Fréttablaðið - 03.06.2009, Page 34
25 19,7 5,2milljónir dala, eða nálægt þremur milljörðum króna, runnu á einu ári til Gisele Bündchen, tekju-hæstu fyrirsætu heims, frá byrjun júní í fyrra til maí-
loka nú, samkvæmt samantekt Forbes. Upphæðin
er tíu milljónum dala lægri en árið áður.
prósent af eignarhlut Stoða í Royal Unibrew
komust í síðustu viku í eigu Straums. Stoðir
eiga enn 16,3 prósent í brugghúsinu, en saman
eiga félögin 21,6 prósent.
milljónir punda, eða nærri fjórir milljarðar
króna, runnu til starfsmanna breska fjár-
málaeftirlitsins í fyrra í formi launabónusa.
Greiðslan er fyrir að hafa staðið vaktina í
hremmingum fjármálakerfis heimsins.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Hærri álögur hins opinbera á
eigendur ökutækja í gegnum
bensínskattinn í síðustu viku
gætu ýtt undir framleiðslu á inn-
lendu eldsneyti. Gjöldin ná ein-
ungis til innflutnings á jarðgasi,
svo sem bensíns og dísilolíu, en
ekki metanóls, vetnis, raforku
og fleiri nýjunga sem knúið geta
ökutæki. Tiltölulega einfalt mál
er að breyta bensínbíl og gera
hann metan- og vetnisfæran,
kostnaðurinn gæti legið nokkuð
undir fimmtíu þúsund krónum.
Þegar þetta er ritað liggur ekki
fyrir hverjir stefni á íslenska
eldsneytisframleiðslu á næstunni
né hvaða fyrirtæki geta framleitt
meira en sem svarar til nokkurra
vatnsglasa af eldsneytinu á viku.
Hvað sem öllu líður sjá bjart-
sýnismenn sem sjá fram á bjart-
ari tíma í öllu svartnætti að úr
hremmingunum hér geti komið
Íslendingar á umhverfisvænni
ökutækjum en fyrir kreppu.
Íslensk
framleiðsla Með leyfi AVALON PROMOTIONS & LIBERTY BELL
GRUMPY OLD WOMEN LIVE
Þrjár fyndnustu leikko
nur landsins saman á
sviðinu!í Íslensku óperunn
i
„Edda er meistari sem unun er að sjá og heyra. Ég hef lengi dáðst að
„replikkunni“ hennar Eddu, hvað hún er flink við að skjóta tilsvörunum beint
í mark; það eitt að heyra hana spýta bröndurunum út í salinn er leikhús -
ferðar innar virði.“ JVJ DV
„Mér fannst allar leikkonurnar fyndnar - en ég hló mest af Björk - hún er
æðislega fyndin!“ Róbert Gíslason - áhorfandi
„Þær Helga Braga og Edda eru gamanleikarar af guðs náð; eitt bros hér
og mjaðmahnykkur þar segir stundum meira en þúsund orð.“ Mbl.
„Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn og hér eru þeir allir traustir.
Allar þrjár verulega Fúlar á móti“ S. Mbl.
MIÐASALA Í SÍMA 511 4200 Á WWW.MIDI.IS OG Á WWW.OPERA.IS
Færeysku fyrirtækin sem skráð
eru á markað í Kauphöllina hér
héldu fjárfestaþing í gær þar
sem þau kynntu starfsemi sína
og afkomu upp á síðkastið. Þingið
var vel sótt og góður rómur gerð-
ur að því. Upplýsingamappa með
gögnum um færeysku fyrirtæk-
in sló sérstaklega í gegn. Eins og
flestir vita eru upplýsingamöpp-
ur fremur sterílar og leiðinlegar,
yfirleitt úr plasti eða leðri og
enda oftar en ekki undir haug
af rusli áður en Sorpa tekur við.
Þessi var hins vegar handgerð
úr ull eftir færeyska handverks-
konu. Vægt til orða tekið var
þetta snilldarverk, sem sjaldan
ef nokkurn tíma hefur sést á
kynningarfundum hér á landi.
Frumlegir
Færeyingar
Og aftur að möppunni. Einn
þeirra sem handléku möppu
Markaðarins sagði þetta furðu-
smíði enda handverkið afar gott
og hönnunin frumleg. Sumir
sáu strax að setja má gögn inn í
möppuna og rúlla henni upp á alla
kanta. Annar sem handlék þetta
færeyska furðuverk sagði það
sem aðrir töldu kost hinn mesta
galla. Ábendingin var með þess-
um orðum: „Þetta er ágætt. En ef
það væri harðara myndi það virka
almennilega.“ Við svo búið áttaði
viðkomandi sig á þeirri freudísku
hálku sem hann rann á þegar
átt var við að upp-
rúlluð mappa gæti
eyðilagt geisla-
diska og aðrar
gagnageymslur og
því væri betra að
hafa hart spjald
innan í ullinni.
Stífara gagnast
betur