Fréttablaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 24
9. júlí 2009 FIMMTU-
DAGUR
2
Hattar, tjull og rómantík
Hátíska Christian Dior fyrir haustið og veturinn var í vikunni frumsýnd á tískuvikunni í borg ástarinnar.
Mikilfengleg pils, tjull og ógnarstórir hattar réðu ríkjum í rómantískri tískusýningu.
John Galliano sveik ekki aðdáendur sína
þegar hátískulína hans fyrir Christian Dior
var sýnd á tískuvikunni í París á mánudag-
inn. Áhersla var lögð á dulúð og glæsileika
frekar en íburð enda talið að efnahags-
ástandið hafi læst klóm sínum í tísku-
bransann líkt og allt annað í hinum stóra
heimi. Tískusýningin var til að mynda
haldin í höfuðstöðvum tískurisans Dior.
Umgjörðin var rómantísk og einföld og
andi fimmta áratugarins sveif yfir vötn-
um í sköpunarverki Galliano.
Hönnuðurinn leitaði aftur til upp-
runa Dior í ýmsum sniðum á jökkum
og buxum. Þá voru undirföt og silki-
sokkar áberandi undir glæsilegum
flíkunum sem skörtuðu margvís-
legum litum á borð við límónugræn-
an, fjólubláan og appelsínurauðan.
solveig@frettabladid.is
David Beckham og Angelina Jolie eru
bæði með samning við Armani. Nú
eru uppi sögusagnir um sameiginlega
auglýsingu þeirra fyrir fyrirtækið.
Stórstirnin David Beckham og Ang-
elina Jolie munu að öllum líkind-
um leika saman í auglýsingu fyrir
tískufyrirtækið Armani. Frá þessu
er greint á fréttavef hins breska
Telegraph.
Þar er sagt frá því að fyrir
tveimur vikum hafi náðst samn-
ingar við Jolie um að kynna ilm-
vatn frá Armani. Samningavið-
ræðurnar eru taldar hafa tekið hátt
í þrjú ár.
Í síðustu viku birtist nærfataauglýs-
ing frá fyrirtækinu með þeim hjóna-
kornum Victoriu og David Beckham.
Nú er spurning hvort Angelina Jolie
taki sæti Victoriu við hlið knattspyrnu-
hetjunnar í nýrri auglýsingaher-
ferð.
Þær sögur ganga fjöllum
hærra að yfirmenn Arm-
ani reyni nú að koma sér í
mjúkinn hjá frú Beckham,
sem sjálf er með 12 millj-
óna dala auglýsingasamn-
ing við Armani, og eigin-
mann Jolie, Brad Pitt, til
að fá samþykki þeirra
fyrir sameiginlegri aug-
lýsingu maka þeirra.
Jolie og Beckham saman í
auglýsingu fyrir Armani
BETH DITTO sem er best þekkt sem söngkona bandarísku
hljómsveitarinnar The Gossip hefur hannað eigin fatalínu fyrir
fatafyrirtækið Evans. Gagnrýnendur eru almennt ánægðir með
útkomuna en Evans selur föt fyrir konur í stærri kantinum.
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
w
w
w
.g
a
b
o
r
.is
Ný sending
Skór & töskur
www.gabor.is
Kristy sf | Skúlagötu 13 | 310 Borgarnesi | tel/fax 437 1234
Minnum á vefverslunina
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
NÝTT
Fáðu fæturna mjúka og fína
á 2 vikum með Flextiol
Útsölustaðir: Fótaaðgerðastofurnar og Snyrtistofurnar Eygló, Paradís, Líf, Jóna og Aníta Vestmannaeyjum,
Ásdísar í GB. Spar, Þín verslun Kópavogi, Fjarðarkaup HFJ og Lipurtá, Lyfja, Fótaaðgerðastofa Reykjavíkur.
NÁM