Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.07.2009, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 09.07.2009, Qupperneq 24
 9. júlí 2009 FIMMTU- DAGUR 2 Hattar, tjull og rómantík Hátíska Christian Dior fyrir haustið og veturinn var í vikunni frumsýnd á tískuvikunni í borg ástarinnar. Mikilfengleg pils, tjull og ógnarstórir hattar réðu ríkjum í rómantískri tískusýningu. John Galliano sveik ekki aðdáendur sína þegar hátískulína hans fyrir Christian Dior var sýnd á tískuvikunni í París á mánudag- inn. Áhersla var lögð á dulúð og glæsileika frekar en íburð enda talið að efnahags- ástandið hafi læst klóm sínum í tísku- bransann líkt og allt annað í hinum stóra heimi. Tískusýningin var til að mynda haldin í höfuðstöðvum tískurisans Dior. Umgjörðin var rómantísk og einföld og andi fimmta áratugarins sveif yfir vötn- um í sköpunarverki Galliano. Hönnuðurinn leitaði aftur til upp- runa Dior í ýmsum sniðum á jökkum og buxum. Þá voru undirföt og silki- sokkar áberandi undir glæsilegum flíkunum sem skörtuðu margvís- legum litum á borð við límónugræn- an, fjólubláan og appelsínurauðan. solveig@frettabladid.is David Beckham og Angelina Jolie eru bæði með samning við Armani. Nú eru uppi sögusagnir um sameiginlega auglýsingu þeirra fyrir fyrirtækið. Stórstirnin David Beckham og Ang- elina Jolie munu að öllum líkind- um leika saman í auglýsingu fyrir tískufyrirtækið Armani. Frá þessu er greint á fréttavef hins breska Telegraph. Þar er sagt frá því að fyrir tveimur vikum hafi náðst samn- ingar við Jolie um að kynna ilm- vatn frá Armani. Samningavið- ræðurnar eru taldar hafa tekið hátt í þrjú ár. Í síðustu viku birtist nærfataauglýs- ing frá fyrirtækinu með þeim hjóna- kornum Victoriu og David Beckham. Nú er spurning hvort Angelina Jolie taki sæti Victoriu við hlið knattspyrnu- hetjunnar í nýrri auglýsingaher- ferð. Þær sögur ganga fjöllum hærra að yfirmenn Arm- ani reyni nú að koma sér í mjúkinn hjá frú Beckham, sem sjálf er með 12 millj- óna dala auglýsingasamn- ing við Armani, og eigin- mann Jolie, Brad Pitt, til að fá samþykki þeirra fyrir sameiginlegri aug- lýsingu maka þeirra. Jolie og Beckham saman í auglýsingu fyrir Armani BETH DITTO sem er best þekkt sem söngkona bandarísku hljómsveitarinnar The Gossip hefur hannað eigin fatalínu fyrir fatafyrirtækið Evans. Gagnrýnendur eru almennt ánægðir með útkomuna en Evans selur föt fyrir konur í stærri kantinum. Sérverslun með FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni) Sími: 553 7060 w w w .g a b o r .is Ný sending Skór & töskur www.gabor.is Kristy sf | Skúlagötu 13 | 310 Borgarnesi | tel/fax 437 1234 Minnum á vefverslunina Augnháralitur og augnbrúnalitur Tana® Cosmetics SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR NÝTT!! Plokkari með ljósi NÝTT Fáðu fæturna mjúka og fína á 2 vikum með Flextiol Útsölustaðir: Fótaaðgerðastofurnar og Snyrtistofurnar Eygló, Paradís, Líf, Jóna og Aníta Vestmannaeyjum, Ásdísar í GB. Spar, Þín verslun Kópavogi, Fjarðarkaup HFJ og Lipurtá, Lyfja, Fótaaðgerðastofa Reykjavíkur. NÁM

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.