Fréttablaðið - 30.05.2009, Síða 4

Fréttablaðið - 30.05.2009, Síða 4
4 30. maí 2009 LAUGARDAGUR EFNAHAGSMÁL Svigrúm hins opin- bera til að hækka neysluskatta er minna vegna áhrifa á vísi- tölu neysluverðs, segir Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur Greining- ar Íslandsbanka. Aðrir skattar, svo sem tekju- eða fjármagnsskattar, hafa ekki sömu áhrif á verðbólguna. Jón Bjarki segir hins vegar ómögu- legt að spá fyrir um hvaða leiðir ríkið kjósi að fara í frekari tekju- öflun, hvort það verði með niður- skurði og hagræðingu eða aukinni skattheimtu, en líklegast verði það þó með blöndu þessa alls. Samkvæmt útreikningum Jóns Bjarka nema verðtryggðar skuld- ir heimila alls um það bil 1.440 milljörðum. Af því skulda heim- ilin rúmlega 670 milljarða í gegn- um lán hjá bönkunum, um það bil 600 milljarða hjá Íbúðalánasjóði og ríflega 170 milljarða lífeyrissjóð- unum. Áhrif síðustu skattahækk- ana muni því auka skuldir heimil- anna um rúma sjö milljarða króna. Hann segir erfiðara að áætla áhrif- in á skuldir sveitarfélaga, en þau séu þó mun minni. „Sveitarfélögin eru líka eðlilegir útgefendur verð- tryggðra skulda þar sem tekjur þeirra eru í eðli sínu verðtryggð- ar og hreyfast nokkuð jafnt með verðbólgunni, þótt frá því kunni að verða einhver frávik í ástandi eins og núna.“ Jón Bjarki segir að þótt verð- trygging lána fyrirfinnist víðar en hér sé sú útbreiðsla verðtryggðra húsnæðislána sem hér sé nánast einsdæmi í heiminum. „Í flestum Evrópulöndum taka fyrst og fremst ríki, sveitarfélög og veitufyrirtæki verðtryggð lán, en þau hafa tekj- ur sem hreyfast með verðlagi. Það gildir ekki um tekjur almennings hér.“ Óttar Guðjónsson, framkvæmda- stjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, segir enn beðið nokkurra árs- reikninga sveitarfélaga, en sam- kvæmt reikningum ársins 2007 hafi skuldir þeirra þá numið 300 milljörðum króna. Upphæðin hafi líkast til hækkað ríflega í fyrra, enda hafi erlendar skuldir tvöfald- ast vegna gengisáhrifa og innlend- ar skuldir hækkað um fimmtung. Sé miðað við 350 milljarða skuld segir Óttar að hækkun vegna skatt- hækkananna nú muni nema tveim- ur milljörðum króna. Upphæðin er eitthvað lægri vegna hlutfalls erlendra skulda, en upplýsingar um skiptingu skulda sveitarfélaganna liggja ekki fyrir. „Þessi hækkun væri þó ekki óyfirstíganleg. Ef við gefum okkur að greiðslubyrðin sé einn tíundi á ári, þá eru það 35 milljarðar sem dreifast yfir á sjötíu sveitarfélög,“ segir Óttar. olikr@frettabladid.is Verðbólguáhrif draga úr svigrúmi ríkisins Svigrúm til hækkana neysluskatta minnkar vegna áhrifa á verðtryggðar skuld- ir. Skuldir á heimilin aukast um rúma sjö milljarða við nýjustu skattahækkanir, en hækkun lána til sveitarfélaga verður líkast til undir tveimur milljörðum. VIÐSKIPTI „Að fyrstu aðgerðir rík- isins í fjármálum skuli vera að hækka skatta endurspeglar ranga forgangsröðun,“ segir Finn- ur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Bendir hann á að síð- ustu ár hafi útgjöld hins opinbera þanist út og nær hefði verið að byrja á hagræðingu og niðurskurði