Fréttablaðið - 03.06.2009, Side 12
12 3. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Rafbílabyltingin
Heimskreppan og lækkunin
á olíuverði sem hún hefur
tímabundið valdið hefur
hægt á rafbílabyltingunni.
En þróunin í átt að raf-
væddum samgöngum fram-
tíðarinnar heldur ótrauð
áfram.
Á dögunum kynnti Toyota, sem
nú er orðinn stærsti bílaframleið-
andi heims, nýja kynslóð Prius-
tvinnbílsins, en hún er sú þriðja
frá því að markaðssetning hófst á
þessum raf- og bensínknúna fólks-
bíl fyrir tólf árum. Akio Toyoda,
sonar sonur stofnanda Toyota,
sagði þegar bíllinn var kynntur
að „framtíð einkabílsins“ hvíldi á
þessum bíl.
Um mánaðamótin apríl-maí
hafði Toyota selt alls 1.028.000
Prius-bíla, þar af helminginn í
Bandaríkjunum. Toyota hefur þar
með mikið forskot á aðra fram-
leiðendur, en Honda og fleiri bíla-
smiðjur hyggja reyndar á að veita
Toyota meiri samkeppni á þessum
markaði.
Tengiltvinnbílar
Það sem er þó áhugaverðast fyrir
íslenzkar aðstæður er næsta þró-
unarstig tvinnbíla, sem eru tengil-
tvinnbílar, þ.e. raf- og eldsneytis-
knúnir bílar með stærri rafhlöðu
sem hægt er að hlaða rafmagni úr
heimilisinnstungu. Sú tækni gerir
það mögulegt, án þess að nokkuð sé
slegið af kröfum um notagildi bíls-
ins og án þess að dýrra breytinga
sé þörf á orkudreifikerfi landsins,
að knýja einkabíla landsmanna með
umhverfisvænni, innlendri raforku
– sem sparar aukinheldur gjaldeyri
í stórum stíl, sem annars fer í að
greiða fyrir innflutt eldsneyti.
Toyota er nú þegar með tengil-
útgáfu af nýja Priusnum í tilrauna-
notkun í Japan, í Bandaríkjunum
og Evrópu. Hann á síðan að koma á
almennan markað á næsta ári. Sam-
kvæmt eigin prófunum Toyota er
meðaleyðsla tengil-Prius 3,62 lítrar
af benzíni á hverja 100 ekna kíló-
metra, en á nýjustu kynslóð „venju-
lega“ Priussins er meðaleyðslan
gefin upp 4,7 l. Eldsneytiseyðslan
er enn minni í tilrauna-tengilút-
gáfum af Prius, sem aðrir aðilar en
framleiðandinn sjálfur hafa útbúið,
þar sem rafhlaðan í þeim er í flest-
um tilvikum stærri en í væntan-
legu verksmiðjuútgáfunni og geta
þar af leiðandi ekið að meira leyti á
rafmagni. Slíkur bíll, sem sérfræð-
ingar frá Kaliforníu breyttu, hefur
verið í tilraunaakstri hér á landi
síðan haustið 2007.
Samkeppni
Umtalaðasti væntanlegi keppi-
nautur tengi l-Priussins er
Chevrolet Volt, sem kynntur var í
framleiðsluútgáfu í vetur; þá var
boðað að hann kæmi á markað á
næsta ári. Gjaldþrot framleiðand-
ans, General Motors, getur þó sett
strik í þann reikning, en fullvíst
má telja að hið endurreista GM
sem stendur til að taki við eftir
að „gamla GM“ hefur verið keyrt í
gegnum hraðgjaldþrot muni halda
áformunum um markaðssetningu
Voltsins til streitu, enda falla þau
mjög vel saman við markmið ríkis-
stjórnar Baracks Obama Banda-
ríkjaforseta sem hefur sett bíla-
iðnaðinum vestra ströng markmið
um minni losun koltvísýrings. Þá
eru í gildi vestra lög um styrki til
kaupenda raf- og tengiltvinnbíla
til að hvetja enn frekar til þess að
slíkir bílar komist í umferð hrað-
ar en ella.
Hvatar
Ýmis lönd hafa lögleitt slíka hag-
ræna hvata til að ýta undir raf-
væðingu bílaflotans. Í vor ákváðu
til að mynda brezk stjórnvöld að
þeir sem skipta úr hefðbundn-
um benzín- eða díselbíl í nýjan
raf- eða tengiltvinnbíl ættu rétt á
5.000 sterlingspunda styrk úr rík-
issjóði, en sú upphæð samsvarar
nú hátt í milljón króna. Hægt
verður að sækja þessa styrki frá
og með árinu 2011, en þá gerir
stjórnin ráð fyrir að nægilegt
framboð af slíkum bílum verði
orðið að veruleika.
Þessir styrkir eru liður í áætlun
sem miðar að því að draga hraðar
úr losun gróðurhúsalofttegunda
frá bílaumferð í Bretlandi og 250
milljónir punda, andvirði hátt í
50 milljarða króna, hafa verið
teknir frá til að fjármagna. Annar
liður í áætluninni er að koma upp
hleðslustöðvakerfi fyrir rafbíla
meðfram þjóðvegum og í borg-
um landsins. Verja á sem svarar
um 3,5 milljörðum króna í þetta
verkefni.
Á Norðurlöndunum hafa stjórn-
völd líka sett sér metnaðarfull
markmið á þessu sviði. Í Sví-
þjóð hefur markið verið sett
á að 600.000 bílar knúnir raf-
magni að mestu eða eingöngu
verði komnir á göturnar fyrir
árið 2020. Í Noregi eru rafbílar
alveg skattfrjálsir. Í Danmörku er
verið að setja upp kerfi fyrir raf-
bíla sem byggir á því að hægt sé
að skipta um rafhlöður á hleðslu-
stöðvum, líkt og er með eldsneyti
á benzínstöðvum. Þar eru líka í
gildi miklir skattafslættir fyrir
raf- og tengiltvinnbíla.
Ísland?
Vorið 2008 skilaði stjórnskipuð
nefnd, sem fulltrúar fjögurra
ráðuneyta áttu sæti í og hafði
það hlutverk að gera heildar-
endurskoðun á kerfi gjald- og
skattheimtu af bílum og eldsneyti
hérlendis með það að markmiði
að gera hana umhverfisvænni, af
sér skýrslu þar sem lagðar voru
fram ítarlegar tillögur að því
hvernig breyta mætti þessu kerfi
hérlendis. Tillögurnar byggja á
því að gjaldheimtan taki öll mið
af koltvísýringslosun, þ.e. bæði
aðflutningsgjöld og aðrir skattar
af bílum og skattar af eldsneyti
byggðu á þessum sama grunni.
Ekkert hefur þó enn verið gert í
því að semja lagafrumvarp upp
úr tillögum nefndarinnar. En
hver veit hvað gerist nú þegar
fjármálaráðherrann er orðinn
„vinstri-grænn“?
Rafbílabyltingin lifir
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is
Framsæknasti tengiltvinnbíllinn sem
framleiddur hefur verið erFord Edge
HySeries, sem sýndur var hjá Ford-
umboðinu Brimborg í vetur sem
leið. Hann er búinn vetnisknúnum
efnarafal og öflugum rafmótorum.
Engar gróðurhúsalofttegundir losna
því við akstur hans. Eini útblásturinn
er vatnsgufa.
Miðað við rafbíla hefur drifbún-
aður eins og sá sem Ford Edge
HySeries skartar þann ótvíræða kost
að hafa allt að þrisvar sinnum meiri
drægni. En þar sem hann er einnig
búinn tengiltækni rafbíla má hlaða
rafgeymi bílsins (sem er af nýjustu
kynslóð liþíum-jóna-rafgeyma) í
venjulegri heimilisinnstungu og býr
hann því að sama einfalda orkuað-
gengi og rafbílar. Þegar settar hafa
verið upp hraðhleðslustöðvar fyrir
rafbíla, sem íslenzk stjórnvöld hafa
í hyggju að gera í samstarfi við Mit-
subishi, yrði svona útbúinn bíll enn
praktískari fyrir íslenzkar aðstæður.
Þar sem efnarafaltæknin eru enn
dýr er þó nokkuð í land að slíkur
vetnis-tvinnbíll verði fáanlegur í
fjöldaframleiðslu. Tengiltvinnbílar
búnir hefðbundnum brunahreyfli
(sem getur gengið fyrir benzíni,
dísilolíu eða lífrænu eldsneyti) eru
þannig mun raunhæfari kostur til
skemmri tíma litið.
FRAMSÆKNASTI TENGILTVINNBÍLLINN
AFMÆLIS-
HÁTÍÐ 1
ÁRS
Lindir Kópavogi eiga afmæli og af því
tilefni verður afmælishátíð alla vikuna.
Ný tilboð á hverjum degi hjá öllum fyrirtækjum.
TILBOÐ DAGSINS:
KÓPAVOGI
GPS vegaleiðsögutæki, Nuvi 200 VN
0100062120 / Nuvi 250 0100062102
19.995
Dagstilb
oðEvróp
ukort m
eð Nuvi
25012.995
Dagstilb
oð
25%afsláttur
(fullt verð 8.990)(fullt verð 9.990)
Dýravörur
Friskies hunda- og ka
ttamatur
- valdar tegundir
Dagstilboð
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki