Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.05.2009, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 30.05.2009, Qupperneq 1
HELGARÚTGÁFA Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI30. maí 2009 — 128. tölublað — 9. árgangur Íslandskynning skilar árangri heimili&hönnun LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2009 Allt til rafhitunar Olíufylltir rafmagnsofnar Brenna ekki rykagnir. Auðveld uppsetning á vegg. 250 - 400 - 750 - 800 - 1000 - 1600 - 2000 wött. Norskir hitakútar AUÐUR ÞJÓÐARINNAR Jónína Guðnadóttir vekur áleitnar spurningar um þjóðleg gildi á sýningu sinni í Hafnarborg. SÍÐA 3 LÝSIR UPP SVEITINA Brasilískir götulistamenn voru fengnir til að skreyta fornan skoskan kastala með glaðlegum litum til að lífga upp á umhverfið. SÍÐA 2 FORTÍÐARÞRÁ Sífellt fleiri eigendur kaffi- og veitingahúsa velja að innrétta húsnæði sín með gömlum húsmunum. SÍÐA 2 maí 2009 fjölskyldan [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ] Stella Sif og Ragnar áttu bæði gæludýr þegar þau voru að alast upp og nú Jóga fyrir börn Öðruvísi sumarnámskeið í Önundarfirði. SÍÐA 7 Lautarferðir Leynistaðir fyrir lautarferðir á höfuðborgarsvæðinu. SÍÐA 6 Ð IÐ /A N TO N ÍS L E N SK A / S IA . I S /N A T 4 4 0 7 4 1 0 / 0 8 MENNING 10 VILLT FLÓRA 28 Dalai Lama mun snúa aftur til jarðar VIÐTAL 26 Fíflablöð í salöt og djúpsteiktir blómahausar 34% 74% Fr ét ta bl að ið M or gu nb la ði ð Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Fréttablaðið er með 117% meiri lestur en Morgunblaðið Allt sem þú þarft... TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG FÓLK Unnið er að því hörðum höndum að fá Noomi Rapace, aðalleikkonuna úr kvikmyndinni Karlar sem hata konur, til að vera viðstadda frumsýningu myndarinn- ar hér á landi. Kvikmyndin er byggð á vin- sælli bók eftir Stieg Lars- son en hún hefur slegið öll aðsóknarmet á hinum Norðurlönd- unum. Noomi hefur sterka tengingu við Ísland. Stjúpfaðir hennar er íslensk- ur, hún bjó á sínum yngri árum á Flúðum, talar góða íslensku og fyrsta kvikmyndahlutverkið henn- ar var í kvikmynd Hrafns Gunn- laugssonar, Í skugga hrafnsins. - fgg / sjá síðu 54 Leikkonan Noomi Rapace: Átti heima á Flúðum og talar íslensku BESTA VEGASJOPPAN Í gegnum árin hafa sársvangir og þreyttir ferðalangar haft viðkomu á Litlu kaffistofunni og gætt sér á hinni víðfrægu kjötsúpu Stefáns Þormars Guðmundssonar. Að mati álitsgjafa Fréttablaðsins er Litla kaffistofan besta vegasjoppa lands- ins. Vestfirðir þykja hins vegar fallegastir. Sjá síðu 22 FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KJARAMÁL „Það er ljóst að kjara- samningar hanga á bláþræði og lík- legt að það slitni upp úr þessu end- anlega,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Aðilum vinnumarkað- arins tókst ekki að ná samkomu- lagi um launahækkanir þrátt fyrir langar fundarsetur í gær. Þjóðar- sátt um áætlun í efnahags-, kjara-, og félagsmálum er í uppnámi. „Ætlunin var að sjá til botns í samskiptum okkar við atvinnurek- endur varðandi launaliðinn en það er ljóst að það hefur ekki tekist. Það er mikill ágreiningur okkar á milli um tímasetningar,“ segir Gylfi. Fulltrúar í samninganefnd ASÍ funda með sínu fólki eftir helgi til að fara yfir stöðuna. Gylfi segir að lausatök ríkisstjórnar og Seðla- banka við stjórn efnahagsmála hafi ekki hjálpað samningsaðilum við að ná saman. Hugmynd Samtaka atvinnulífs- ins (SA) var að 13.500 króna hækk- un lægstu launa, sem upphaflega átti að koma til 1. mars, kæmi til með tveimur jöfnum greiðslum 1. júlí og 1. nóvember. Eins að hækk- un í byrjun næsta árs yrði frestað til 1. september. Verkalýðshreyf- ingin hefur hafnað henni. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri SA, segir að atvinnu- rekendur geti og muni ekki mæta kröfu ASÍ um að staðið verði við 13.500 króna hækkun 1. júlí. „Það liggur fyrir að við ráðum ekki við það. Það er ljóst að við erum á leið- inni á byrjunarreit.“ Hann segir að tilboði SA hafi verið ætlað að skapa sátt svo fólk og fyrirtæki geti horft til framtíðar af bjartsýni. „Það er ekki bara spurning um launin held- ur efnahagsumgjörðina í heild sinni. Þetta snýst um að fyrirtæk- in þori að ráða fólk og fjárfesta.“ Litið hefur verið til samkomu- lags um launalið kjarasamninga sem grunn að þjóðarsátt. Vil- hjálmur telur að án samkomulags við verkalýðshreyfinguna um laun séu forsendur svokallaðrar þjóðar- sáttar í raun ekki lengur til stað- ar. „Allur sá stöðugleiki sem menn ætluðu að ná með sátt um kjara- samninga næst ekki og við höfum þá ekki sama vald á atburðarásinni eins og við hefðum annars haft.“ - shá Þjóðarsátt í uppnámi Aðilum vinnumarkaðarins tókst ekki að ná samkomulagi um launamál í gær. Kjarasamningar eru í uppnámi. Forsendur þjóðarsáttar svo gott sem brostnar. SVEITARSTJÓRNARMÁL Ólíklegt er talið að eigendur fasteigna muni njóta fyrirsjáanlegrar lækkunar á fasteignamati nú um mánaðamótin. Sveitarstjórnarfólk kvíðir mikilli lækkun og líklegt er talið að þau sveitarfélög sem ekki hafa full- nýtta álagsprósentu hækki hana til að halda óbreyttum tekjum. Sveitarfélögin hafa notað álags- prósentuna sem sveiflujöfnunar- tæki til að álögur séu ekki óeðli- lega miklar, sérstaklega þar sem þensla á fasteignamarkaði hefur verið mest. Þau hafa það í hendi sér að halda tekjum sínum óbreytt- um, sem hins vegar þýðir að fast- eignaeigendur njóta ekki þeirrar lækkunar sem talin er líkleg. - shá / sjá síðu 6 Nýtt fasteignamat á morgun: Skattahækkun talin nauðsyn NOOMI RAPACE HULDA GUNNLAUGSDÓTTIR FORSTJÓRI VILL RÁÐAST AÐ RÓT VANDA SPÍTALANS. VIÐTAL 18 DRÁPSVÉLMENNI SNÚA AFTUR BÍÓ 30 DÝRIN KENNA OKKUR UMHYGGJU Hundar, köttur, páfagaukur og gullfiskar búa í sátt og samlyndi hjá fjölskyldu í Reykjavík FJÖLSKYLDUBLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.