Fréttablaðið - 03.06.2009, Qupperneq 22
3. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● skólar og námskeið
LEIÐSÖGUSKÓLINN
ICELAND TOURIST GUIDE SCHOOL
SOVÍ
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
Um 850 manns hafa sótt
um sumarlán hjá Lánasjóði
íslenskra námsmanna, sem eru
mun fleiri en í fyrra. Um tvö
þúsund manns stunda nám við
háskóla landsins í sumar.
Þegar hafa um 850 manns sótt um
sumarlán hjá LÍN, samanborið
við 550 manns í heild í fyrra.
Umsóknarfrestur til að sækja
um sumarlán rennur út 15. ágúst
og gerir Guðrún Ragnarsdóttir,
framkvæmdastjóri LÍN, ráð fyrir
að umsóknum eigi eftir að fjölga
talsvert. Um tvö þúsund manns
hafa skráð sig í sumarnám í há-
skólum landsins.
Lánasjóðurinn fékk aukafjár-
veitingu upp á 650 milljónir vegna
sumarlána. „Þetta gerði okkur
kleift að geta veitt öllum þeim lán
sem hafa áhuga á að stunda sum-
arnám,“ segir Guðrún.
Frá bankahruninu í haust hefur
ýmislegt annað verið gert til að
bregðast við ástandinu í efna-
hagsmálum innan sjóðsins. Neyð-
arlán buðust námsmönnum er-
lendis sem urðu fyrir verulegum
áföllum vegna bankahrunsins.
Um fimmtíu slík lán voru veitt
en mun fleiri sóttu um þau. Þá
var vaxtastyrkur aukinn til að
bregðast við auknum vaxta-
kostnaði, tekjuskerðing þeirra
sem hófu nám á vormisseri 2009
var lækkuð í fimm prósent úr
tíu prósentum og tekin upp ný
gengis viðmiðun á útreikningi
lána til íslenskra skiptinema, í
því miði að hækka framfærslu-
lán þeirra. Þá var sveigjan leiki í
endurgreiðslu námslána aukinn
og tekjumörk vegna undanþágu
2009 hækkuð úr 2,1 milljónum í
fjórar milljónir.
Um þessar mundir er verið
að endurskoða úthlutunarreglur
fyrir næsta vetur. „Það hefur
dregist dálítið, þar sem við erum
enn að bíða eftir svörum frá
fjármálaráðuneytinu um fjár-
veitingar fyrir árið 2010,“ segir
Guðrún. „Við vonumst eftir auk-
inni fjárveitingu, enda allar líkur
á aukinni eftirspurn eftir lánum.
Fleiri fara í nám vegna atvinnu-
ástandsins og fleiri af þeim sem
fara í nám munu þurfa á náms-
lánum að halda þar sem tekju-
öflun þeirra er minni en áður.“
Þá er nú unnið að því að lækka
tekjutengdar afborganir fyrir
haustið 2009 hjá þeim sem hafa
orðið fyrir verulegri tekjuskerð-
ingu milli áranna 2008 og 2009.
Endanleg útfærsla þess úrræðis
liggur ekki fyrir en áætlað er að
hún verði tilbúin þegar útreikn-
ingar liggja fyrir um miðjan
ágúst. Á heimasíðu Lánasjóðs-
ins www.ils.is er þegar hægt að
sækja um undanþágu á greiðslu
tekjutengdra afborgana. - hhs
Mikil ásókn í sumarlán
Nemendur við Háskólann í Reykjavík brautskráðir. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Guðrún Ragnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri LÍN, segir mörg skref hafa
verið stigin innan Lánasjóðsins til að
koma til móts við breyttar aðstæður
námsmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR