Fréttablaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 20
20 9. júlí 2009 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 10 Velta: 41,9 milljónir
OMX ÍSLAND 6
753,20 +0,93%
MESTA HÆKKUN
MAREL +2,18%
BAKKAVÖR GROUP +1,68%
MESTA LÆKKUN
ÖSSUR -0,87%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,20 +0,00% ... Atlantic
Airways 159,00 0,00% ... Atlantic Petroleum 475,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,21 +0,00% ... Eik Banki 89,00 +0,00 ... Føroya Banki
120,50 +0,00% ... Icelandair Group 4,75 +0,00% ... Marel Food
Systems 56,20 +2,18% ... Össur 114,00 -0,87%
Í fyrsta skipti frá hruni bankakerf-
isins býðst smáum og miðlungs-
stórum lögfræðistofum í Bretlandi
aðgengi að nýjum lánum til að fjár-
magna rekstur þeirra. Fyrirtækja-
ráðgjöf Landsbankans var stór
aðili á þessum markaði með um tíu
prósenta markaðshlutdeild fyrir
bankahrunið í október.
Það er fjármálafyrirtækið Sys-
cap sem er að bjóða þessi lán og
nemur heildarfjárhæðin 50 millj-
ónum punda. Í viðtali við Times
Online segir starfsmaður Syscap að
mörg lögfræðifyrirtæki hafi lent í
miklum vandræðum að undanförnu
þar sem fyrirtæki hafa dregið að
greiða lögfræðikostnað til að bæta
lausafjárstöðu sína. - bþa
Fé eftir fall
Landsbankans
Verð á gulli hefur hækkað mikið
á undanförnum árum og er gull
stöðugt að verða vinsælla til
fjárfestingar. Nú hefur þýskt
fyrirtæki, TG-Gold-Super-
Markt, ákveðið að opna gull-
sjálfsala á fjölförnum stöðum í
Þýskalandi.
Sjálfsalinn, sem er fyrstur
sinnar tegundar í heiminum,
kallast Gold-to-Go og er hægt
að velja á milli eins, fimm og
tíu gramma gullstanga. Þar að
auki er hægt að festa kaup á
gullpeningum í nokkrum stærð-
um. Gullstangirnar eru seld-
ar í fallegri gjafaöskju og mun
eins gramms stöng kosta um 31
evru og tíu gramma stöngin 245
evrur.
Fyrirtækið gerir ráð fyrir að
opna 500 sjálfsala í Þýskalandi,
Austurríki og Sviss á næstu
árum. Nauðsynlegt er að hafa
nokkra öryggisgæslu á þeim
stöðum þar sem sjálfsalarnir
eru staðsettir. Gert er ráð fyrir
að þeir verði til að byrja með á
flugvöllum og lestarstöðvum. Á
heimasíðu félagsins kemur jafn-
framt fram að til greina komi að
opna slíka sjálfsala á hótelum,
skartgripaverslunum og bönk-
um.
Búið er að opna fyrsta sjálfsal-
ann og geta áhugasamir Íslend-
ingar prófað þessa nýjung á
flugvellinum í Frankfurt. - bþa
Gullsjálfsalar opn-
aðir í Þýskalandi
GULLSJÁLFSALI Ferðamenn um flug-
völlinn í Frankfurt geta nú fest kaup
á eins gramms gullstöng á 31 evru.
FRÉTTABLAÐIÐ/TG-GOLD-SUPER-MARKT
Hagvöxtur í heiminum mun verða
um 2,5 prósent á næsta ári sam-
kvæmt nýrri spá Alþjóðagjaldeyr
issjóðsins (AGS) um horfur í efna-
hagsmálum sem birt var í gær.
Spáin gerir ráð fyrir um 0,6 pró-
sentustiga meiri vexti en í fyrri
spá frá því í apríl á þessu ári.
Í skýrslu AGS segir að þrátt
fyrir aukinn hagvöxt telji sjóður-
inn að atvinnuleysi komi til með
að aukast á komandi mánuðum í
heiminum. Horfurnar fyrir árið
2009 eru svipaðar og í fyrri spá en
gert er ráð fyrir samdrætti í hag-
kerfi heimsins um 1,4 prósent.
Aðalhagfræðingur Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, Oliver Blanchard
sagði á blaðamannafundi í gær að
þau öfl sem væru að draga hag-
kerfi heimsins niður væru ekki
jafn sterk og áður, hins vegar væri
ekki mikill kraftur í uppsveiflunni.
Hann bætir við að vöxturinn verði
ekki hraður á næstunni þó að horf-
ur séu betri nú en í apríl.
Samkvæmt spá AGS að þessu
sinni mun mestur hagvöxtur vera
í Asíu á þessu ári og því næsta. Af
þeim löndum sem spá er birt fyrir
er gert ráð fyrir mestum hagvexti
á Indlandi og í Kína um sex pró-
sent. Mestum samdrætti á þessu
ári er hins vegar spáð í Mexíkó,
7,3 prósentum, 6,2 í Þýskalandi
og 6 prósent í Japan. Athuga ber
að ekki er birt spá fyrir Ísland
eða önnur smærri lönd. Í skýrslu
sjóðsins kemur fram að horfur í
Bandaríkjunum hafi batnað nokk-
uð og merki séu um að kreppan sé
að ná botni. Batinn á evrusvæðinu
er hins vegar hægur og fá merki
um að botninum sé náð.
