Fréttablaðið - 30.05.2009, Síða 36
Sýning helguð skotthúfum var
opnuð á Torgi Þjóðminjasafnsins
í gær en þar mæta skotthúfur úr
safneign skotthúfum dagsins í dag.
Nýju skotthúfurnar eru hannaðar
af þeim Ingibjörgu Guðjónsdótt-
ur og Þórunni Elísabetu Sveins-
dóttur. Þær byggja á gamalli hefð
og ást á arfleifðinni en eru þó með
nútímalegu sniði. Þórunn Elísa-
bet er hönnuður sýningarinnar en
áhugi á skotthúfunni hefur blundað
í henni lengi. „Ég hef alltaf verið
hrifin af skotthúfum en komst
ekki að því fyrr en seint að það
voru Hólapiltar sem upphaflega
gengu með þær. Síðan tóku stelp-
urnar við og þá fóru skúfarnir að
lengjast. Húfan minnkaði jafnt og
þétt og á endanum var þetta orðin
kringlótt dúlla fest með prjónum
og notuð við íslenska þjóðbúning-
inn,“ lýsir Þórunn.
Þórunn fór sjálf að fikta við að
gera skotthúfur fyrir nokkrum
árum. „Húfurnar mínar eru djúpar
og þess vegna hægt að draga þær
niður fyrir augu. Þær eru hlýjar,
mjúkar, kvenlegar og skartast vel.“
Í hólkana notar Þórunn ýmist silf-
ur eða lambalegg. Sumar húfurnar
eru svartar, aðrar með röndum og
enn aðrar með átta blaða rós. Þær
fara í ferðalag vítt og breitt um
landið en margir koma að smíða-
og prjónaskapnum.
Þórunn segir tilviljun að hún og
Ingibjörg skuli báðar vera að gera
skotthúfur. „Það var Þjóðminja-
safnið sem kom á þessu stefnu-
móti en þó svo að
við vinnum báðar
út frá sömu hug-
mynd eru efnistökin
aðeins önnur. Mínar
húfur eru vélprjón-
aðar en hennar
handprjónaðar og kannski aðeins
strákalegri,“ segir Þórunn en Ingi-
björg lýsir þeim með eftirfarandi
hætti: „Skotthúfan mín varð til við
innblástur af hinni upprunalegu
skotthúfu Hólapilta og prjónuðu
kvenskotthúfunni. Hún er hand-
prjónuð, þæfð og meðhöndluð af
ást, til að veita sem besta vörn
gegn umhleypingasömu íslensku
veðri.“ vera@frettabladid.is
Skotthúfur í nýju ljósi
Á Þjóðminjasafninu mæta skotthúfur úr safneign skotthúfum dagsins í dag en þær nýju hafa öllu meira
hlífðargildi en skotthúfan sem tilheyrir íslenska þjóðbúningnum. Þær byggja þó allar á ást á arfleifðinni.
Þórunn notar ýmis
silfur eða lambalegg í
hólkinn.
FJÖLSKYLDUDAGUR verður í Ráðhúsi Reykjavíkur
í dag. Sérstök hátíðarsýning verður á Hamlet í flutningi
Leynileikhússins í leikstjórn Sólveigar Guðmundsdóttur.
Sýningin hefst klukkan 14 og tekur 15 mínútur í flutningi.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Þórunn Elísabet
Sveinsdóttir byrjaði
að fikta við að gera
skotthúfur fyrir
allnokkrum árum og
notar þær við ýmis
tækifæri.
Handprjónuð húfa
með rauðum
skúf eftir
Ingibjörgu
Guðjóns -
dóttur.
Ókeypis
sumarnámskeið
fyrir 7-12 ára krakka
Gleðidagar
Hvað ungur nemur, gamall temur
Rauði kross Íslands í samvinnu við Öldrunarráð Íslands
og Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands stendur fyrir
sumarnámskeiðum fyrir 7-12 ára krakka á höfuðborgar-
svæðinu og Akranesi. Um er að ræða 5 daga námskeið,
kennt verður virka daga frá klukkan 9-16 og er þátt-
takendum að kostnaðarlausu. Dagskráin er mjög fjöl-
breytt og skemmtileg. Leiðbeinendur á námskeiðinu
verða að mestu eldri borgarar.
Námskeiðin verða haldin:
08.06-12.06
15.06-19.06
22.06-26.06
29. 06-03.07
06.07-10.07
Skráning í síma 570 4000 eða á raudikrossinn.is
Félagsstarfið Gerðubergi, Reykjavík
Félagsstarfið Gerðubergi, Reykjavík
Kópavogsdeild Rauða krossins, Hamraborg 11.
Kjósarsýsludeild Rauða krossins, Þverholti 7, Mosfellsbæ
Akranesdeild Rauða krossins, Skólabraut 25a, Akranesi
Tryggvagötu 19 • 101 Reykjavík Sími 562 5030 • www.kolaportid.is
Opið laugardag og mánudag
20 ára afmæli Kolaportsins
Sælgæti og íspinnar handa börnunum
Frábær t i lboð á völdum vörum
TILBOÐ:
Korktöffl ur fyrir dömur
Stærðir: 37 - 42
Verð: kr. 1.000.-
JÓGA
Ásta Arnardóttir • 862 6098
www.this.is/asta • astaarn@mi.is
www.lotusjogasetur.is • Borgartúni 20
MORGUN / HÁDEGI / SÍÐDEGI
BYRJENDANÁMSKEIÐ HEFST 22. OKT.
KUNDALINI HEFST 22. OKT.
YOGA Í SUMAR
Ásta Arnardóttir • 862 6098 • asta@this.is
Lótus jógasetur • www.this.is/asta
• OPIÐ KORT Í YOGA - 1 MÁNUÐUR FRÍTT
• BYRJENDANÁMSKEIÐ HEFST 3. JÚNÍ
• KRAKKAYOGA OG LEIKLIST 8. - 12. JÚNÍ
• VORHREINSUN LIFANDI FÆÐI 12.-13. JÚNÍ
• YOGA Í FJALLASAL Í JÚLÍ OG ÁGÚST
Með Gestakorti Reykjavíkur er íbúum borgarinnar og gestum
hennar gert auðveldar að njóta menningarlífs. Handhafar korts-
ins fá aðgang að helstu söfnum, frítt í sund og ótakmarkað í
strætó í Reykjavík. Gestakortið er til sem 24, 48 og 72 tíma kort.
www.visitreykjavik.is