Fréttablaðið - 03.06.2009, Page 10
10 3. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
350.00
ÞÚ TALDIR RÉTT:
350 MILLJÓNIR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
9
5
3
2
Kannski er það bara ímyndun í mér, en
mér hefur sýnst eins og fleiri karlmenn
séu órakaðir eða hreinlega skeggjaðir
eftir að kreppan skall á. Engin furða,
því rakvélablöðin eru ekki gefins. Á
Íslandi hefur Gillette mjög sterka mark-
aðshlutdeild og varla sjást önnur blöð í
verslunum. Að sögn Þórhalls Baldurs-
sonar, sölustjóra hjá Ísam, ræðst verð
blaðanna af gengi evrunnar. „Frá því
í janúar 2008 hafa engar hækkanir átt
sér stað nema þær sem tengjast geng-
inu,“ segir hann. Í janúar var evran á
90 kr., nú er hún á um 170 kr.
Nokkrar tegundir af Gillette-blöðum
eru í boði en fimm blaða Fusion er nýj-
asta tegundin og er sögð gefa mýkstan
rakstur. Átta blaða pakki er sagður
duga í sex mánuði. Á föstudaginn kost-
aði átta blaða pakki 2.798 kr í Bónus. Í
Krónunni kostaði 4 blaða pakki 2.799
kr. Það borgar sig greinilega að bera
saman verð.
Vilji skeggmenn berjast á móti
straumnum má benda á rakarastofuna
Herramenn í Kópavogi (www.herra-
menn.is). Þar er boðið upp á ýmsa aðra
möguleika í rakstri. Atli skrifar: „Ég
fjárfesti í nýtísku gamaldags rakvél fyrir
rúmum tveimur árum. Mörgum fannst
þetta vera skrítið uppátæki hjá mér. Ég
keypti í leiðinni lager af rakvélablöðum í
hana. Hver pakki með 10 blöðum kostar
700 kr. hjá Herramönnum. Ég get notað
hvert blað oftar en Gillette-blöðin. Sama
sagan er með raksápuna, ég notast við
alvöru harða raksápu og bursta. Mikill
verðmunur er þar líka.“
Neytendur: Gengi evrunnar hefur áhrif á skeggtískuna
Rakvélablöð hafa hækkað mikið í verði
VERÐHÆKKUN Þessi hefur litlar áhyggjur af verð-
hækkunum á rakvélablöðum.
EFTIRLIFANDI BÍTLAR Ringo Starr og
Paul McCartney komu fram saman í
Los Angeles á mánudaginn. Þar var
útgáfu á nýjum tölvuleik, The Beatles
Rockband, fagnað. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÖRYGGISMÁL Norska varðskipið
Harstad kom til Reykjavíkur í gær
en skipið er hér á landi í boði Land-
helgisgæslunnar. Skipið er systur-
skip íslenska varðskipsins Þórs,
sem er í smíðum í Chile og kemur
til landsins innan tíðar.
Heimsókn Harstad er liður í
samstarfi á milli Landhelgisgæsl-
unnar og norsku strandgæslunnar
á sviði strandgæslu, öryggismála,
leitar og björgunar sem byggir á
samningi frá árinu 2008. Sam-
komulagið er á sviði sameiginlegra
aðgerða vegna hugsanlegra meng-
unarslysa, fiskveiðieftirlits, skipta
á skipaumferðarupplýsingum, leit-
ar og björgunar á hafinu og ýmissa
annarra málefna er tengjast verk-
efnum á sviði strandgæslu.
Á morgun og föstudag verður
varðskipið við æfingar með varð-
skipi og þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar.
Harstad kemur síðan inn til
Reykjavíkur aftur um helgina
og verður til sýnis fyrir almenn-
ing á sjómannadaginn 7. júní frá
klukkan 13.30 til 17.00 þar sem
það mun liggja við Miðbakkann í
Reykjavík. - shá
Systurskip Þórs, nýs varðskips Landhelgisgæslunnar, í heimsókn í Reykjavík:
Norðmenn komnir til æfinga
HARSTAD Á HAFI ÚTI Nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar byggir á sömu teikningu og
Harstad. Íslenska skipið verður þó stærra og betur búið. MYND/LHG
SAMFÉLAGSMÁL Rauði krossinn
stendur í samvinnu við Öldrunar-
ráð Íslands og félagsráðgjafadeild
Háskóla Íslands fyrir óvenjulegum
sumar námskeiðum fyrir börn með
afar fjölbreyttri dagskrá undir
yfirskriftinni Gleðidagar – ungur
nemur, gamall temur.
Eldri borgarar munu leiðbeina
og ráða sjálfir hverju þeir miðla til
barnanna, samkvæmt tilkynningu
frá Rauða krossinum. Sem dæmi
um námskeið má nefna gamla
leiki, hnútabindingar, handavinnu
eða sögur. Hugarflug og kunnátta
þeirra eldri ræður för. - ghs
Nýstárleg sumarnámskeið:
Eldri borgarar
miðla börnum
EFNAHAGSMÁL Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda (FÍB) mótmælir
hækkun stjórnvalda á bifreiða-
gjöldum og álögum á eldsneyti.
Í tilkynningu er hækkunin sögð
árás á fjárhag heimilanna.
Hækkun á eldsneytisverði
kemur verst niður á tekjulægsta
fólkinu og þeim sem búa á lands-
byggðinni, segir í tilkynningu
FÍB. Þar er einnig bent á að
hækkanirnar hafi bein áhrif á
skuldir heimilanna vegna verð-
tryggingarinnar. - bj
FÍB mótmælir bensínhækkun:
Árás á fjárhag
heimilanna
HÆKKUN Stjórnvöld hækkuðu álögur á
bensín um tíu krónur og á dísilolíu um
fimm krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Stolið frá skátunum
Tveimur kassabílum í eigu Sumar-
búða skáta var stolið úr Smáralind á
hvítasunnudag. Þeir sem geta veitt
upplýsingar eru beðnir að láta Banda-
lag íslenskra skáta eða lögreglu vita.
LÖGREGLUMÁL