Fréttablaðið - 03.06.2009, Síða 42
22 3. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson náði
enn einum risaáfanganum á sínum
ferli um helgina þegar hann varð
Evrópumeistari í fjórða skiptið á
ferlinum eftir ótrúlegan úrslita-
leik gegn Kiel. Dvöl Ólafs í þessum
vinalega bæ, sem er skammt frá
Madríd, hefur verið viðburðarík
en alls hefur Ólafur unnið sautján
titla á sex árum hjá félaginu.
„Þetta var svakalegur leikur.
Kiel var með dolluna í höndunum
í 119 mínútur og ég veit ekki alveg
hvað gerðist. Ég er alltaf svona
hálfdofinn allan tímann og svo allt
í einu er þetta búið. Það er eins og
ég sé dáleiddur meðan á leik stend-
ur og svo bara allt í einu er þetta
búið,“ sagði Ólafur, sem átti stór-
leik og skoraði markið sem gull-
tryggði sigurinn.
„Ég var samt ekkert að hugsa.
Það var mjög skrítið. Við þekkjum
samt allir hvern annan svo vel og
hreyfingar hvors annars. Í hverri
hreyfingu eru þrír möguleikar og
maður velur besta möguleikann.
Þó svo að ég hefði klúðrað skotinu
og við tapað þá hefði ég ekki verið
skammaður því ég valdi rétt.“
Furðulegasti Evrópumeistaratit-
illinn
Ólafur hefur oftar en ekki verið
bestur í stóru leikjunum og var
markahæstur í sjö af átta úrslita-
leikjum í þau fjögur skipti sem
hann varð Evrópumeistari.
„Allir þessir titlar voru mjög
sætir en þetta var sá furðulegasti
og furðulegri en í fyrra. Þá vorum
við inni í rimmunni í 60 mínútur
en í þessari viðureign vorum við
í raun búnir að tapa í 119 mínút-
ur. Við erum samtals níu mörkum
undir þegar tuttugu mínútur eru
eftir af leiknum. Það er algjört
grín að snúa því við á móti Kiel,“
sagði Ólafur.
Hann bauð upp á skemmtilegan
dans þegar verið var að afhenda
Ciudad bikarinn í leikslok. Ólafur
dansaði í kringum bikarinn og
setti hendurnar nálægt honum
líkt og hann væri heitur. Blaða-
manni lék forvitni á að vita hvað
þar hefði verið í gangi en þegar
Ciudad vann Meistaradeildina
2006 dansaði hann eftirminni legan
vélsagardans.
Felldi tár á blaðamannafundinum
eftir leikinn
„Ég mátti ekki snerta hann. Þetta
var svona eins og í Harry Potter
að ég hefði flust í annan heim ef
ég hefði snert hann of snemma,“
sagði Ólafur léttur og hló við. „Ég
tók svo einn kveðjuvélsagardans
fyrir fólkið daginn eftir. Ég togn-
aði þegar mínúta var eftir af leikn-
um og vélsögin varð því að bíða
aðeins.“
Það sem var óneitanlega sérstakt
við þessa leiki er að Ólafur var að
leika gegn vini sínum Alfreð Gísla-
syni en saman urðu þeir Evrópu-
meistarar með Magdeburg árið
2002.
Ólafur sat við hlið Alfreðs
og Talant Dujshebaev, þjálfara
Ciudad, á blaðamannafundi eftir
leikinn og felldi tár.
„Ég var með tvo bestu þjálf-
ara heimsins við hliðina á mér. Ég
fann eðlilega til með Alfreð sem
ég hef þekkt lengi og hann er lík-
lega fagmannlegasti þjálfari sem
ég hef unnið með. Það var sérstakt
að spila gegn honum og vinna hans
lið. Alfreð er það „kúl“ að ég vil
ekkert segja að mér þyki leitt að
vinna hann því ég veit að hann vill
ekkert heyra það.
