þaðan neyðaraðstoð. Öðruvísi yrði
Íslandi ekki bjargað og Brown virtist mikið
niðri fyrir. Hann sagði vandann á Íslandi
kerfis lægan og önnur lönd kæmu ekki til
bjargar nema Ísland nyti fyrst góðs af „pró-
grammi“ Alþjóðagjaldeyrisjóðsins,“ segir um
innhald samtals Browns og Geirs í bók Guðna.
Samkvæmt lýsingu Guðna á samtalinu
kvaðst Brown vera áhyggjufullur og vilja vita
hvort hann gæti orðið að liði. „Geir viður-
kenndi fúslega að ástandið væri svart og benti
á að Íslandi hafi gengið illa að leita aðstoðar.
Seðlabanki Íslands hefði til dæmis leitað lána
hjá Englandsbanka en fengið afsvar, síðast
daginn áður,“ segir í bókinni en Brown vildi
heldur ræða aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins. Geir hafi þá sagt sig og aðra íslenska ráða-
menn líta á það sem örþrifaráð sem ekki yrði
leitað nema allar aðrar bjargir væru bannaðar.
„En Gordon Brown gaf sig ekki. Hann ítrek-
aði sjónarmið sín og kvaðst geta fullyrt að
aðrir leiðtogar í Evrópu væru sama sinnis.
Ekkert „prógramm“ Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins = engin aðstoð einstakra ríkja,“ segir í bók
Guðna, sem kveður breska forsætisráðherrann
ekki hafa verið að gefa góð ráð af því að hann
vildi vera vinur í raun. „Hann vissi að vandi
Íslands var vandi Bretlands þegar að var gáð,“
segir í bókinni Hruninu.
Daginn eftir samtal Geirs og Brown sam-
þykkti Alþingi neyðarlög. - gar
Nýjar upplýsingar í bók Guðna Th. Jóhannessonar um samskipti Gordons Brown og Geirs Haarde:
Brown grátbað Geir um að leita til AGS
GUÐNI TH.
JÓHANNESSON
GEIR HAARDE GORDON
BROWN
STJÓRNMÁL Sendiherra Kína
á Íslandi lýsti í gær óánægju
ríkis stjórnar sinnar með fundi
íslenskra ráðamanna með Dalai
Lama, leiðtoga Tíbeta.
Fjórir ráðherrar og rúmlega tíu
alþingismenn hittu Dalai Lama í
gær og fyrradag.
Áratuga deilur Kínverja og
Tíbeta um yfirráð yfir Tíbet
hafa verið harkalegar og á stund-
um blóðugar. Dalai Lama er tals-
maður þess að Tíbetar fái sjálfs-
stjórn en kínversk stjórnvöld vilja
fara með full yfirráð yfir Tíbet.
Samskipti þjóðanna eru afar við-
kvæm og andæfa kínversk stjórn-
völd kröftuglega í hvert sinn sem
Dalai Lama hittir erlenda þjóðar-
leiðtoga eða ráðamenn.
Sú staðreynd að hvorki forsætis-
né utanríkisráðherra né heldur for-
seti Íslands hafi séð sér fært að
hitta Dalai Lama í Íslandsheim-
sókninni hefur vakið athygli. „Það
er nefnilega neyðarlegt að æðstu
embættismenn þjóðarinnar komi
sér hjá því að hitta friðarhöfðingj-
ann,“ skrifar Birgitta Jónsdóttir,
alþingismaður og formaður Vina
Tíbets, til dæmis á vef sinn.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, fundaði með fyrrverandi
sendiherra Kína á Íslandi á laugar-
dag, degi fyrir komu Dalai Lama
til landsins.
Tilviljun réði því að fundinn
bar upp svo skömmu fyrir komu
tíbetska leiðtogans. „Það hittist
svona á,“ segir Örnólfur Thorsson
forsetaritari. Fundurinn hafi ekki
tengst komu Dalai Lama til Íslands
og málefni Tíbet ekki komið til
umræðu. Á heimasíðu forseta-
embættisins segir að efni fundar-
ins hafi verið „margvísleg tæki-
færi til að auka samvinnu Íslands
og Kína á sviðum menningar, vís-
inda og viðskipta“.
Sendiherrann fyrrverandi, Wang
Ronghua, gegndi hér störfum árin
1998-2002. Hann flutti fyrirlestur
í Háskóla Íslands á fimmtudag
um söguleg kínversk gagnasöfn.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins starfar sendiherrann
fyrrverandi nú fyrir írskt mark-
aðsrannsóknafyrirtæki í Kína.
