Fréttablaðið - 09.07.2009, Side 6
6 9. júlí 2009 FIMMTUDAGUR
SPARNAÐUR
Í ÞÍNA ÞÁGU
PAPPÍRSLAUS
VIÐSKIPTI
FRÁ 1. ÁGÚST 20
09
Frá og með 1. ágúst nk. verður allur hefðbundinn póstur
frá Byr sendur út rafrænt. Pósturinn er sendur beint í
heimabankann þinn.
Byr mun því ekki lengur senda út eftirfarandi:
• Reikningsyfirlit
• Kreditkortayfirlit
• Greiðsluseðla lána og kreditkorta
Engin breyting verður á útsendum pósti til ófjárráða
einstaklinga. Pappírslaus viðskipti fela í sér bæði einfaldari
og öruggari samskipti. Pósturinn skilar sér alltaf til þín í
heimabankann sem aðeins þú hefur aðgang að.
Hægt er að sækja um pappír og heimabanka Byrs á
www.byr.is, í næsta útibúi Byrs eða með því að hringja í
síma 575 4000.
Viðskiptavinir Byrs
geta sparað sér
þúsundir króna á ári!
Dæmi um sparnað Fjöldi á ári Sparnaður á ári
Yfirlit launareiknings 4 380 kr.
Kreditkortayfirlit og greiðsluseðill* 12 2.100 kr.
Greiðsluseðill lána í íslenskum krónum* 12 5.160 kr.
Greiðsluseðill lána í erlendri mynt* 12 3.600 kr.
Samtals sparnaður á ári: 11.240 kr.
*Miðað er við skuldfærslu og rafrænt yfirlit
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
VIÐSKIPTI Margar leiðir til samein-
ingar fjármálastofnana hafa verið
skoðaðar í viðskiptaráðuneytinu,
en engin áform eru um samein-
ingu tveggja af viðskiptabönkun-
um þremur, segir Gylfi Magnússon
viðskiptaráð-
herra.
Ekki er hægt
að útiloka að
einhverjar af
smærri fjár-
málastofnun-
um landsins
verði samein-
aðar viðskipta-
bönkunum, en
engin ákvörðun hefur verið tekin
um slíkt, segir Gylfi. Þó sé nánast
óhjákvæmilegt að einhverjar sam-
einingar verði hjá sparisjóðunum.
„Það hefur verið lögð mikil
vinna í að skoða framtíðarskipu-
lag fjármálakerfisins […] mikil
vinna hefur verið lögð í að teikna
upp ýmsa möguleika,“ segir Gylfi.
Hann segist enn ekki hafa tekið
afstöðu til þess hvaða fyrirkomu-
lag hann telji heppilegast fyrir
íslenskan bankamarkað.
„Sameining tveggja af stóru
bönkunum er mjög fjarlæg-
ur möguleiki af ýmsum ástæð-
um,“ segir Gylfi. Erfitt sé að rétt-
læta að búa til banka með yfir
50 prósenta markaðshlutdeild út
frá samkeppnissjónarmiðum. Þá
myndi slík sameining einnig hafa
afar neikvæð áhrif á millibanka-
markað og fjármálastöðugleikann
í landinu.
„Ég vil sjá fjármálakerfi þar sem
sparisjóðirnir gegna talsverðu hlut-
verki, þá sérstaklega í þjónustu við
einstaklinga og smærri fyrirtæki.
Þeir myndu þá fyrst og fremst hafa
rætur utan höfuðborgarsvæðisins
með nánum tengslum við heima-
byggðina,“ segir Gylfi.
Hann segir slíkt afturhvarf til
upprunalegra gilda sparisjóðanna
jákvætt út frá samkeppnissjónar-
miðum, enda sparisjóðirnir val-
kostir við stóru viðskiptabankana
fyrir viðskiptavini. Sjóðirnir verði
þó að vera sæmilega stórir og líf-
vænlegir, svo taka þurfi til í kerf-
inu til að þessi framtíðarsýn sé
raunhæf. brjann@frettabladid.is
Sameiningar nánast
óhjákvæmilegar
Varla kemur til greina að sameina tvo af viðskiptabönkunum segir viðskipta-
ráðherra. Skoðað hvort sameina eigi smærri fjármálastofnanir. Lífsnauðsynlegt
fyrir land og þjóð að halda sparisjóðakerfinu segir sparisjóðsstjóri Byrs.
GYLFI MAGNÚSSON
Ekki hefur verið rætt við forsvarsmenn Byrs sparisjóðs
um mögulega sameiningu og sparisjóðurinn hefur ekki
lýst áhuga á slíku, segir Ragnar Zophonías Guðjónsson,
sparisjóðsstjóri Byrs og stjórnarmaður í Sambandi
sparisjóða.
„Ég held að það sé lífsnauðsynlegt fyrir land og þjóð
að það verði sparisjóðir í landinu,“ segir Ragnar. Hann
segist frekar horfa til sameiningar sparisjóða en samein-
ingar Byrs við einn af viðskiptabönkunum þremur.
Hann tekur undir það álit Samband sparisjóða að
raunhæft sé að miða við að fimm til sjö sparisjóðir starfi
í landinu, um það bil einn í hverjum landshluta.
