Fréttablaðið - 03.06.2009, Blaðsíða 8
3. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR
NÝ SALATLÍNA FRÁ
SÓMA SEM BYGGÐ ER
Á LANGRI REYNSLU
AF SAMLOKUGERÐ
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
VR boðar til almenns félagsfundar á hótel Loftleiðum
fimmtudaginn 4. júní kl. 19:30. Við hvetjum alla
félagsmenn til að mæta.
Dagskrá félagsfundar – upplýsingafundur:
1. Endurskoðun kjarasamninga – staða
2. VR og ASÍ
3. VR og sýnileiki
4. Jafnréttisstefna VR
5. Efnahagsmál
Félagsfundur VR
4. júní 2009
BRETLAND, AP Breski innanríkis-
ráðherrann Jacqui Smith ætlar
að segja af sér embætti á næstu
dögum, að því er breskir fjölmiðlar
greindu frá í gær.
Einnig er greint frá því að for-
sætisráðherrann Gordon Brown
ætli sér að gera ýmsar breytingar
á ríkisstjórn sinni eftir kosningar
til Evrópuþingsins, sem verða á
fimmtudag. Þá ætla Tom Watson,
aðstoðarráðherra og þingmaður,
og Beverley Hughes, ráðherra
fjölskyldumála, að láta af störfum.
Nokkrir þingmenn Verkamanna-
flokksins hafa tilkynnt að þeir
muni hætta í næstu kosningum.
Jacqui Smith er meðal þeirra
bresku þingmanna og ráðherra
sem hafa fengið á sig mikla gagn-
rýni fyrir að hafa fengið endur-
greiddan ýmsan persónulegan
kostnað frá hinu opinbera. Þar
á meðal er kostnaður við leigu á
tveimur klámmyndum sem eigin-
maður hennar tók á leigu. Þá
skráði hún heimili systur sinnar
í London sem aðalheimili sitt og
fékk þannig styrki fyrir að halda
tvö heimili.
Smith hefur verið þingmaður
Verkamannaflokksins frá árinu
1997 og varð fyrst kvenna til að
verða innanríkisráðherra árið
2007. Samkvæmt fréttum fjöl-
miðla hyggst Smith ekki hætta
þingmennsku heldur berjast fyrir
áframhaldandi sæti sínu á þingi
fyrir Redditch-hérað.
Auk þessara þriggja ráðherra
er einnig talið líklegt að Alistair
Darling verði fluttur úr fjármála-
ráðuneytinu, en hann hefur einnig
fengið á sig gagnrýni vegna endur-
greiðslna frá ríkinu. Sömu sögu má
segja af samgönguráðherranum
Geoff Hoon, en báðir ráðherrarnir
hafa lofað að borga upphæðirnar
til baka.
Talsmaður Gordons Brown vildi
ekki tjá sig um afsagnirnar í gær.
Þrýstingur á að hann boði til kosn-
inga hefur aukist til muna undan-
farið, en hann verður að halda
kosningar fyrir júní á næsta ári.
Stjórnmálafræðingar spá því að
hundruð stjórnmálamanna muni
missa vinnuna í kosningunum
vegna hneykslismálanna.
thorunn@frettabladid.is
Ráðherrar í
stjórn Browns
segja af sér
Ráðherrar í ríkisstjórn Gordons Brown ætla að
segja af sér. Þá er gert ráð fyrir mikilli uppstokkun
í ríkisstjórninni á næstunni, að loknum kosningum
til Evrópuþings sem verða á fimmtudaginn.
JACQUI SMITH Innanríkisráðherrann Jacqui Smith kemur af ríkisstjórnarfundi í
Downing-stræti 10 í gær. Hún er sögð ætla að segja af sér. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
REYKJAVÍK Ánægja borgarstarfs-
manna er meiri í ár en í fyrra.
Samkvæmt viðhorfskönnun sem
Mannauðsskrif-
stofa borgar-
innar gerði eru
níutíu prósent
starfsmanna
á heildina litið
ánægð í starfi,
samanborið
við 83 prósent í
fyrra.
Könnunin
náði til um
6.700 starfsmanna borgarinnar,
allra fastráðinna og fjölmargra
lausráðinna. „Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgarstjóri seg-
ist ánægð með niðurstöðurnar.
„Þær eru vísbendingar um það
sem vel er gert og það sem betur
má gera til að bæta líðan starfs-
manna enn frekar og þar af leið-
andi þjónustu borgarinnar,“ sagði
borgarstjóri. - kóp
Borgarstarfsmenn ánægðir:
Ánægja starfs-
fólks vaxandi
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
Sumarhátíðir á einum stað
Vegna vísbendinga um aukinn áhuga
Íslendinga á ferðalögum innanlands
í sumar hefur rekstrar- og útgáfusvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga
safnað saman upplýsingum um
menningar-, úti- og sumarhátíðir
sveitarfélaga. Eru upplýsingarnar
nú komnar á einn stað á vefnum
Samband.is.
FERÐALÖG
BRASILÍA, AP Talið er víst að brak
sem fannst um 650 kílómetra norð-
austur af Brasilíu í gær sé úr far-
þegaþotu Air France sem hvarf
með 228 manns innanborðs yfir
Atlantshafi í fyrrinótt. Flugvéla-
sæti, björgunarvesti, málmbútar
og steinolía sem notuð er í flug-
vélaeldsneyti eru meðal þess sem
hermenn úr brasilíska flughernum
sögðu fljóta á hafinu.
Nelson Jobim, varnarmála-
ráðherra Brasilíu, sagðist í gær-
kvöldi ekki efast um að brakið
sem fannst í sjónum væri úr Air
France-vélinni.
Þremur flutninga skipum hafði
verið beint af leið til að taka þátt
í leitinni. Búist er við að brasil-
ísk herskip bætist í leitarhópinn
í dag. Frönsk herskip hófu einnig
leit í gær.
Meðal þess sem herflugvélar
leituðu að í gær er flugriti vélar-
innar, sem inniheldur upplýsing-
ar um hraða, hæð og flugstefnu
og hljóðupptökur úr flugstjórnar-
klefa. Flugvélar leituðu í gær á
hafsvæði þar sem dýpi er mest
um 4.700 metrar. Sjaldgæft er
að flugritar finnast á svo miklu
dýpi.
Vél Air France fórst á leið sinni
frá Rio de Janeiro í Brasilíu til
Charles de Gaulle-flugvallarins
í París. Um borð voru 61 Frakki,
58 Brasilíumenn, 26 Þjóðverjar,
níu Kínverjar, níu Ítalir og færri
frá 27 öðrum löndum, þar af einn
íslenskur ríkisborgari.
- kg
Talið er víst að flugvélabrak tilheyri vél Air France sem fórst í Atlantshafi:
Brak fannst úti fyrir Brasilíu
LEIT Hermenn franska flughersins á
franskri herstöð í Dakar, höfuðborg
Senegals, búa sig til leitar. NORDICPHOTOS/AFP