Ólafur Ragnar fór á sunnudag
til Kýpur til að vera við Smáþjóða-
leikana sem hófust með setningar-
athöfn á mánudag. Viðstaddir voru
leiðtogar allra þátttökuríkja. Langt
er um liðið síðan Ólafur Ragnar
þekktist boð Íþrótta- og Ólymp-
íusambandsins um að dvelja með
íslenska íþróttafólkinu á Kýpur.
Ekki kom til álita að endurskoða
þá ákvörðun. Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra er á Möltu
þar sem hann ræðir við þarlenda
ráðherra um veru ríkisins í Evr-
ópusambandinu.
Fram kom í gær að Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra væri
úti á landi fyrri part dags og gæti
því ekki hitt Dalai Lama. Seinni
partinn og fram á kvöld sat hún
stífa fundi. Upplýst var opinber-
lega um fyrirhugaða komu Dalai
Lama hingað til lands 9. febrúar.
bjorn@frettabladid.is
Helstu ráðamenn
fjarri Dalai Lama
Forseti Íslands fundaði með fyrrverandi sendiherra Kína degi fyrir komu Dalai
Lama til landsins og hélt svo til Kýpur. Forsætisráðherra var úti á landi fyrri part
gærdagsins og á stífum fundum seinni partinn. Utanríkisráðherra er á Möltu.
HEIMSÓKN „Það er alltaf upplifun að hitta
jafn merka menn og Dalai Lama er. Ég hef
ekki kafað djúpt ofan í málefni Tíbets en
þessi fundur vakti áhuga minn enn frekar á
þeim málum,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðn-
aðarráðherra, sem í gær átti stuttan fund
með Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta.
Dalai Lama gerði víðreist um borgina í
gær og var hvarvetna vel tekið. Löng biðröð
myndaðist fyrir framan Laugardalshöllina
þar sem trúarleiðtoginn hélt fyrirlestur
fyrir fullu húsi. Einnig var hvert sæti
skipað í hátíðarsal Háskóla Íslands þar sem hann
flutti erindi. Þá hitti Dalai Lama Ástu Ragnheiði
Jóhannes dóttur, forseta Alþingis, í þinghús-
inu og fundaði með þingmönnum utanríkis-
málanefndar.
Katrín fund aði með Dalai Lama ásamt
Ögmundi Jónas syni, heilbrigðis ráðherra,
Birgittu Jónsdóttur, þingflokks formanni
Borgarahreyfingarinnar og Björgvini
G. Sigurðssyni, þingflokks formanni
Samfylkingarinnar. Að sögn Katrínar stóð
fundurinn heldur stutt yfir, rúmlega tuttugu
mínútur, enda dagskrá Dalai Lama þétt-
skipuð í stuttri heimsókn hingað til lands.
„Við ræddum aðallega um deilur útlagastjórnar-
innar í Tíbet við kínversk stjórnvöld.“ - kg
Mikill áhugi á heimsókn Dalai Lama til Íslands:
Upplifun að hitta Dalai Lama
KATRÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
HEIMSÓKN Á ALÞINGI Dalai Lama heimsótti meðal annars Alþingi í gær í boði Ástu
R. Jóhannesdóttur þingforseta og utanríkismálanefndar þingsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Þau voru fyrst og fremst að kynna okkur fyrirætlanir sínar og óska eftir skrif-
stofuhúsnæði. Hugmyndin um móttöku kom upp, en hefðum og venjum
samkvæmt varð ekki úr henni þar sem um var að ræða gest í einkaheim-
sókn,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri.
Hún segir aðila sem stóðu að heimsókn Dalai Lama hafa vakið máls á því
hvort mögulegt væri að halda trúarleiðtoganum formlega móttöku á vegum
borgarinnar. Það hafi verið gert í aðdraganda heimsóknarinnar. „Í þessu
tilviki var hvorki um að ræða opinbera heimsókn né formlega heimsókn
til Reykjavíkur. Þess vegna varð ekkert af formlegri móttöku,“ segir Hanna
Birna. - kg
ENGIN MÓTTAKA HJÁ BORGINNI
Telur þú að þjóðarsátt náist í
kjara- og efnahagsmálum?
Já 26,2%
Nei 73,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Sóttir þú atburði tengda Dalai
Lama meðan á heimsókn hans
stóð?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN