Fréttablaðið - 30.05.2009, Síða 70
46 30. maí 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
TÖLURNAR TALA
Flest skot: Stjarnan 17
Flest skot á mark: Stjarnan 9
Fæst skot: Fram 6
Hæsta meðaleink.: Stjarnan 7,10.
Lægsta meðaleink.: Fjölnir 4,55.
Grófasta liðið: Fylkir 17 brot.
Prúðasta liðið: ÍBV, Keflavík 8
brot.
Flestir áhorfendur: 2.370, á leik
KR og FH.
Fæstir áhorfendur: 632, á leik
Grindavíkur og Þróttar.
Áhorfendur alls: 6.484 (1.081).
Besti dómarinn: Vilhjálmur
Alvar Þórarinsson og Þórodd-
ur Hjaltalín fengu báðir 7 í ein-
kunn. Þetta var fyrsti leikur Vilhjálms í
úrvalsdeild. 4-3-3 Davíð Guðjónsson
Pétur
RunólfssonDaníel Laxdal Tommy Nielsen
Jósef Kristinn
Jósefsson
Alfreð Finnbogason Steinþór Freyr
ÞorsteinssonBjarni Guðjónsson
Marel Baldvinsson
Hörður SveinssonHaukur Baldvinsson
> Atvik umferðarinnar
Þegar Kjartan Ólafsson, markvörður Stjörnunnar, fékk
rautt eftir aðeins níu mínútna leik gegn Fylki. Kjartan var
fenginn að láni frá Víkingi þar sem Bjarni Þórður Halldórs-
son fékk rautt í síðasta leik Stjörnunnar. Þá voru góð ráð
dýr fyrir Garðbæinga.
> Atvik umferðarinnar
„Mér fannst [...] Marel liggja ansi oft
í grasinu, hann átti það til að detta
ansi auðveldlega. Við erum engir vinir
inni á vellinum en félagar utan vallar. Það
nær ekkert lengra en það,“ sagði Kristján
Hauksson, leikmaður Fram, um Valsarann
Marel Baldvinsson.
Fimmta umferð Pepsi-deildar karla fór fram í
fyrrakvöld og er óhætt að segja að mikið hafi
gengið á. Alls voru 24 mörk skoruð í leikjunum,
fjögur mörk að meðaltali í leik. Þrír leikmenn
fengu að líta rauða spjaldið og þá lyftu dóm-
ararnir gula spjaldinu á loft alls 37 sinnum
– sannarlega ótrúleg staðreynd.
Stjarnan tyllti sér aftur á topp deildarinnar
með 2-1 sigri á Fylki og er með tólf stig, rétt
eins og FH, en með betra markahlutfall.
Þrjú lið – KR, Fylkir og Keflavík – eru svo
með tíu stig.
Stjörnumenn eiga þrjá fulltrúa
í liði umferðarinnar, þar á
meðal markvörðinn unga,
Davíð Guðjónsson. Það
var reyndar hörð
samkeppni um
markvarðarstöðuna í liðinu því þrír markverðir
voru valdir bestu menn sinna leikja. Auk Davíðs
voru það Daði Lárusson, FH, og Albert Sævars-
son, ÍBV.
Samtals eiga átta lið fulltrúa í liði umferðar-
innar að þessu sinni.
PEPSI-DEILD KARLA: LIÐ 5. UMFERÐAR
24 mörk, þrjú rauð spjöld og 37 gul
FÓTBOLTI Davíð Guðjónsson er leik-
maður 5. umferðar Pepsi-deild-
ar karla að mati Fréttablaðsins.
Sparkspekingar þekktu fæstir til
þessa markvarðar, enda er hann
ekki nema sextán ára gamall og
leikur með þriðja flokki Stjörn-
unnar. Honum var hins vegar
hent út í djúpu laugina með meist-
araflokknum í fyrrakvöld og er
óhætt að segja að hann hafi staðist
prófið.
Annan leikinn í röð fékk mark-
vörður Stjörnunnar að líta rauða
spjaldið. Bjarni Þórður Halldórs-
son var í banni frá fyrri leik og
þar sem Baldvin Guðmundsson, 45
ára gamall varamarkvörður liðs-
ins, meiddist á æfingu var Kjart-
an Ólafsson fenginn að láni frá
Víkingi til að leika gegn Fylki á
miðvikudagskvöldið.
Eftir aðeins níu mínútna leik
fékk þó Kjartan að líta rauða
spjaldið og var þá komið að þætti
Davíðs. Hann varði reyndar ekki
vítaspyrnu Vals Fannars Gíslason-
ar en hélt hreinu eftir það á meðan
Stjarnan tryggði sér 2-1 sigur.