útgjalda frem- ur en skatta- hækkunum. Þá er í nýju áliti Viðskiptaráðs bent á áhrif aukinna álaga á áfengi, tóbak og bifreiðanotkun á vísitölu neyslu- verðs. „Löggjöfin mun því valda verðbólguskoti strax við næstu verðlagsmælingu. Tímasetning- in er mjög óheppileg, enda fjár- hagsstaða heimila og fyrirtækja nú þegar í molum,“ segir þar. - óká Skoðun Viðskiptaráðs Íslands: Forgangsröðun ríkisins er röng FINNUR ODDSSON Í NAUTHÓLSVÍK Helst er að víkja megi til hliðar um stund áhyggjum af verðbólgu- áhrifum skattahækkana á verðtryggðar skuldir á sólskinsdögum á ströndinni. Flestir vonast eftir góðu sumri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Í flestum Evrópu- löndum taka fyrst og fremst ríki, sveitarfélög og veitufyrirtæki verðtryggð lán. JÓN BJARKI BENTSSON GREININGU ÍSLANDSBANKA LÖGREGLUMÁL Sérstakur saksóknari vegna bankahrunsins hefur þurft að handtaka menn sem grunaðir eru í rannsóknum tengdum bankahruninu. Ekki fæst uppgefið hverja þurfti að handtaka, eða hvers vegna. Hinum handteknu var sleppt að yfirheyrslu lokinni. Embættið er með yfir tuttugu mál til rannsóknar. „Við höfum mjög sparlega notað handtök- uúrræðið, en við höfum þurft að nota það,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak- sóknari vegna bankahrunsins. Hann segir handtökur, húsleitir og fleira verkfæri lög- reglu, og ekki sé óeðlilegt að beita þurfi þeim verkfærum við rannsókn efnahags- brotamála eins og annarra mála. Spurður hvernig gangurinn sé í rann sókn- um embættisins segir Ólafur að nokkur mál séu ágætlega sett, en önnur séu styttra á veg komin. Ekki sé hægt að tímasetja hvenær niðurstöður fáist. Ólafur vildi í gær ekki upplýsa hvort emb- ættið hefði yfirheyrt Sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani, sem keypti hlutabréf í Kaupþingi fyrir 25 milljarða króna, eða aðra sem tengdust því máli. Þar er talið að um sýndargjörning hafi verið að ræða til að hafa áhrif á verð hlutabréfa í Kaupþingi. Gerðar voru tíu húsleitir vegna þess máls hér á landi nýverið. Ólafur staðfesti að engar húsleitir hefðu verið gerðar vegna málins á starfsstöðvum og heimilum manna því tengdra erlendis. „En við höfum ekki sagt að við séum hættir að leita.“ - bj Góður gangur er í ríflega 20 málum sem sérstakur saksóknari vegna bankahrunsins er með til rannsóknar: Hefur þurft að handtaka grunaða SAKSÓKNARA VANTAR UPPTÖKUTÆKI Sérstakur saksóknari vegna bankahrunsins hefur enn ekki yfir að ráða upptökutækjum til að taka upp hljóð og mynd af yfirheyrslum. Því þurfa starfsmenn embættisins að yfirheyra grunaða og vitni utan skrifstofu embættisins í Borgartúni. Ný lög um meðferð sakamála leggja ríka skyldu á lögreglu um að taka upp yfirheyrslur, segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Hann segir orðið brýnt að koma upp aðstöðu til að yfirheyra menn á skrifstofu embættisins, og unnið sé að því hörðum höndum að svo megi verða. Ekki erfitt hjá öðrum Fjallað var um fjárhagserfiðleika hvíta- sunnukirkjunnar Fíladelfíu í Frétta- blaðinu nýlega. Tekið skal fram að aðrir söfnuðir hvítasunnuhreyfingar- innar hafa