Fréttablaðið - 03.06.2009, Qupperneq 23
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Í nokkur ár hef ég fundið ein-
hverja leið sem mér finnst hæfi-
leg og spennandi í Mið- eða Suður-
Evrópu og farið út með hópa í
samstarfi við Bændaferðir,“ segir
Þórður Höskuldsson, framkvæmda-
stjóri Outcome hugbúnaðar, en
hann tekur að sér hjólaleiðsögn í
eina til tvær vikur á sumrin.
„Ferðirnar eru yfirleitt um
viku langar og taka mið af fólki
sem er í sæmilegu formi,“ segir
Þórður, sem hefur farið eina til
tvær ferðir á hverju sumri frá
árinu 2003. „Ég hef hjólað í Þýska-
landi, Hollandi, Ítalíu, Austurríki,
Króatíu og Slóveníu,“ segir Þórður
en ferðirnar taka mið af því hjól-
reiðastígakerfi sem til er í Evrópu.
„Ég reyni að þefa uppi skemmti-
legar leiðir, oft í samstarfi við
erlenda aðila sem sérhæfa sig í því
að skipuleggja hjólaferðir,“ segir
Þórður.
En hvar hefur verið skemmtileg-
ast að hjóla? „Hver ferð hefur sinn
sjarma en í Dólómítunum og nyrst
á Ítalíu hefur landslagið verið stór-
brotnast og veðrið hvað best. Þó er
líka víða fallegt í Austurríki,“ segir
Þórður. Inntur eftir því hvort hann
hafi lent í hremmingum á ferðum
sínum svarar hann: „Þær hafa verið
í lágmarki, en auðvitað þarf maður
að geta bjargað sér ef eitthvað bilar
og svo gerist það stundum að ein-
hver steypist á hausinn. Maður
þarf því bæði að geta gert við hjól
og fólk,“ segir hann glettinn.
Þórður hefur stundum villst af
leið enda fer hann aldrei sömu leið-
ina tvisvar. „Ég nýt þess að vera
svolítill könnuður á þessum ferð-
um,“ segir hann og viðurkennir að
daglengdirnar hafi frekar lengst
en styst eftir því sem ferðunum
fjölgar. „Í fyrstu ferðunum fórum
við um 50 til 60 kílómetra á dag en
í næstu ferð verður vegalengdin
um 80 til 100 kílómetrar á dag,“
segir Þórður. Hann leggur af stað
á morgun með tíu manna hóp til
Kaupmannahafnar og er stefnan að
hjóla til Berlínar í Þýskalandi. „Ég
horfi á þetta sem fyrsta legginn á
leið yfir Evrópu,“ upplýsir Þórður
en á fjórum árum ætlar hann að
ljúka við þá ferð sem mun enda við
Svartahaf.
Í þetta sinn munu ferðalangarnir
taka með sér hjól að heiman en
reglan hefur verið sú að hjólin hafa
verið leigð úti. „Nú endum við ekki
á sama stað og við hefjum för, auk
þess sem aukinn kostnaður fékk
okkur til að flytja hjólin frekar
með okkur,“ útskýrir Þórður. Hann
áætlar að hann hafi á síðustu tíu
árum hjólað um fimm til tíu þús-
und kílómetra í Evrópu og án vafa
verða þeir mun fleiri þegar fram
líða stundir. solveig@frettabladid.is
Hefur hjólað þúsundir
kílómetra í Evrópu
Þórður Höskuldsson, framkvæmdastjóri Outcome, starfar sem hjólaleiðsögumaður í hjáverkum. Á hverju
sumri skipuleggur hann eina til tvær hjólaferðir um Evrópu í samstarfi við Bændaferðir.
Þórður leiðir hópinn á hjólaferð um Ítalíu. MYND/ÚR EINKASAFNI
KAJAKFERÐIR eru meðal þess sem boðið er upp á í Mjóafirði í Ísafjarðar-
djúpi. Er um tvenns konar ferðir að ræða sem eru mislangar. Í þeirri lengri
er róið að Látrum framhjá Selalátri og endað í Hörgshlíðarpotti. Í þeirri styttri
er róið frá Heydal og inn að Hörgshlíðarpotti. Sjá
www.vesturferdir.is.