„Tilfinningin var gríðarlega
góð,“ sagði Davíð. „Það var ótrú-
lega gaman inni í búningsklefan-
um eftir leik og óhætt að segja að
ég hafi fengið spennufall. Ég er
fyrst núna að jafna mig.“
Hann segir að hann hafi nán-
ast fengið áfall þegar Kjartan
fékk rauða spjaldið. „Ég var svo
stressaður,“ sagði Davíð. „Ég átti
alls ekki von á því að koma inn á.
Ég var næstum búinn að gleyma
legghlífunum og var svo svaka-
lega stressaður að það var engu
líkt.“
Davíð er nú að klára tíunda
bekkinn í grunnskóla og er því
mikil byrði lögð á ungar herðar.
Hann komst hins vegar vel frá
sínu og gott betur, enda þótt Fylk-
ismenn hafi verið duglegir að láta
hann finna til tevatnsins.
„Ég held að það sé spurning um
að láta barnaverndaryfirvöld vita,“
sagði hann og hló.
Þetta var fyrsti leikur Davíðs
með meistaraflokki en hann hefur
þó áður æft með leikmönnum liðs-
ins. „Ég byrjaði að æfa með meist-
araflokki áður en tímabilið hófst
en hef bara verið að spila með
þriðja flokknum. Ég á ekki von á
öðru en að ég haldi áfram að gera
það en fer ef til vill að æfa meira
með meistaraflokknum áfram.“
Hann gerir þó ekki kröfu um að
fá byrjunarliðssæti í næsta leik
þrátt fyrir góða frammistöðu, enda
er Bjarni Þórður búinn að taka út
sitt leikbann.
„Nei, ég geri það ekki,“ sagði
hann og hló. „Bjarni er einn besti
markvörður landsins og það er
fullkomlega eðlilegt að hann fari
aftur í liðið.“ eirikur@frettabladid.is
Geri ekki kröfu
um sæti í liðinu
Hinn sextán ára gamli Davíð Guðjónsson kom, sá
og sigraði þegar Stjarnan vann 2-1 sigur á Fylki.
Markvörðurinn ungi er leikmaður 5. umferðar.
KASTAÐ ÚT Í DJÚPU LAUGINA Davíð Guðjónsson varð sextán ára gamall 21. mars
síðastliðinn og á enn tæpt ár í að fá bílprófið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Blikinn Alfreð Finnboga-
son hefur skorað í fimm fyrstu
umferðum Pepsi-deildarinnar og
er markahæsti leikmaður deildar-
innar á sínu fyrsta alvöru tímabili
í úrvalsdeild. Alfreð hefur með
þessu jafnað afrek Guðmundar
Benediktssonar frá árinu 1996
þegar hann skoraði í fyrstu fimm
leikjum KR-inga.
Guðmundur
Benediktsson
skoraði átta mörk
í fyrstu fimm leikj-
um KR-inga sum-
arið 1996 og átti að
auki tvær stoðsend-
ingar. Fyrstir til þess að halda
hreinu á móti Guðmundi
þetta sumar voru Grind-
víkingar, sem höfðu hann í
strangri gæslu en gleymdu
Ríkharði Daðasyni sem
skoraði þrennu í 4-0 sigri
Vesturbæinga.
Alfreð er tví-
tugur og hafði
aðeins leikið
fjóra leiki í
efstu deild
fyrir þetta
tímabil.
Hann skor-
aði í sínum
fyrsta leik í byrj-
unarliðinu í fyrra
þegar Breiðablik
vann 3-0 sigur á
Fram. Það var
eina mark hans
í úrvalsdeild karla fyrir þetta
tímabil.
Með því að skora í 4-4
jafnteflinu á móti Kefla-
vík í 5. umferðinni í fyrra-
kvöld gerði hann betur en
þeir Matthías Guðmunds-
son (FH 1997) og Gunn-
ar Heiðar Þorvalds-
son (ÍBV 2002) sem
höfðu á síðustu árum
náð því að skora
í fjórum fyrstu
umferðunum. - óój
Alfreð Finnbogason búinn að skora í öllum fimm leikjum Blika í Pepsi-deildinni:
Jafnaði afrek Gumma Ben frá 1996
ÁRIÐ 1996 Guðmundur
Benediktsson skoraði í
fimm fyrstu leikjum KR
árið 1996.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
ÁRIÐ 2009 Alfreð
Finnbogason er
búinn að skora
í fimm fyrstu
leikjum Blika.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!