ekki átt í fjárhags erfið- leikum. ÁRÉTTING Á S B R Ú - S Í M I : 5 7 8 4 0 0 0 - W W W . K E I L I R . N E T Umsóknarfrestur rennur út 5. júní. Allar nánari upplýsingar á www.keilir.net. HÁSKÓLABRÚ Eins árs undirbúningur fyrir háskólanám DÓMSMÁL Kæru Samtaka verslun- ar- og þjónustu fyrir hönd Office 1 gegn Ríkiskaupum hefur verið vísað frá kærunefnd útboðsmála. Kjartan Örn Siguðsson, for- stjóri Office 1, taldi Ríkiskaup hafa brotið á fyrirtækinu með því að framselja rammasamning sem gerður var við Pennann og A4 í febrúar í fyrra til arftaka þess- ara tveggja fyrirtækja. Nýju fyr- irtækin eru bæði í eigu banka. Kærunefndin segir valdsvið sitt ekki ná til að úrskurða um nokkuð það er varði framkvæmd samninganna eftir að þeir höfðu formlega komist á. Þess vegna sé málinu vísað frá. - gar Meint brot Ríkiskaupa: Kæru Office 1 var vísað frá SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn Álftaness segir að Kristján Sveinbjörnsson, sem sagði af sér sem bæjarfulltrúi og forseti bæj- arstjórnar í desember í fyrra, geti ekki tekið sæti sitt aftur í bæjarstjórn eins og hann hefur sagst ætla að gera. Bæjarstjórnin samþykkti á fimmtudag bókun bæjarráðs um mál Kristjáns: „Það er afstaða bæjarráðs að KS [Kristján] ósk- aði eftir, og samþykkt var af bæjarstjórn, ótímabundnu leyfi frá störfum bæjarfulltrúa. KS [Kristján] óskaði ekki eftir tíma- bundnu leyfi og því var bæj- arstjórn óhjákvæmilegt annað en að veita ótímabundið leyfi. KS [Kristján] getur því ekki að mati bæjarráðs snúið aftur til starfa sem bæjarfulltrúi á yfirstandandi kjörtímabili.“ - gar Bæjarstjórn Álftaness: Kristján fái ekki sætið sitt aftur Bæjarstjórn í langt frí Bæjarstjórn Voga á Vatnsleysuströnd samþykkti á fimmtudag að taka sér sumarfrí næstu þrjá mánuðina og funda ekki aftur fyrr en 27. ágúst. Á meðan hefur bæjarráð umboð til fullnaðarafgreiðslu mála. VOGAR Birkir spyr um bílalánin Birkir Jón Jónsson Framsóknarflokki vill vita hve margir eru með erlend veðbílalán, hve há þau eru, hvert virði viðkomandi bíla er og hvort viðskipta- ráðherra hyggist aðstoða þá sem slík lán hafa. ALÞINGI VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 23° 21° 24° 20° 21° 22° 21° 22° 21° 20° 23° 22° 25° 32° 23° 22° 24° 21° Á MORGUN 3-8 m/s MÁNUDAGUR 3-8 m/s 8 12 12 13 14 8 12 8 8 8 6 5 5 4 4 3 3 4 8 4 5 6 7 12 13 10 8 9 12 12 1110 VEÐRIÐ Í DAG Í dag verður hæg suðvestlæg átt. Yfi rleitt verður fremur skýjað og víða hætt við skúrum. Einkum er þó skúrahættan á suðvesturfjórðungi landsins en einhverjar skúrir gætu læðst norðar. Austan til gengur úrkomuloft norður með austur- ströndinni þar sem einhver væta verður en í kjölfarið léttir til, fyrst austan Vatnajök- uls. Úrkomuminna verður restina af helginni. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur GENGIÐ 29.05.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 211,3804 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 122,97 123,55 198,78 199,74 173,38 174,36 23,285 23,421 19,409 19,523 16,203 16,297 1,2822 1,2896 190,27 191,41 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.