Fréttablaðið - 30.05.2009, Side 50
6 fjölskyldan
samverustundir
ræktum líkama og sál ...
LEYNISTAÐIR
fyrir lautarferð
Á góðviðrisdögum er tilvalið að fara í lautarferð með fjölskyldunni. Ýmsir skemmtilegir
staðir til slíkrar iðju eru á höfuðborgarsvæðinu og Fjölskyldublaðið fór á stúfana og heim-
sótti nokkra, til innblásturs fyrir lesendur næst þegar sólin skín á suðvesturhorninu.
Hellisgerði í Hafnarfirði
Einn elsti almenningsgarður á Íslandi er Hellisgerði í Hafnarfirði. Garðurinn er í hrauninu í Hafnarfirði
sem gefur honum sérstakt yfirbragð og gerir hann einstaklega skjólgóðan sem er það sem heillar í
lautarferðum. Þar er líka bonsaí-garður sem ungir og aldnir hafa gaman af að skoða.
Grundargerðisgarður í Reykjavík
Garðurinn er mikill leynigarður í Reykjavík
og fáir sem þekkja hann fyrir utan þá sem
búa í nágrenninu. Hann stendur við
Grundargerði í Smáíbúðahverfinu eins og
nafnið ber með sér, er stærri en hann virkar
frá götunni með háum trjám og skjólsælum
lundum. Þegar gróðursetningu sumar-
blóma er lokið á sumrið er mikið blómskrúð
í garðinum. „Hér er yndislegt að vera,“
sagði Ásdís Lára Runólfsdóttir sem var í
garðinum þegar blaðamenn voru þar á
ferð. „Ég kem hingað allan ársins hring í
hádeginu.“
VÍNBER ERU TILVALINN AUKABITI í lautarferð í fínni kantinum,
góð með salati og ostum en líka frábær ein og sér. Fyrir krakkana eru
þau tilvalin tilbreyting við óhollara smásnakk eins og kex og súkkulaði.
Þeir sem allir þekkja …
Hljómskálagarðurinn, Miklatún og Laugardalurinn
eru allt staðir góðir til lautarferða og leikja. Þeir
eru stórir, með aðstöðu til að grilla og eiga
góðan dag. Laugardalurinn er án efa sá
veðursælasti og hentugasti en hinir eiga sín
skot og skemmtilegheit.
Hlíðargarður í Kópavogi
Elsta skipulagða útivistarsvæðið í Kópavogi er Hlíðargarður sem er
á milli Lindarhvamms og Hlíðarhvamms. Garðurinn hallar mót
suðri og er skjólgóður mjög því hann er umkringdur húsum og
trjám. Garðurinn er athyglisverður frá fagurfræðilegu sjónarmiði
vegna þess að hann er skipulagður í stíl erlendra hallargarða, hann
er symmetrískur. Þar fyrir utan er skemmtilegt að húsin í kringum
hann eru öll teiknuð af Sigvalda Thordarsyni arkitekti, eftir sömu
teikningu.
Einarsgarður í Reykjavík
Milli gömlu Hringbrautar og Laufásvegar er garður sem lætur lítið
yfir sér. Þar eru þó bekkir og gott skjól, ekki síst ef maður vill virða
fyrir sér flugvallarsvæðið og velta fyrir sér hvort þar sé hentugt
íbúðahverfi eða hvort flugvöllurinn sé kannski á besta staðnum.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
ILH
EL
M
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
ILH
EL
M
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
ILH
EL
M