Þetta var tilfinningaþrungin
stund því ég var að kveðja frábær-
an þjálfara og vinna góðan félaga,“
sagði Ólafur, sem fór lofsamlegum
orðum um Kiel og það starf sem
Alfreð hefur unnið með liðið. „Það
versta sem gat komið fyrir önnur
lið er að Kiel lenti í höndunum á
Alla.“
Konan mín trúði ekki á að við
gætum þetta
Það höfðu ekki allir trú á því að
Ciudad myndi vinna upp fimm
marka forskot Kiel úr fyrri leikn-
um og ein þeirra var eiginkona
Ólafs.
„Hún hafði enga trú á því að við
gætum þetta og við ræddum það
lengi. Hún horfði á hvernig Kiel
rúllaði yfir öll lið á meðan við
vorum að gefa færi á okkur,“ sagði
Ólafur, sem kveður Ciudad Real
sem Evrópu- og Spánarmeistari.
„Það er auðvitað draumur að
kveðja sem meistari. Það getur
enginn leikmaður hugsað sér betri
kveðjustund en ég fékk. Það var að
vissu leyti erfitt að kveðja fólkið
og það féllu tár. Spánverjarnir eru
ofsalega gott fólk. Þeir eru ekkert
að sýna manni samninginn eins
og Þjóðverjarnir þegar maður á
tvo slaka leiki. Spánverjarnir vita
að maður er mannlegur og gerir
sín mistök og sjá að maður legg-
ur sig fram. Ég hef lært mikið af
fólkinu hérna,“ sagði Ólafur, sem
er kominn í langþráð frí þar sem
hann hvílir þreytta fætur á sólar-
strönd. Þar verður hann áfram
og hann segir engar líkur vera á
því að hann spili með landsliðinu í
sumar. henry@frettabladid.is
Draumur að kveðja sem meistari
Ólafur Stefánsson kvaddi Ciudad Real síðasta sunnudag á besta mögulega hátt, sem Evrópu- og Spánar-
meistari. Ólafur hefur leikið með félaginu í sex ár og unnið sautján titla. Ólafur heldur nú til Þýskalands
þar sem hann leikur með Rhein-Neckar Löwen næstu tvö árin. Hann spilar ekki með landsliðinu í sumar.
KÓNGURINN HYLLTUR Jerome Fernandez tók Ólaf á herðar sínar eftir leikinn á sunnudag. Á sama tíma hylltu stuðningsmenn
Ciudad Real hetjuna sem hefur þjónað félaginu vel síðustu sex ár. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Landsliðsmarkvörðurinn geðþekki, Björgvin Páll Gústavsson, hefur
ákveðið að yfirgefa herbúðir þýska liðsins Bittenfeld og halda þess
í stað til Sviss.
Björgvin Páll er búinn að skrifa undir tveggja
ára samning við Kadetten Schaffhausen.
Er það annað tveggja bestu liða landsins
en hitt er Amicitia Zürich sem Kári Kristján
Kristjánsson samdi við á dögunum.
„Þetta kom upp fyrir um tveim vikum og gekk
allt afar hratt fyrir sig,“ sagði Björgvin Páll við
Fréttablaðið í gær en hann er afar spenntur fyrir því
að ganga í raðir félagsins.
„Það var smá vafi í fyrstu enda er þetta kannski ekki
sterkasta deildin. Ég sannfærðist aftur á móti eftir að hafa
skoðað aðstæður. Þetta er flottur klúbbur og liðið sterkt.
Ætli það væri ekki á bilinu sjötta til tíunda sæti í þýsku
úrvalsdeildinni ef það væri að spila þar. Það heillaði mig
líka að keppa um titil á hverju ári sem og að taka þátt
í Evrópukeppni. Svo er ég líka markvörður númer eitt
og það skiptir mig máli að fá að spila mikið,“ sagði Björgvin Páll
en Schaffhausen datt út fyrir Nordhorn í Evrópukeppninni í ár.
Aðstæður eru einnig allar hinar bestu enda fjárhags-
lega vel statt félag.
„Það kom mér á óvart hvað allar aðstæður eru
góðar hjá félaginu. Gildir það jafnt um æfingaaðstöðu
sem og sjúkraþjálfarateymi og annað. Aðbúnaðurinn
gefur þýsku úrvalsdeildarliðunum ekkert eftir,“ sagði Björg-
vin Páll, sem fær einnig flottan samning hjá félaginu.
„Mér sýnist ekki vera nein kreppa í Sviss. Liðið er sterkt
fjárhagslega og ég meira en tvöfalda launin mín. Það skiptir
líka máli í þessu árferði að vera hjá félagi þar sem maður getur
treyst á að fá útborgað. Það ætti ekki að vera vandamál þarna,“
sagði Björgvin Páll, sem hefur ekki gefið upp vonina um að
spila í þýsku úrvalsdeildinni.
„Ég er bara 24 ára og á mörg ár eftir. Þarna fæ ég að spila
og get bætt mig sem markvörður. Vonandi get ég svo tekið
næsta skref í kjölfarið,“ sagði Björgvin en Tékkinn Jan Filip er
einnig á leið til liðsins frá Rhein-Neckar Löwen.
BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON: YFIRGEFUR ÞÝSKALAND OG GENGUR Í RAÐIR EINS BESTA LIÐS SVISS
Björgvin Páll er búinn að semja við Schaffhausen
SUND Sundkonan Ragnheiður
Ragnarsdóttir vann til gullverð-
launa á Smáþjóðaleikunum á
Kýpur í gær og setti jafnframt
mótsmet, í tvígang.
Ragnheiður synti á nýju móts-
meti, 56,53 sekúndum, í undan-
rásum í gærmorgun en tíminn er
tæpri sekúndu frá Íslandsmeti
hennar í greininni sem er 55,66
sekúndur.
Í úrslitasundinu sjálfu synti
hún svo á tímanum 55,97 sekúnd-
um og vann gullið en hin unga
og efnilega Ingibjörg Jónsdóttir
varð í fjórða sæti.
Ásdís Hjálmsdóttir spjótkast-
ari, Jóhanna Ingadóttir þrí-
stökkvari, Kári Steinn Karlsson
langhlaupari og Bergur Ingi Pét-
ursson sleggjukastari unnu öll til
gullverðlauna á leikunum í gær.
- óþ
Smáþjóðaleikarnir í gær:
Ragnheiður
með mótsmet
RAGNHEIÐUR Vann gull á Smáþjóðaleik-
unum í gær. MYND/PÁLL BERGMANN
KÖRFUBOLTI Karlalandslið Íslands
í körfubolta byrjaði vel á Smá-
þjóðaleikunum í gær með fjörtíu
stiga sigri á Möltu, 93-53, en stað-
an í hálfleik var 54-20 Íslandi í
vil.
Páll Axel Vilbergsson var
stigahæstur hjá Íslandi með 20
stig en Magnús Þór Gunnarsson,
Sigurður Þorsteinsson og Þorleif-
ur Ólafsson komu næstir með 12
stig hver.
Ísland mætir heimamönnum í
Kýpur á leikunum í dag.
Þá tapaði kvennalandslið
Íslands í körfubolta fyrir Möltu,
53-69, þar sem Helena Sverris-
dóttir var stigahæst með 16 stig
en liðið leikur aftur á morgun
gegn Lúxemborg. - óþ
Smáþjóðaleikarnir í gær:
Fjörutíu stiga
sigur á Möltu
PÁLL AXEL Var stigahæstur hjá íslenska
liðinu í gær með 20 stig.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
> Björgvin í stað Andra Stefan
Miðjumaðurinn Andri Stefan hefur gengið frá tveggja
ára samningi við norska meistaraliðið Fyllingen.
Bæði Fyllingen og Drammen vildu fá Andra, sem
valdi Fyllingen á endanum. Haukar hafa þegar fund-
ið arftaka hans hjá félaginu því Stjörnumaðurinn
Björgvin Hólmgeirsson hefur skrifað undir tveggja ára
samning við Hauka. Athygli vekur að Andri verður ekki
atvinnumaður á fullum launum heldur mun félagið
útvega honum vinnu sem hann verður í þrjá
daga vikunnar.
sport@frettabladid.is