Jose Vinals, yfirmaður pen-
ingamála- og fjármálamarkaðs-
deildar AGS, segir að engin for-
dæmi séu fyrir jafn viðamiklum
viðbrögðum og hafa átt sér stað
undanfarna mánuði. Hann segir
að viðbrögðin hafi dregið úr
áhættu á kerfis-lægu hruni mark-
aða auk þess sem traust á mark-
aðnum sé að aukast. Hann bætir
við að ástand heimsins sé á ákaf-
lega viðkvæmu stigi og brugðið
geti til beggja vona. Nauðsynlegt
sé að grípa til frekari ráðstafana
til að tryggja stöðugleika. „Í end-
urreisn bankakerfisins er mikil-
vægt að vera reiðubúinn að gera
allt sem þarf til að vinna bug á
þeim vandræðum sem enn eru til
staðar,“ segir Vinals.
bta@frettabladid.is
Hagvöxtur hægur en
horfur betri nú en áður
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir 0,6 prósentustiga meiri hagvexti á næsta ári.
Aðalhagfræðingur sjóðsins telur að batinn verði þó ekki skjótur.
HAGVAXTARSPÁ ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐSINS Samkvæmt nýrri spá Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins verður mestur hagvöxtur í Asíu á næstu tveimur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ AFP
499kr.
FIMMTUDÖGUM
Ódýrt í matinn á
Tilboðið gildir
alla daga
Tilboðið gildir
alla daga
ATVINNUMÁL Sjö tilboð hafa borist í eignir
þrotabús Loftorku Borgarnesi ehf. Eirík-
ur Elís Þorláksson, skiptastjóri þrota-
búsins, hefur tilboð í höndunum, sem
ýmist eru í eignirnar í heild eða einstaka
hluta þeirra. Þetta kemur fram á frétta-
vefnum Skessuhorni.
Eiríkur er að fara í gegnum tilboð-
in sem eru bæði frá heimamönnum í
Borgarnesi og öðrum. Allar ákvarðanir
þarf að bera undir Íslandsbanka sem er
með veð í eignum fyrirtækisins.
Sveitarstjóri Borgarbyggðar, Páll
Reynisson, sagði við Fréttablaðið nýlega
að hann vonaðist mjög eftir endurreisn
fyrirtækisins. Hún yrði þó gerð án
aðkomu sveitarfélagsins.
- shá
Atvinnumál í Borgarnesi:
Tilboð berast í Loftorku ehf.
LOFTORKA Alls unnu 300 manns í fyrirtækinu
þegar best lét. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Einkaneysla jókst um 1,7 prósent
á öðrum ársfjórðungi. Aukning-
in kemur í kjölfar metsamdrátt-
ar á fjórða ársfjórðungi 2008
er einkaneysla dróst saman um
fimmtán prósent. Þetta kemur
fram í Hagvísum Hagstofu
Íslands.
Kreditkortavelta Íslendinga
dróst saman um 7,5 prósent
innanlands en 25 prósent erlend-
is. Á móti kemur að kreditkorta-
velta erlendra aðila hérlend-
is jókst um 75 prósent á sama
tímabili.
Fjárfesting dróst saman um
rúm 30 prósent og var samdrátt-
ur í öllum flokkum fjárfestinga
á ársfjórðungnum. Síðastliðna
tólf mánuði hefur vísitala launa
hækkað um 4,1 prósent. Á sama
tíma hækkaði vísitala neyslu-
verðs um 11,6 prósent. Kaup-
máttur hefur því dregist saman
um 6,7 prósent milli ára.
- bþa
Einkaneysla á uppleið
eftir mikinn samdrátt
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur
vísað máli vegna gruns um mark-
aðsmisnotkun til Ríkislögreglu-
stjóra samkvæmt lögum um verð-
bréfaviðskipti. Þetta kom fram í
tilkynningu frá Fjármálaeftirlit-
inu í gær.
Málið fjallar um viðskipti
tveggja starfsmanna sem störf-
uðu við miðlun verðbréfa fyrir
hönd viðskiptavina annars vegar
og fyrirtækis þeirra hins vegar.
Ekki er greint frá nafni fjármála-
fyrirtækisins.
Lögin sem vitnað er til fjalla um
viðskipti eða tilboð um viðskipti
sem eru líkleg til að gefa framboð,
eftirspurn eða verð fjármálagern-
inga ranglega eða misvísandi til
kynna. Um er að ræða eins konar
sýndarviðskipti, viðskipti eða til-
boð um viðskipti sem byggð eru á
tilbúningi eða sýndarmennsku.
Um þrjú tilfelli er að ræða og
áttu viðskipti sér stað með tvö
félög. Umrædd brot áttu sér stað
dagana 4. og 10. júní 2008 og 24.
júlí 2008. - bþa
Sýndarviðskipti til
Ríkislögreglustjóra