FIMM TIL SJÖ SPARISJÓÐIR Í LANDINU
RAGNAR ZOPHONÍ-
AS GUÐJÓNSSON
SAMEINING Til stóð að sameina Byr, Sparisjóð Keflavíkur og SPRON, en samein-
ingin hafði ekki gengið í gegn þegar Fjármálaeftirlitið tók yfir rekstur SPRON.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
INDÓNESÍA, AP Susilo Bambang Yudhoyono, forseti
Indónesíu, þykir nokkuð öruggur með endurkjör
eftir fyrstu talningu atkvæða úr forsetakosningum,
sem haldnar voru í gær.
Samkvæmt þessari talningu var Yudhoyono kom-
inn með 60 prósent atkvæða, en Megawati Sukarno-
putri, fyrrverandi forseti, hlaut aðeins 17 prósent
og Jusuf Kalla varaforseti kom í þriðja sæti með 13
prósent.
Yudhoyono hefur lagt áherslu á lýðræðisum-
bætur og þykir harður baráttumaður gegn hvers
kyns spillingu. Sú barátta hans hefur þó farið fyrir
brjóstið á mörgum valdamönnum innan lögreglunn-
ar, þings og dómsvalds, þar sem spilling hefur verið
útbreidd.
Yudhoyono vonast til að fá ótvíræðan stuðning
almennings til baráttu sinnar, sem myndi styrkja
hann í átökum við spillingaröflin.
Sjálfur varar hann fólk þó við að taka þessum
bráðabirgðaniðurstöðum án fyrirvara: „Talningunni
er ekki lokið, þótt fyrstu tölur bendi til sigurs í bar-
áttu okkar,“ sagði hann.
Opinberar tölur verða ekki birtar fyrr en 27.
júlí. Fái enginn frambjóðandi meira en 50 prósent
atkvæða þarf að efna til annarrar umferðar kosn-
inganna, þar sem tveir efstu verða í kjöri.
- gb
Yudhoyono Indónesíuforseti virðist öruggur um endurkjör:
Berst áfram gegn spillingu
FORSETINN Á KJÖRSTAÐ ÁSAMT EIGINKONU SINNI Susilo
Bambang Yudhoyono forseti vonast til að glæsilegt endurkjör
auðveldi baráttu gegn spillingu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
REYKJAVÍK Jakob Frímann Magnús-
son, framkvæmdastjóri miðborgar-
mála, er enn við störf í Ráðhúsi
Reykjavíkur
þrátt fyrir að
ráðningartími
hans hafi runn-
ið út í lok apríl.
„Ég er bara
að ljúka ýmsum
verkefnum sem
fer að sjá fyrir
endann á,“ segir
Jakob Frímann,
en verkefni hans
lutu meðal annars að hreinsun og
fegrun miðborgarinnar og sam-
ræmingu starfa þeirra sem koma
að málefnum hennar.
Ráðning Jakobs var á sínum
tíma umdeild. Hann var ráðinn án
auglýsingar sem var skýrt með því
að um tímabundna ráðningu væri
að ræða.
Ólafur F. Magnússon, þáver-
andi borgarstjóri, var gagnrýnd-
ur vegna ráðningarinnar, auk þess
sem laun Jakobs þóttu há, en hann
hafði 710 þúsund krónur á mánuði
sem miðborgarstjóri.
Jakob segir að til umræðu sé að
hann taki að sér frekari verkefni
fyrir borgina í náinni framtíð, án
þess að tímabært sé að hann tjái
sig um eðli þeirra hugmynda. „En
ég get vel hugsað mér að starfa
áfram að uppgangi miðborgarinn-
ar,“ segir Jakob Frímann.
- sh
Ráðningartími miðborgarstjóra rann út fyrir 70 dögum en hann starfar enn:
Jakob Frímann er enn í Ráðhúsinu
JAKOB FRÍMANN
MAGNÚSSON
RÁÐHÚSIÐ Kjörnir fulltrúar sögðu fyrir
rúmu ári að starf Jakobs yrði auglýst í
fyllingu tímans. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
Eiga Björgólfsfeðgar að fá
niðurfellingu á skuld hjá Kaup-
þingi?
Já 5%
Nei 95%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Var rétt af stjórnvöldum að
bjarga bótasjóði Sjóvár með tólf
milljarða framlagi úr ríkissjóði?
Segðu skoðun þína á visir.is.
SJÁVARÚTVEGSMÁL Jón Bjarnason,
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, hefur látið fella úr
gildi öll leyfi til makrílveiða.
Jafnframt hefur reglugerð um
stjórn veiða úr norsk-íslenska
síldarstofninum verið breytt
og þar má makrílafli ekki fara
yfir tíu prósent af heildarafla á
hverju þriggja vikna tímabili.
Gripið er til þessara ráðstaf-
ana þar sem afar hratt hefur
gengið á makrílkvótann og
nauðsynlegt að eftirstöðvar
kvótans verði notaðar sem með-
afli við veiðar á norsk-íslenskri
síld.
- shá
Breytingar á sókn skipa:
Makrílveiðar
takmarkaðar
KJÖRKASSINN