Fréttablaðið - 30.05.2009, Blaðsíða 12
12 30. maí 2009 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 46 Velta: 1.079 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
268 +2,91% 737 +4,62%
MESTA HÆKKUN
ALFESCA +17,65%
MAREL FOOD S. +5,05%
ÖSSUR +3,40%
MESTA LÆKKUN
BAKKAVÖR GROUP -3,97%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,00 +17,65% ... Atlantic
Airways 167,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 550,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,21 -3,97% ... Eik Banki 89,00 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 119,00 +0,00% ... Icelandair Group
4,60 +0,00% ... Marel Food Systems 64,50 +5,05% ... Össur 106,50
+3,40%
Hlutur Singer & Friedlander, banka Kaupþings í
Bretlandi, í bresku verslunarkeðjunni Booker er
kominn í söluferli.
Um 22 prósenta hlut er að ræða. Áætlað verðmæti
hleypur á níu til 98 milljónum punda, jafnvirði allt að
19,6 milljarða króna, miðað við að hann verði seldur
á 28 til 30 pens á hlut, samkvæmt Bloomberg-frétta-
veitunni í gær.
Verðmiði Booker, sem er umsvifamesta heildsölu-
keðja Bretlands, stóð í rétt rúmum þrjátíu pensum á
hlut í gær og var markaðsvirði keðjunnar 450 millj-
ónir punda.
Hluturinn var áður í eigu Kaupthing Capital Partn-
ers II en í framhaldi af því að Singer & Friedlander
á Mön var tekið til gjaldþrotaskipta er hluturinn nú á
forræði PwC.
Baugur og Fons áttu saman 31,4 prósenta hlut í
Booker eftir uppstokkun á Big Food Group árið 2005.
Félögin seldu hlutinn í júní í fyrra. - jab
Kaupþing selur fimmt-
ungshlut sinn í Booker
jún. júl. ágú. sept. okt. nóv. des. jan. feb. mar. apr. maí
7,16
6,32
6,32
4
120
111
113,6
Alfesca
Króna
Evra
HUGMYNDASAMKEPPNI
HVERNIG ER BEST AÐ FRÆÐA GRUNNSKÓLA-
NEMENDUR UM VERKALÝÐSHREYFINGUNA?
RITUN NÁMSEFNIS UM
VERKALÝÐSHREYFINGUNA
FYRIR EFSTU BEKKI
GRUNNSKÓLA
ASÍ leitar að einstaklingi til að skrifa
kennslubók fyrir 9.-10. bekk grunnskóla
um verkalýðshreyfinguna, sögu hennar,
sigra og hlutverk í nútímasamfélagi.
Lengd bókarinnar er áætluð 30-40 bls.
en hún verður prentuð í 5000 eintökum
og dreift í alla grunnskóla landsins.
Umsækjendur þurfa að skila inn tillögum
um efnismeðferð og hugmyndum
að verkefnum og kennsluaðferðum.
Sérstök valnefnd, sem m.a. er skipuð 5
grunnskólanemum, verður látin meta
umsóknir.
ASÍ útvegar heimildir/efni til vinnslu.
Hugmyndum ber að skila fyrir 15. ágúst.
Umsækjandi þarf að hafa gott vald á
íslenskri tungu ásamt háskólaprófi í
kennslufræðum eða aðra sambærilega
menntun og/eða reynslu, sem nýtist við
gerð námsefnis.
Nánari upplýsingar gefur deildarstjóri
fræðsludeildar, eyrun@asi.is (sími 535
5636). Nákvæmari útlistun á verkefninu
er einnig að finna á vef ASÍ www.asi.is
Yfirtökutilboð er væntan-
legt í Alfesca. Forstjórinn
segir það varnarleik í þeim
hremmingum sem gengið
hafi yfir markaðinn. IFS
greining segir það lágt í
samanburði við gengi evru.
„Við teljum að tilboðsverðið sé mjög
gott miðað við aðstæður,“ segir
Xavier Govare, forstjóri Alfesca.
Hann á hlut í væntanlegu yfir-
tökutilboði í félagið ásamt Ólafi
Ólafssyni stjórnarformanni og sex
öðrum lykilstjórnendum félagsins,
Singer & Friedlander, banka Kaup-
þings í Lundúnum sem er í greiðslu-
stöðvun, og franska félaginu Lur
Berri Iceland, sem er í eigu franska
matvælaframleiðandans Lur Berri
Holding.
Enn á eftir að senda yfirtökutil-
boðið til Kauphallarinnar og leggja
það fyrir hluthafa.
Tilboðið hljóðar upp á 4,5 krón-
ur á hlut og er 32,4 prósentum yfir
lokaverði Alfesca á fimmtudag.
Gengi hlutabréfa í félaginu stóð í
3,4 krónum á hlut á fimmtudag en
rauk upp um 17,6 prósent í gær og
endaði í fjórum krónum.
Lur Berri og Alfesca hafa unnið
saman um árabil en félagið er mik-
ilvægasti birgir Labeyrie, félags
Alfesca í framleiðslu og sölu á
andabringum. Það velti jafnvirði
72 milljarða króna í fyrra.
Lur Berri hefur frá því í fyrra-
dag styrkt mjög stöðu sína í hlut-
hafahópi Alfesca. Það átti þá þrjú
prósent í félaginu en bætti óðum við
hlut sinn. Aðrir hluthafar, sem sitja
á tólf prósentum hlutafjár, hafa sýnt
vilja til að taka tilboðinu og gangi
allt eftir verður Lur Berri annar
stærsti hluthafi félagsins með 35
prósent þegar yfir lýkur.
Ólafur og hinir hluthafar Alfesca
munu ekki selja hluti sína.
Þá er ekki inni í myndinni nú
um stundir að Lur Berri fari yfir
35 prósentin eða leitist við að taka
Alfesca alfarið yfir á næstu árum,
að sögn Govares.
Stefnt er að því að taka Alfesca af
markaði síðar á árinu. Slíkt hefur
lengi vofað yfir en Ólafur Ólafs-
son, stjórnarformaður félagsins
til tíu ára og stærsti hluthafi þess,
sagði í samtali við Markaðinn, við-
skiptablað Fréttablaðsins, í nóvem-
ber í fyrra að dýfa krónunnar hefði
snert mjög við hluthafana, ekki síst
erlenda stjórnendur sem ættu stóra
hluti í félaginu og hefðu horft upp
á eignina gufa upp. Þar sem hluta-
bréf fyrirtækisins hefðu ekki verið
skráð í evrur yrði það líklega tekið
af markaði.
IFS Greining sagði í gær tilboð-
ið lágt, sérstaklega í ljósi þess að
undirliggjandi verðmæti Alfesca
væri að mestu í evrum. Á móti er
tekið fram að tilboðið sé að mestu
í takt við lágt gengi félaga á mark-
aði almennt. Engin viðskiptavakt
sé með það og fjárfestar því í raun
fastir inni í félaginu. Tilboðið sé
ákveðin leið fyrir þá. „Við telj-
um að fyrir aðila með aðgang að
erlendum gjaldeyri sé Alfesca mjög
áhugaverður fjárfestingarkost-
ur og ekki útilokað að önnur félög
myndu vilja skoða þann möguleika
að kaupa félagið,“ segir í áliti IFS
Greiningar.
Xavier Govare tekur undir þetta
en hann hefur tekið eftir áhuga
erlendra félaga á kaupum á Alfesca.
Tilboðin hafi hins vegar verið afar
lág og því aldrei komið til viðræðu.
„Það voru fáránlegar tölur og því
teljum við tilboðið okkar gott,“ segir
hann. jonab@markadurinn.is
GOVARE KYNNIR STÖÐUNA Helstu hluthafar, stjórnendur og lykilbirgir Alfesca telja
væntanlegt yfirtökutilboð sitt gott. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Forstjórinn segir
yfirtökuboð gott
Gunnar Karl Guðmundsson, fyrr-
verandi forstjóri Skeljungs og
stjórnarformaður Tryggingamið-
stöðvarinnar, hefur verið ráðinn
forstjóri MP Banka.
Gunnar hefur lengst af starfað
hjá Skeljungi, aðallega við fjár-
málastjórnun og áhættustýringu.
Hann varð þar aðstoðarforstjóri
árið 2000 og forstjóri árið 2003.
Þá hefur Gunnar Karl gegnt
fjölda trúnaðarstarfa í íslensku
atvinnulífi. Núna er hann meðal
annars stjórnarmaður í Samtök-
um atvinnulífsins og Samtökum
verslunar og þjónustu. - óká
Nýr forstjóri
yfir MP banka
Samanburður á gengi Alfesca, evru og krónu í eitt ár